Endurupptaka í Guðmundar- og Geirfinnsmáli heimiluð

End­ur­upp­töku­nefnd hefur úrskurðað að heim­ilað sé að taka upp öll dóms­mál sem tengd­ust hvarfi og morði á Guðmundi Ein­ars­syni og Geir­finni Ein­ars­syni. Hins vegar var ekki fall­ist á að taka upp mál Erlu Bolla­dóttur og aðra dóma um rangar sak­ar­giftir.

End­ur­upp­töku­nefnd hefur heim­ilað að mál gegn fimm sak­born­ingum í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu verði tekin upp aftur. Þetta kemur fram í úrskurðum nefnd­ar­innar, sem voru birtir klukkan tvö í dag.

Öll málin sem snúa að dómum fyrir að hafa orðið Guðmundi og Geir­finni að bana má taka upp á nýjan leik fyrir Hæsta­rétti. Hins vegar var beiðni um end­ur­upp­töku í máli Erlu Bolla­dóttur hafnað, sem og hvað varðar sak­fell­ingu Krist­jáns Viðars Júl­í­us­sonar og Sævars Ciesielski fyrir rangar sak­ar­giftir.

Taka má upp málin gegn Krist­jáni Viðari Júl­í­us­syni, Sævar Marinó Ciesielski og Tryggva Rúnari Leifs­syni, sem voru dæmdir fyrir að hafa orðið Guðmundi Ein­ars­syni að bana. Þá er fall­ist á end­ur­upp­töku dóms vegna sak­fell­ingar Alberts Klahn Skafta­syni, sem var sak­felldur fyrir að hafa aðstoðað við að koma líki Guð­mundar fyrir á ókunnum stað.

Þá var fall­ist á end­ur­upp­töku gagn­vart Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, Krist­jáni Viðari Júl­í­us­syni og Sævari Marinó Ciesielski, sem voru dæmdir fyrir að hafa orðið Geir­finni Ein­ars­syni að bana.

Bæði Sævar og Tryggvi Rúnar eru látnir. Það eru erf­ingjar þeirra sem fóru fram á end­ur­upp­töku fyrir þeirra hönd.

Í nið­ur­stöðu end­ur­upp­töku­nefndar í máli Sævars kemur meðal ann­ars fram að ætla megi að nið­ur­staða Hæsta­réttar hefði verið önnur ef þær upp­lýs­ingar og þau gögn sem nú liggja fyrir hefðu legið fyrir við upp­haf­lega með­ferð máls­ins og farið hefði verið að lögum við rann­sókn og með­ferð þess. Því beri að end­ur­upp­taka málið í sam­ræmi við beiðni end­ur­upp­töku­beið­enda.

Úrskurð­irnir frá end­ur­upp­töku­nefnd eru hér á eftir.

Guð­mund­ar­mál:

Gagnvart dóm­felldu Krist­jáni Viðari Júl­í­us­syni, Sævar Marinó Ciesielski og Tryggva Rúnari Leifs­syni er fall­ist á end­ur­upp­töku dóms Hæsta­réttar vegna sak­fell­inga fyrir brot á 218. og 215. gr. almennra hegn­ing­ar­laga, um að hafa orðið Guðmundi Ein­ars­syni að bana 27. jan­úar 1974.

Gagnvart dóm­fellda Alberti Klahn Skafta­syni er fall­ist á end­ur­upp­töku dóms Hæsta­réttar vegna sak­fell­ingar hans fyrir eft­ir­far­andi hlut­deild í brotum ann­arra dóm­felldu með því að veita þeim lið­sinni við að fjar­lægja og koma líki Guð­mundar fyrir á ókunnum stað og þannig leit­ast við að afmá ummerki brots­ins.

Geir­finns­mál:

Gagnvart dóm­felldu Guðjóni Skarp­héð­ins­syni, Krist­jáni Viðari Júl­í­us­syni og Sævari Marinó Ciesielski er fall­ist á end­ur­upp­töku dóms Hæsta­réttar vegna sak­fell­inga fyrir brot á 218. og 215. gr. almennra hegn­ing­ar­laga, um að hafa orðið Geir­finni Ein­ars­syni að bana aðfara­nótt 20. nóv­em­ber 1974.

Rangar sak­ar­giftir:

Hafnað er beiðni um end­ur­upp­töku dóms Hæsta­réttar hvað varðar sak­fell­ingu Erlu Bolla­dóttur, Krist­jáns Viðars Júl­í­us­sonar og Sævars Marinós Ciesielski fyrir brot á 1. mgr. 148. gr. almennra hegn­ing­ar­laga, með því að hafa borið þær röngu sakir á Einar Gunnar Bollason, Magnús Leó­polds­son, Sig­ur­björn Eiríks­son og Valdimar Olsen, að þeir hefðu átt hlut að dauða Geir­finns Ein­ars­sonar og smygl­brotum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár