Nauðsynlegt að draga úr neyslu jafnvel þótt það kosti viss óþægindi

Þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar gerir elda í Ástralíu að umtals­efni en hann seg­ist hafa trölla­trú á blönd­uðu hag­kerfi til að sporna við lofts­lags­breyt­ingum og að í mark­að­inum búi reg­inafl sem þó verði að stýra.

Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Guð­mundur Andri Thorsson, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­in­anr, telur að hlut­verk stjórn­mála­manna sé meðal ann­ars að sann­færa almenn­ing um nauð­syn þess að draga úr neyslu og þá sér­stak­lega þar sem kolefn­is­sporið er stórt, jafn­vel þótt það kosti viss óþæg­indi. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu á Facebook-síðu hans í dag.

Tilefni skrifa Guð­mundar Andra eru kjarr- og gróð­ur­eldar sem nú standa yfir í Ástralíu. Ástandið er sagt mjög alvar­legt þar í landi en almanna­varnir í fylk­inu Viktoríu fyr­ir­skip­uðu um helg­ina tugum þús­unda íbúa og ferða­manna að yfir­gefa ákveðin svæði.

Fram kom í fréttum RÚV í morgun að þús­undir hafi forðað sér frá hættu­svæðum í fylk­inu en yfir­völd þar í landi til­kynntu í morgun að sums staðar væri of seint að flýja eldana, fólk yrði að gera ráð­staf­anir til að kom­ast af.

Hefur tröllatrú á blönduðu hagkerfi

„Ástralía brennur. Núna. Við færumst nær þeim tíma­mótum í sögu mann­kyns að ekki verður aftur snúið á braut hlýn­unar and­rúms­lofts­ins með til­heyr­andi veð­ur­öfgum. Hægra megin segja menn að það yrði mann­gert hall­æri á heims­vísu að flýta orku­skiptum og hætta olíu­vinnslu og kola­greftri svo fljótt sem auðið er; vinstra megin segir fólk að ekk­ert muni breyt­ast nema kap­ít­al­isma verði bylt og nýtt kerfi inn­leitt – sós­í­al­ismi á heims­vísu; með mið­stýrðum áætl­un­ar­bú­skap sem allur miðar að sama marki,“ skrifar Guð­mundur Andri.

Hann seg­ist sjálfur hafa trölla­trú á blönd­uðu hag­kerfi. „Ég held að í mark­að­inum búi reg­inafl en því verði að stýra. Að sjálf­sögðu þarf að snúa af braut rányrkju á Jörðinni, þar sem stund­ar­gróð­inn ræður för án þess að hirða um afleið­ingar til lang­frama. Það þarf þrótt­mikið sam­starf vís­inda og fyr­ir­tækja við að þróa tækni­legar lausnir þar sem stjórn­völd hafa hönd í bagga – leiða saman – stýra för – en stjórna ekki stóru og smáu eða gera allan arð upp­tækan, eins og fylgir mið­stýrðu hag­kerfi,“ skrifar hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár