Game of Thrones? Nei, Róm: Verstu Rómarkeisarar sögunnar

Flosi Þor­geirs­son, sagn­fræð­ingur og lista­maður, heldur áfram að rýna í sög­una og spor hennar. Hér er I. hluti í umfjöllun um Róm­ar­keis­ara.

Afar margt af því sem við sjáum nú til dags í sjón­varps­þáttum, kvik­myndum, leik­húsum og víðar er fengið úr sarpi sög­unnar. Þegar þetta er skrifað er þátta­röðin Game of Thrones að hefja sína hinstu göngu. Eft­ir­vænt­ing hefur verið mikil um ger­valla heims­byggð­ina enda einir vin­sæl­ustu þættir allra tíma. Mörgum er eflaust í fersku minni hvernig þeim varð við að horfa á níunda þátt í þriðju syrpu þátt­anna sem heitir á ensku Rains of Castamere. Und­ir­rit­aður hefur áður gerst sekur um að spilla efni þátt­anna fyrir öðrum og vill helst ekki þurfa að ganga í gegnum það erf­iða ferli á ný.

Því verður ekki fjallað nánar um Game of Thrones en ætl­unin er að benda á að efn­is­þráður t.d. Rains of Castamere sækir inn­blástur úr sög­unni. Caracalla, eitt versta ómenni sem gegnt hefur emb­ætti Róm­ar­keis­ara, fékk nefni­lega slíka hug­mynd nærri 2000 árum á undan hand­rits­höf­undum Game of Thrones. Joffrey kon­ungur var sér­lega ógeð­felldur og sið­blindur sad­isti en bliknar frammi fyrir ýmsum Róm­ar­keis­urum sem, ólíkt Joffrey, voru ekki skáld­skap­ar­per­sónur.

Við skulum nú kíkja á nokkra af þeim verstu sem hafa verið keis­arar Rómar en margir þeirra fengu eina þá grimmi­leg­ustu refs­ingu sem róm­verska þingið gat úthlutað: Damnatio Memorae en það gekk út á að afnema algjör­lega allt sem minnti á við­kom­andi, rit­aðan texta, myndir eða styttur. Hug­myndin var sú að eftir ákveð­inn tíma væru þessir menn öllum gleymdir en það fannst Róm­verjum frekar ill örlög. Gjörðir sumra voru þó svo yfir­gengi­legar að Damnatio Memorae dugði ekki einu sinni til. Enn ræðum við ill­virki þess­ara manna í dag. Við skulum skoða nokkra af þeim verstu sem gegndu því hlut­verki að vera æðstu menn stærsta heims­veldis sög­unnar.

Commodus (161 – 192 e.kr.)

Þennan þekkja eflaust ýmsir úr stór­mynd­inni Gladi­ator þar sem hinn afar sér­staki en hæfi­leik­a­ríki Joaquin Phoenix gerði honum góð skil. Kvik­myndin á þó lítið skylt við raun­veru­leik­ann. Til dæmis þá myrti Commodus ekki föður sinn, Markús Árelíus, heldur hafði Markús ákveðið að Commodus yrði keis­ari eftir sinn dag. Markús er af mörgum tal­inn einn besti og fróð­asti keis­ari sög­unnar en þetta var þó afleit ákvörðun.

Það varð nefni­lega fljótt ljóst að Commodus hafði ekki erft and­legt atgervi föður síns. Honum leidd­ist að standa í land­vinn­ingum og vildi halda til í gleð­inni í Róm. Því gerði hann frið­ar­samn­ing við ger­mönsku ætt­bálkanna sem faðir hans hafði eytt mörgum árum í að kné­setja. Commodus ávann sér óvild hers­ins með þess­ari ákvörðun. Einnig kom fljót­lega í ljós að Commodus hafði mun meiri áhuga á því að vera skylm­inga­þræll en keis­ari en ráða­mönnum í Róm blöskr­aði það, enda voru skylm­inga­þrælar ekki hátt skrif­aðir í þessu stétt­skipta sam­fé­lagi.

Commodus umbreytt­ist svo fljót­lega úr því að vera venju­legur, ríkur og dekraður keis­ara­sonur í væni­sjúkan ein­ræð­is­herra sem mis­kunn­ar­laust lét taka fjölda fólks af lífi fyrir litlar sakir. Hann fór að trúa því að hann væri róm­verski guð­inn Herkúles end­ur­fæddur og breytti klæðn­aði sínum eftir því. Einnig lét hann reisa fjölda­margar styttur af sér í líki guðs­ins.

Það þarf vart að taka fram að yfir­leitt voru þessar styttur úr eðal­málmum og því rán­dýrar en Commódusi var slétt sama þótt minnk­aði í fjár­hirslum rík­is­ins. Hann breytti nafni borg­ar­innar í Colonia Commodiana sem mætti útleggja sem „Commodusar-borg“. Hann hélt stans­lausa kapp­leiki í Colloseum þar sem hann sjálfur var aðal-núm­erið og drap þar ógrynni af alls konar dýrum. Þar á meðal voru hættu­leg dýr eins og ljón, tígris­dýr og fílar en áhorf­endur ráku upp stór augu þegar inn streymdu einnig strútar og gíraffar en Commodus slátr­aði þeim öllum með glöðu geði. Einn fun­heitan sum­ar­dag reyndi hann afar mikið á þol­gæði áhorf­enda er hann gerði sér lítið fyrir og drap eitt hund­rað skóg­ar­birni í röð.

Hann drap einnig fólk í hringnum en það voru vana­lega her­menn sem voru veikir eða særðir og fengu léleg vopn sem nýtt­ust þeim jafnt og ekk­ert. Ölm­usu­menn og fatl­aðir voru einnig sendir í dauða sinn gegn keis­ar­anum sem virt­ist hald­inn óslökkvandi blóð­þorsta.

Allt þetta kost­aði ríkið svim­andi fjár­hæðir og til að bæta gráu ofan á svart þá gerði Commodus þetta ekki ókeypis. Nei, ríkið neydd­ist til að borga honum stórfé fyrir að koma fram! Commodus hefur verið lýst sem keis­ara sem tók við borg úr gulli en skildi við hana sem hrör­legt þorp byggt úr ryðg­uðu járni. Að lokum var öllum nóg boðið og upp­á­halds skylm­inga­þræll Commódusar var feng­inn til að ráða hann af dögum.

Caracalla (188 – 217 e.kr.)

Eitt mesta var­menni sem hefur gegnt þessu emb­ætti. Valda­græðgi hans var taum­laus og allar hans gjörðir benda til þess að hann hafi verið full­kom­lega sið­blindur. Í fyrstu átti hann að deila emb­ætt­inu með bróður sínum Geta. Hvorugur bróð­ir­inn var hrif­inn af því og versn­aði sam­band þeirra svo ofsa­lega að keis­ara­höll­inni var bók­staf­lega skipt í tvennt og öllum starfs­mönnum Caracalla bannað að fara í hinn hlut­ann og öfugt.

Móðir þeirra kom á sátta­fundi á milli þeirra þar en á fund­inum gaf Caracalla skyndi­lega merki, inn streymdu aðstoð­ar­menn hans og Geta var myrtur, dó í faðmi örvinglaðrar móður sinnar. Að myrða bróður sinn fyrir framan móður sína, það ger­ist nú varla miklu verra? Allt það fólk sem
hafði umgeng­ist bróður hans var sam­stundis tekið af lífi og skipti þá engu hvort um var að ræða nán­ustu ráð­gjafa eða þjón­ustu­fólk.

Nú var Caracalla ein­ráður og gat snúið sér að því sem honum fannst skemmti­leg­ast: Að heyja stríð. Hann byrj­aði á því að hækka laun her­manna enda þurfti hann á aðstoð þeirra að halda en einnig gull­tryggði hann þannig að her­inn myndi ekki svíkja hann. Það kom fljót­lega í ljós að Caracalla var hel­tek­inn af sögum af gríska konungnum og her­for­ingj­anum Alex­ander mikla og reyndi hann að líkj­ast honum sem mest.

Hann skip­aði t.d. róm­verska hernum að nota aðferðir sem gríski her­inn hafði notað en þær aðferðir voru þá taldar úreltar af róm­verskum for­ingjum. Í Grikk­landi, sem þá var undir yfir­ráðum Rómverja, frétti fólk af þessu grikkja­blæti hans og Caracalla barst til eyrna að leik­rit hafði verið sett á svið í Alex­andríu þar sem gert var grín að honum. Hann ákvað því að heim­sækja borg­ina. Fyr­ir­menni borg­ar­innar und­ir­bjuggu sig til að taka vel á móti honum, eins og siður var er sjálfur keis­ar­inn kom að heim­sækja þegna sína en Caracalla var ekki mættur í kurt­eis­is­heim­sókn.

Allt þetta fólk var myrt á staðnum og síðan sendi hann her­menn sína inn í Alex­andríu þar sem þeir fengu að leika lausum hala í marga daga við að myrða, nauðga og fara ráns­hendi um borg­ina. Caracalla eyddi nú nokkrum árum í að berj­ast við Parþ­íu­menn sem lengi höfðu staðið uppi í hári Rómverja. Það stríð gekk illa svo Caracalla brá á það ráð að semja um frið og bjóð­ast til að kvæn­ast dóttur Arta­banusar, kon­ungs Parþíu. Caracalla hafði reyndar gengið að eiga konu í Róm en hann kunni illa við hana, hún var send í útlegð og seinna myrt. Arta­banus var fullur grun­semda í fyrstu en Caracalla náði loks að sann­færa hann með gull­hömrum og dýrum gjöfum. Brúð­kaupið var stór­kost­legt í fyrstu, engu til sparað og má ímynda sér að kon­ungs­dóttirin hafi verið heilluð. Hún var orðin keis­ara­ynja Rómar, þess mikla heims­veldis. Hún var því miður ekki lengi í þeirri Paradís.

Svo lítið bar á gaf Caracalla merki og innan skamms streymdu inn í sal­inn þung­vopn­aðir róm­verskir her­menn. Allir voru strá­felldir, einnig keis­ara­ynjan unga. Í kjöl­farið fóru Caracalla og menn hans ráns­hendi um landið og myrtu þús­undir manna. Sagnir herma þó að Arta­banus kon­ungur hafi náð að flýja úr veisl­unni og seinna tókst honum að safna her sem sigr­aði Rómverja. Þá var Caracalla reyndar allur. Eitt skiptið er föru­neyti hans stöðv­aði för sína fór hann út í veg­kant til að kasta þvagi. Þá kom að honum róm­verskur her­maður sem dró upp hníf og myrti hann. Að sögn var hann reiður því hann hafði ekki fengið stöðu­hækkun sem keis­ar­inn hafði lofað honum. Eft­ir­maður Caracalla samdi svo frið við Arta­banus og greiddi honum mikið fé í stríðs­skaða­bætur. 

Í næstu viku tökum við svo fyrir 3 aðra keis­ara. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár