Ekki enn farið að sjást til lands í sáttaviðræðum

Á síð­ustu dögum hefur verið kallað eftir því að stjórn­völd sýni ábyrgð í sátta­við­ræðum við fyrrum sak­born­inga og aðstand­endur þeirra í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu, sér­stak­lega þegar kemur að fjár­hæð skaða- og miska­bóta.

Sakborningarnir fimm sem sýknaðir voru af öllum ákærum af Hæstarétti í september á síðasta ári, ásamt Erlu Bolladóttur.
Sak­born­ing­arnir fimm sem sýkn­aðir voru af öllum ákærum af Hæsta­rétti í sept­em­ber á síð­asta ári, ásamt Erlu Bolla­dóttur.

Í sept­em­ber árið 2018 sýkn­aði Hæsti­réttur fimm sak­born­inga af öllum ákæru­liðum í end­ur­upp­töku á einu umdeildasta saka­máli 20. ald­ar­innar, Guð­mundar- og Geir­finns­máls­inu, nærri því 40 árum eftir að dóm­ur­inn féll í Hæsta­rétti árið 1980. For­sæt­is­ráð­herra skip­aði í kjöl­farið sátta­nefnd sem leiða átti sátta­um­leitun við aðila máls og aðstand­endur þeirra.

Rúmum sjö mán­uðum síðar hefur hins vegar ekki enn náðst sátt í mál­inu og sú fjár­hæð sem nefndin hefur á milli hand­anna til greiðslu skaða- og miska­bóta verið sögð alltof lág. Fram­ganga stjórn­valda hefur verið gagn­rýnd úr ýmsum áttum og kallað hefur verið eftir því að stjórn­völd sýni ábyrgð þegar kemur að upp­hæð miska- og skaða­bóta fyrir þá sem ríkið sviptir frelsi og rétt­indum.

Sáttanefnd verið að störfum frá því í október

[links] End­ur­upp­töku­nefnd féllst í febr­úar árið 2017 að dómur Hæsta­réttar frá árinu 1980 skyldi tekin upp er varð­aði fimm sak­born­inga af sex. Rúmu ári síðar komst Hæsti­réttur að þeirri nið­ur­stöðu að sýkna skyldi sak­born­ing­ana fimm af öllum ákæru­liðum. Í kjöl­farið bað Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, fyr­ir hönd rík­is­stjórn­ar Íslands fyrr­ver­andi sak­born­inga, aðstand­end­ur þeirra og aðra sem hafa átt um sárt að binda vegna máls­ins, af­sök­un­ar á því rang­læti sem þeir hafa mátt þola.

For­sæt­is­ráð­herra skip­aði í kjöl­farið sátta­nefnd í októ­ber í fyrra sem koma átti fram fyrir hönd stjórn­valda í við­ræðum og sátta­um­leit­unum við aðila máls­ins og aðstand­endur þeirra. Nefndin átti jafn­framt að gera til­lögur um hugs­an­lega greiðslu miska- og skaða­bóta eða eftir atvikum svo­nefndra sann­girn­is­bóta til aðila máls­ins og aðstand­enda þeirra. Í íslenskum lögum eru ekki önnur úrræði fyrir þá sem ríkið sviptir frelsi og rétt­indum en að krefja ríkið um skaða­bætur fyrir fjár­hags­legt og ófjár­hags­legt tjón. Jafn­framt er ekki að finna í lögum leið­bein­ingar um hvernig ákvarða eigi bæt­urnar.

Krefst milljarðs fyrir sinn skjólstæðing

Frétta­blaðið greindi frá því í lok apríl að upp­haf­lega hefðu stjórn­völd hyggst verja til sátt­anna í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu 400 millj­ónum en nú hefði sú upp­hæð verið hækkuð í 600 millj­ónir til að liðka fyrir við­ræð­unum. Þeirri upp­hæð yrði síðan deilt á milli hinna sýkn­uðu meðal ann­ars eftir lengd frels­is­svipt­ing­ar.

Ragnar Aðal­steins­son, lög­maður Guðjóns Skarp­héð­ins­sonar, sem var einn þeirra sem sýkn­aður var í Hæsta­rétti í sept­em­ber síð­ast­liðnum, sagði í við­tali í Silfrinu síð­asta sunnu­dag að það hljóti að hafa orðið ein­hver mis­tök hjá stjórn­völdum þegar upp­hæð miska­bóta í mál­inu var ákveðin.

Í við­tal­inu greinir Ragnar frá því að hann hafi krafið ríkið um miska­bætur upp á rúman millj­arð fyrir hönd skjól­stæð­ings síns. Hann seg­ist hafa mið­aði upp­hæð bót­anna við það form­dæmi sem hann einna helst hafi en það er dómur Hæsta­réttar frá 1983. Í þeim dómi dæmdi Hæsti­réttur fjórum mönnum bætur sem­höfðu setið í gæslu­varð­haldi, en þrír þeirra höfðu sætt 105 daga gæslu­varð­haldi og einn 90 daga að ósekju árið 1976. Þeir höfð­uðu bóta­mál á hendur rík­inu, sem lauk með dómum Hæsta­réttar. Ragnar segir að í mál­inu hafi ekki legið fyrir gögn um áhrif gæslu­varð­halds­ins á and­lega og lík­am­lega heilsu fang­anna, en Hæsti­réttur mat áhrifin sjálfur með þeim orð­um, að vist­unin hafi reynst föng­unum fáheyrð and­leg og lík­am­leg raun.

Léttbært að finna rök fyrir enn hærri bótum

Ragnar fjallar jafn­framt um málið í aðsendri grein á Kjarn­anum í síð­ustu viku. Þar kemur fram að þessir dómar Hæsta­réttar frá 1983 kom­ist næst því að hafa beint for­dæm­is­gildi enda fjalli þeir um sama sak­ar­efni, sama tíma­bil og sama fang­elsi. „Mun­ur­inn er helst sá, að gæslu­varð­halds­tím­inn var marg­falt styttri í þeim dómum og ekki var rang­lega felld sök á þá sem í hlut áttu, þannig að þeir þurftu ekki að bera sekt á öxlum sínum um ára­tuga skeið. Þeir voru lausir allra mála varð­andi sekt er þeim var sleppt úr gæslu,“ segir í grein­inni.

Bæt­urnar sem Hæsti­réttur ákvað þeim sem sátu í 105 daga í gæslu nema að núvirði, sam­kvæmt reikn­ingum Ragnars, um það bil 56 millj­ónum króna miðað við breyt­ingar á vísi­tölu, eða um það bil 535.000 krónum á dag. Ragnar not­aði því þessar tölur og komst að þeirri nið­ur­stöðu, miðað við daga­fjölda síns skjól­stæð­ings í gæslu­varð­haldi, að leggja fram kröfur um miska­bætur nálægt millj­arði og atvinnu­tjón nálægt 120 milj­ónum fyrir hönd síns skjöl­stæð­ings.

Ragnar bendir jafn­framt á í grein sinni að það myndi reyn­ast rík­inu létt­bært að finna rök fyrir hærri bótum en í dómi Hæsta­réttar 1983. Hann segir að engin vafi leiki á því að þetta sé alvar­leg­asta dóms­morð síð­ustu ára­tuga hér á landi. „Fyrir slíkt athæfi rík­is­ins verður ekki bætt. Rétt­ar­kerf­ið skað­ast og trúin á rétt­láta máls­með­ferð og dóma verður fyrir áfalli auk tjóns hinna sak­lausu af með­ferð­inni. Stjórn­völd verða að leit­ast við að bæta skað­ann og lögin bjóða ekki ­upp á önnur úrræði gagn­vart brota­þol­unum en skaða­bæt­ur. Vilji stjórn­valda til að bæta úr hinum stór­felldu mis­tökum birt­ist því í því eina úrræði sem nefnt hefur ver­ið. Því hærri bætur því meiri varn­að­ar­á­hrif munu þær hafa á lög­reglu og dóm­stóla,“ segir Ragnar í grein sinni.

Í við­tal­inu í Silfrinu segir Ragnar enn fremur að hann hafi boðað sínar bót­ar­kröfur í októ­ber og síðan lagt fram kröf­urnar í des­em­ber en að engin við­brögð hafi komið við hans kröfum. Hann segir jafn­framt að eng­inn vilji sjá þessi mál fara fyrir dóm­stóla því það gæti tekið sinn tíma og mögu­lega endað fyrir Hæsta­rétti. Hann seg­ist aðspurður eiga von á því nú væru stjórn­völd nú að husga sinn gang. „Ég held að rík­is­valdið muni end­ur­skoða grunn­inn og átta sig á því að þessi upp­haf­lega upp­hæð var ekki rétt þannig að nú hefj­ist rétt og nýtt upp­haf,“ segir Ragnar að lokum.

Segir aðferð og nálgun siðanefndar svíða mest

Tryggvi Rúnar Brynjars­son, barna­barn Tryggva Rúnars Leifs­sonar eins hinna sýkn­uðu sak­born­inga í mál­inu, hefur einnig gagn­rýnt fram­göngu sátta­nefnd­ar­innar. Í grein hans á vef Vísis sem birt var í síð­ustu viku greinir Tryggvi frá því hvernig fjöl­skylda hins sýkn­aða hafi aflað gagna til að leggja fram við mat nefnd­ar­innar á orsökum og afleið­ingum rang­látra fang­elsa og rangra dóma á ein­stak­linga. Hann segir hins vegar að nefndin hafi hundsað hverja ein­ustu til­lögu sem kom úr þeirra horni.

Þegar nefndin síðan lagði undir lög­mann þeirra til­lögu að bótum segir Tryggvi að fjöl­skyldan hafi trúað því að sú til­laga myndi end­ur­spegla þá vinnu sem hlyti að hafa átt sér stað allan þennan tíma. Þess í stað hafi full­trúar stjórn­valda aðeins tekið fyrir daga­fjöld­ann sem hver maður var sviptur frels­inu. Jafn­framt hafi útreikn­ingar nefnd­ar­innar byggt á Vega­smál­inu svo­kall­aða sem hann segir að svipi ekki hið minnsta til þess máls sem hér um ræðir.

Tryggvi segir í sam­tali við Kjarnann að hann ásamt fjöl­skyldu sinni hafi vænt þess að þegar sátta­nefndin var skipuð að nú færi þessu hræði­lega máli senn að ljúka. Hann segir aðstand­endur afa síns hafa búist við því nefndin myndi að minnsta kosti reyna að gera heild­stætt mat á orsökum og afleið­ingum máls­ins á ein­stak­linga en ekki aðeins telja dag­ana sem hann var frels­is­sviptur. Hann segir að í raun sé það mun frekar aðferð og nálgun siða­nefndar sem svíður mest en ekki upp­hæðin. Sú stað­reynd að nefndin hafi eytt sex mán­uðum í ekki neitt.

Fremur í „bisness“ en að ræða neina raunverlega sátt

Í nýlegu við­tali við Mannlíf gagn­rýnir Erla Bolla­dóttir einnig fram­komu sátta­nefndar á síð­ustu mán­uðum. Þegar end­ur­upp­töku­nefnd féllst á að dómur Hæsta­réttar frá árinu 1980 skyldi tekin upp var end­ur­upp­töku­beiðni Erlu Bolla­dóttur hins vegar hafnað. Erla var dæmd fyrir mein­særi í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu en ekki morð eins og hinir. Í við­tal­inu seg­ist Erla vera sár út í Katrínu Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra, en Erla hefur beðið þess lengi að fá svör frá henni um stöðu síns máls. Einnig gagn­rýnir Erla fram­göngu for­manns sátta­nefndar í við­ræð­unum við aðila máls­ins.

„Hér höfum við bara full­trúa for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og þá einkum Kristrúnu Heim­is­dóttur [sem var for­maður sátta­nefndar, innsk. skota­blaða­manns] með rík­is­lög­mann í bak­grunni að fara fyrir því að ræða við sak­born­inga um hvernig ríkið geti sloppið sem best frá þessu. Hún er fremur í biss­ness en að ræða neina raun­veru­lega sátt. Á átt­unda mán­uði frá því að „nefndin“ tók til starfa kemur svo ein­hliða ákvörðun for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins um upp­hæð skaða­bóta sem er lítið meira en 10% af þeim skaða­bótum sem sak­lausum fjór­menn­ingum í mál­inu voru greiddar á sínum tíma. Auk þess hefur komið í ljós að umrædd „sátta­nefnd“ er ekki lengur starf­andi. Þetta virð­ist allt komið í ein­hverja alls­herjar vit­leysu,“ segir Erla í við­tal­inu.

Vakti athygli á því ekkert hafi spurst til sáttanefndarinnar

Þann 13. maí síð­ast­lið­inn spurði Helga Vala Helga­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar, for­sæt­is­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum hvernig rík­is­stjórnin ætl­aði sér að ljúka hinu löngu tíma­bæra verk­efni, Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu. Helga Vala vakti athygli á því að ekk­ert hefði spurst til sátta­nefnd­ar­innar um nokkuð skeið.

„Hún virð­ist bara vera gufuð upp án þess að ný hafi verið skipuð. Nú er lög­mað­ur­inn Andri Árnason mættur sem málsvari for­sæt­is­ráð­herra í mál­inu. Sjö mán­uðir eru liðnir, erindum dóm­felldu og aðstand­enda þeirra er ekki svarað og hæst­virtur for­sæt­is­ráð­herra lætur ekki ná í sig vegna þessa máls,“ sagði Helga Vala.

For­sæt­is­ráð­herra sagði að sú hug­mynda­fræði sem lagt var upp með í störfum sátta­nefndar væri að kanna hvort mögu­leiki væri að ná sátt við alla þessa aðila í ljósi þess að ólíkt lagaum­hverfi gildir hvað varðar miska­bætur ann­ars vegar um þá sem enn lifa og hins vegar um afkom­endur. Mark­miðið væri að reyna að ná heild­ar­sam­komu­lagi þó ljóst væri að um mjög ólíka hópa er að ræða.

Katrín stað­festi jafn­framt að nefndin væri enn að störfum sem og settur rík­is­lög­maður en nefndin hefur unnið með Andra Árnasyni, settum rík­is­lög­manni í mál­inu, og verið sátta­nefnd­inni til ráð­gjafar. „Þannig að ég bind að sjálf­sögðu vonir við að slíkt sam­komu­lag megi nást,“ sagði Katrín.

Getur ekki tjáð sig um fjárhæð miskabóta

Daginn eftir, þann 15. maí, voru störf sátta­nefnd­ar­innar á dag­skrá rík­is­stjórn­ar­innar. Í sam­tali við Kjarnann segir Katrín að hún hafi greint rík­is­stjórn­inni frá stöðu mála þar sem fyr­ir­spurn um málið hafi komið fram á Alþingi. Hún segir að málið hafi tekið sinn tíma enda gríð­ar­lega flókið og við­kvæmt og hún hafi fyrst og fremst verið að gera rík­is­stjórn­inni grein fyrir því að nefndin væri enn að störfum með það að mark­miði að reyna að ná sam­komu­lagi við þessa aðila.

Katrín segir jafn­framt hún hefði sjálf kosið að vinna nefnd­ar­innar hefði gengið hraðar en vegna þess að þetta sé flókið verk­efni og málið í raun ein­stakt í rétt­ar­sög­unni þá hafi þetta tekið sinn tíma. Hún segir að nefndin sé enn að störfum og hafi fundað 20 sinnum síðan í októ­ber.

Enn er ekki farið að sjá til lands í mál­inu en hún seg­ist ekki geta tjáð sig um þær upp­hæðir sem séu til skipt­anna fyrir þá sem eiga hlut að máli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár