Samherji í viðskiptum við einræðisstjórnir Chávez og Castro

Ríkis­fyrirtæki í Venesúela sem Hugo Chavez stofnaði keypti togara af Samherja fyrir rúma fjóra milljarða. Chavez sagði að fyrir­tækið ætti að verða eitt það stærsta í heimi. Togarinn veiddi ekki neitt og lá undir skemmdum á Kúbu í sex ár. Samherji leigði togarann svo aftur og notar hann í Namibíu til að veiða fisk sem útgerðin fær aðgang að með mútu­greiðslum.

Togarinn kynntur
Togarinn kynntur Hugo Chávez, for­seti Venes­ú­ela, sést hér með tog­ar­anum sem rík­is­út­gerð Venes­ú­ela og Kúbu keypti af Samherja árið 2010 á 35 millj­ónir doll­ara, 10 til 15 milljón doll­ara yfir­verð á þeim tíma. Samherji leigir þennan tog­ara í dag og notar hann í Namibíu.

Samherji leigir togara í eigu ríkis­stjórnarinnar í olíu­ríkinu Venesúela í Suður-Ameríku sem notaður er til að veiða á fiskikvótum í Namibíu sem útgerðin hefur komist yfir með stór­felldum mútu­greiðslum til áhrifa­manna í landinu. Togarinn sem Samherji leigir er kallaður Geysir í dag, áður hét hann José Marti og Alpha, og var í eigu hafnfirsku útgerðarinnar Sjóla­skipa fram til ársins 2007 og síðar dóttur­félags Samherja í Afríku, Kötlu Seafood, á árunum 2007 til 2010. Fram til ársins 2010 notaði Samherji hann til að veiða hesta­makríl í Máritaníu og Marokkó.

Árið 2010 var togarinn seldur til fyrir­tækis í 51 prósents eigu félags í eigu venesúelska ríkisins, og 49 prósent í eigu fyrir­tækis sem ríkis­stjórnin á Kúbu átti. Í kjölfarið var togarinn færður yfir á flagg frá Kúbu en hafði áður siglt á flaggi Mið-Ameríku­ríkisins Belís. Þegar togarinn var keyptur var Hugo Chavez forseti Venesúela – hann lést árið 2014 – og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli siðferðis­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undrast þögn íslenskra stjórn­valda um þá staðreynd að stærsta spill­ing­armál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir tilstilli íslensks fyrir­tækis. Spyr hvort hundrað milljóna styrkur Orkusjóðs sé ríkis­styrkt spilling og sendir forsætis­ráðherra opið bréf og óskar liðsinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sakaður um stórfelld skatta­laga- og gjaldeyris­brot í Namibíu og fram­salskrafa væntanleg

Ríkis­saksóknari Namibíu er enn ákveðinn í því að óska eftir framsali þriggja stjórn­enda Samherja­félaga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjaldeyris­lögum muni mögulega bætast við sakar­efnin á hendur þeim. Stórfelld skatta­lagabrot Samherja­félaga sögð til rann­sóknar. Samherja­maður segir íslensk yfirvöld þegar hafa neitað að framselja sig.
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­ríkis­ráðherra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Samherja­málið við íslenska ráðherra og aðstoðar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér forseta­embættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arftaki formanns flokksins, sitjandi forseta sem hyggst setjast í helgan stein. Flokkurinn nýtur slíks yfirburðar­fylgis að innan­flokks­kosningin er sögð raun­verulegt forseta­kjör.
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­ánsson, uppljóstrari í Samherja­málinu, er sáttur við gang rann­sóknarinnar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagnrýnir þó aðgerðar­leysi yfirvalda við því þegar Samherja­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í viðbrögðum Samherja­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum liðist.

19 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár