Samherji í viðskiptum við einræðisstjórnir Chávez og Castro

Rík­is­fyr­ir­tæki í Venes­ú­ela sem Hugo Chavez stofn­aði keypti tog­ara af Samherja fyrir rúma fjóra millj­arða. Chavez sagði að fyr­ir­tækið ætti að verða eitt það stærsta í heimi. Togarinn veiddi ekki neitt og lá undir skemmdum á Kúbu í sex ár. Samherji leigði togar­ann svo aftur og notar hann í Namibíu til að veiða fisk sem útgerðin fær aðgang að með mútu­greiðslum.

Samherji í viðskiptum við einræðisstjórnir Chávez og Castro
Togarinn kynntur Hugo Chávez, for­seti Venes­ú­ela, sést hér með tog­ar­anum sem rík­is­út­gerð Venes­ú­ela og Kúbu keypti af Samherja árið 2010 á 35 millj­ónir doll­ara, 10 til 15 milljón doll­ara yfir­verð á þeim tíma. Samherji leigir þennan tog­ara í dag og notar hann í Namibíu.

Samherji leigir tog­ara í eigu rík­is­stjórn­ar­innar í olíu­rík­inu Venes­ú­ela í Suður-Ameríku sem not­aður er til að veiða á fiskikvótum í Namibíu sem útgerðin hefur kom­ist yfir með stór­felldum mútu­greiðslum til áhrifa­manna í land­inu. Togarinn sem Samherji leigir er kall­aður Geysir í dag, áður hét hann José Marti og Alpha, og var í eigu hafn­firsku útgerð­ar­innar Sjóla­skipa fram til árs­ins 2007 og síðar dótt­ur­fé­lags Samherja í Afríku, Kötlu Seafood, á árunum 2007 til 2010. Fram til árs­ins 2010 not­aði Samherji hann til að veiða hesta­makríl í Márit­aníu og Marokkó.

Árið 2010 var tog­ar­inn seldur til fyr­ir­tækis í 51 pró­sents eigu félags í eigu venes­ú­elska rík­is­ins, og 49 pró­sent í eigu fyr­ir­tækis sem rík­is­stjórnin á Kúbu átti. Í kjöl­farið var tog­ar­inn færður yfir á flagg frá Kúbu en hafði áður siglt á flaggi Mið-Amer­íku­rík­is­ins Belís. Þegar tog­ar­inn var keyptur var Hugo Chavez for­seti Venes­ú­ela – hann lést árið 2014 – og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár