Togarinn Heinaste enn kyrrsettur

Unnið er að því að aflétta kyrr­setn­ingu tog­ar­ans í Namibíu.

Heinaste
Heinaste Mynd: MarineTraffic.com

Kyrr­setn­ing tog­ar­ans Heinaste er enn í gildi í Namibíu en namibíski fjöl­mið­ill­inn The Namibian fjallar um málið í dag. Í frétt mið­ils­ins er það orðað svo að tog­ar­inn hafi verið gerður upp­tækur.

Togarinn er í eigu Esju Holding, félags sem íslenska sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækið Samherji á stóran hlut í, en hann var kyrr­settur af dóm­ara að kröfu yfir­valda í Namibíu fyrir rúmur tveimur vikum.

Í svari Samherja við fyr­ir­spurn Kjarnans stað­festir fyr­ir­tækið að skipið Heinaste hafi verið kyrr­sett af namibískum stjórn­völdum í tengslum við rann­sókn Fiski­stofu Namibíu á ætl­uðum brotum vegna veiða innan lok­aðs svæðis.

Þá kemur fram hjá Samherja að þessar ásak­anir séu ótengdar þeim sem settar hafa verið fram á hendur fyr­ir­tæk­inu vegna starf­sem­innar í Namibíu. Lögmenn í Namibíu hafi full­vissað Samherja um að eng­inn grund­völlur sé fyrir ásök­unum um að Heinaste hafi veitt innan lok­aðs svæðis. Unnið sé að því að aflétta kyrr­setn­ingu skips­ins.

Arn­grímur Brynj­ólfs­son, skip­stjóri á Heinaste, var hand­tek­inn og leiddur fyrir dóm­ara þann 21. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn en sam­kvæmt The Namibian var hann leystur úr haldi gegn trygg­ingu en rann­sókn stendur nú yfir hjá yfir­völdum þar í landi.

Skip­stjór­inn sendi á þessum tíma fjöl­miðlum yfir­lýs­ingu þar sem hann sagð­ist ekki hafa gerst sekur um brot. Hann sagði að það hefði komið honum á óvart að vera sak­aður um að hafa siglt skipi inn á lokað svæði. Arn­grímur var sak­aður um að hafa verið við veiðar á hrygn­ing­ar­svæði undan ströndum Namibíu. Honum var gert að leggja inn vega­bréfið sitt og var máli hans frestað fram í lok jan­úar.

Í frétt RÚV um málið fyrir tveimur vikum kom fram að Heinaste hefði áður ratað í fjöl­miðla. Tvö fyrr­ver­andi sam­starfs­fyr­ir­tæki Samherja í Namibíu hefðu stefnt félagi Samherja, Esju Holding í Namibíu, til að koma í veg fyrir að skipið yrði selt. Dómari vís­aði aftur á móti kröfu félag­anna frá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár