Ferðamönnum sem heimsóttu Ísland fækkaði um tæplega eina íslenska þjóð

Ferða­menn sem heim­sóttu Ísland í fyrra voru undir tveimur millj­ónum og hafa ekki verið færri síðan 2016. Banda­ríkja­mönnum fækk­aði mikið en fleiri Kín­verjar komu. Gjald­þrot WOW air mark­aði vatna­skil.

Ferðamönnum fækkaði í fyrra.
Ferða­mönnum fækk­aði í fyrra. Mynd: Bára Huld Beck

Alls voru brott­farir erlendra far­þega frá Íslandi um Kefla­vík­ur­flug­völl, sem not­aðar eru til við­mið­unar um hversu margir ferða­menn heim­sóttu landið, 1.986.153 í fyrra. Það er um 329 þús­und færri en árið 2018, sem var metár, en þá voru brott­farir 2.315.925. Til sam­an­burðar þá búa um 364 þús­und manns á Íslandi um þessar mundir. Ferða­mönnum fækk­aði því um tæp­lega eina íslenska þjóð í fyrra.

Ferða­menn­irnir sem flugu frá Íslandi voru því 14,2 pró­sent færri í fyrra en árið á undan og tæp­lega tíu pró­sent færri en þeir voru árið 2017. Ferða­menn í fyrra voru hins vegar fleiri en árið 2016.

Þetta kemur fram í nýjum tölum Ferða­mála­stofu, sem heldur utan um far­þega­töl­fræði til og frá land­inu.

Gjaldþrot WOW air vatnaskil

Viðbúið var að ferða­mönnum myndi fækka á síð­asta ári, sér­stak­lega eftir að WOW air fór í þrot í lok mars 2019. Frá þeim tíma, og fram í des­em­ber, fækk­aði brott­förum um Kefla­vík­ur­flug­völl um 12,7 til 23,6 pró­sent í hverjum mán­uði. Í des­em­ber var fækk­unin hins vegar 8,6 pró­sent sem er í fyrsta sinn frá þroti WOW air sem hún er undir tveggja stafa tölu.

[adspot]Þegar við bætt­ist kyrr­setn­ing 737 MAX flug­véla Icelandair, fram­leiddar af Boeing, eftir að tvær slíkar hröp­uðu með stuttu milli­bili var ljóst að síð­asta ár yrði áskorun fyrir íslenska ferða­þjón­ustu, en hún er stærsta stoðin undir íslenska efna­hags­kerf­inu. Eins og er reiknar Icelandair ekki með því að 737 MAX vél­arnar fari í loftið fyrr en í mái á þessu ári hið fyrsta.

Bandaríkjamönnum fækkar mikið en Kínverjum fjölgar

Flestir sem heim­sóttu Íslands á síð­asta ári eru frá Banda­ríkj­unum, eða 464 þús­und manns. Þeim fækk­aði um þriðj­ung milli ára og spilar gjald­þrot WOW air þar stóra rullu, enda flaug flug­fé­lagið á nokkra áfanga­staði í Norður-Ameríku.

Bretar komu þar á eftir en brott­farir þeirra frá Íslandi mæld­ust tæp­lega 262 þús­und árið 2018 og fækk­aði þeim um tólf pró­sent milli ára. Samtals voru brott­farir Banda­ríkja­manna og Breta 36,6 pró­sent af heild.Þá komu 132 þús­und Þjóð­verjar til lands­ins í fyrra en þeim fækk­aði einnig lít­il­lega á milli ára.

Brott­förum Kínverja frá Kefla­vík­ur­flug­velli fjölg­aði hins vegar umtals­vert, eða um 10,9 pró­sent milli ára, og alls komu 99 þús­und slíkir til Íslands í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár