Dominique Plédel Jónsson Hún átti hefur stóran þátt í að betrumbæta vímenn­ingu okkar Íslend­inga um ára­tuga­skeið og rekið Vín­skól­ann frá árinu 2006. Mynd: Heiða Helgadóttir

Notalegar jólahefðir mikilvægar

Dominique Plédel Jónsson hefur búið á Íslandi í hart­nær hálfa öld og til­einkað sér ýmsa íslenska jólasiði, þó að franskra áhrifa gæti í bland. Bernskuminn­ingar frá jólum í París eru henni þó alltaf einna kærastar.

Það er snjór yfir öllu og sann­ar­lega jóla­legt á að líta í borg­inni þegar við Dominique Plédel Jónsson hitt­umst yfir rjúk­andi bolla á Kjar­vals­stöðum dag­inn fyrir storm­inn. Dominique er flestum lands­mönnum kunn enda hefur hún átt stóran þátt í að betrumbæta vímenn­ingu okkar Íslend­inga um ára­tuga skeið og rekið Vín­skól­ann frá árinu 2006. Innan hans eru haldin marg­vís­leg vín­nám­skeið en síð­ast­liðin ár hefur Dominique einnig haldið með hópa í menn­ing­ar­ferðir til Marokkó sem hún segir að mætti kalla sitt þriðja heima­land. Dominique hefur búið hér­lendis í hart­nær hálfa öld og til­einkað sér íslenska jólasiði með fjöl­skyldu sinni þótt franskra áhrifa gæti í bland.

„Af barn­æskuminn­ingum mínum eru minn­ing­arnar frá jólum í París, þar sem ég ólst upp, meðal þeirra bestu. Ég fyllt­ist einmitt miklum sökn­uði núna um dag­inn þegar vin­kona mín var í París og setti inn færslu á Facebook um að hún hefði fengið sér 12 ostrur. Ostrur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár