Gylfi: Þjóðin skiptist í þá sem eru fastir í krónunni og þá sem geta farið úr henni

Pró­fessor í hag­fræði skrifar ítar­lega grein í Vís­bend­ingu, þar sem fjallað er um stétta­bar­áttu nútím­ans og stöðu mála á Íslandi.

„Í stað þess að íslenska þjóðin skipt­ist í fjár­magns­eig­endur og arð­rænt launa­fólk þá skipt­ist hún ann­ars vegar í þá sem geta farið inn í og út úr gjald­miðl­inum og hina sem eru fastir.“

Þetta segir Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands, í ítar­legri grein sem kemur til áskrif­enda Vís­bend­ingar á morgun. Í grein­inni, sem ber heitið Bylting í krónu­landi!, fjallar Gylfi um und­ir­stöður stétta­bar­átt­unnar og hvernig hún birt­ist í raun og veru á Íslandi.

Að hans mati liggur mun­ur­inn á hóp­unum innan íslenska hag­kerf­is­ins í því, að sumir geta farið úr „krónu­landi“ en aðrir ekki. „Í krónu­hag­kerfi þar sem fjár­magns­flutn­ingar á milli landa eru leyfðir er aðstöðu­munur á milli launa­fólks og fjár­magns­eig­enda. Dæmi­gerður launa­maður á fast­eign, skuldar fast­eigna­lán og safnar rétt­indum í líf­eyr­is­sjóði. Ef hann nú býst við því að gengi krón­unnar lækki þá áttar hann sig fljótt á a hann er fastur í krónu­hag­kerf­inu og getur fátt gert til þess að verja sig. Fjár­magns­eig­andi er í allt öðrum sporum. Hann getur milli­fært pen­inga­legar eignir sínar á milli krón­unnar og ann­arra gjald­miðla. Þegar hann býst við að krónan falli þá kaupir hann gjald­eyri og þegar hann býst við því að hún hafi náð botni þá kemur hann aftur inn í krón­una og hagn­ast á geng­is­styrk­ingu hennar. Hann getur jafn­vel haft pen­inga­legar eignir sínar í erlendum böndum eða skatta­skjólum.

Af því sem hér hefur verið sagt má álykta að for­sendur hef­bund­innar stétta­bar­áttu séu ekki fyrir hendi hér á landi. Þjóðin skipt­ist ekki upp í fjár­magns­eig­endur sem arð­ræna launa­fólk í Marxískum skiln­ingi heldur skipt­ist þjóðin í tvo hópa, þá sem geta komið sér út úr krón­unni á réttum tíma og hina sem eru fastir. Þetta hljómar ekki rétt­látt en svona er það samt,“ segir Gylfi í grein­inni.

Í grein­inni segir jafn­framt, að harðar kjara­deilur - með hót­unum og stríðs­yf­ir­lýs­ingum - geti einar og sér valdið því að kjör almenn­ings skerð­ist

„Ímyndum okkur nú að verka­lýðs­leið­togar lýsi yfir stríði á hendur atvinnu­rek­endum og fjár­magns­eig­endum í því skyni að fá hærri kaup­mátt á kostnað þeirra síð­ar­nefndu. Þeir hóta verk­föllum, t.d. skæru­verk­föllum sem geta lamað útflutn­ing um tíma, og hóta því að sýna meiri hörku en áður hefur sést á vinnu­mark­aði. Fjár­magns­eig­endum bregður í brún við að heyra þessi orð og eftir ekki langa umhugsun fara þeir inn í heima­banka sína og milli­færa pen­inga af krónu­reik­ingum á gjald­eyr­is­reikn­inga. Við­skipta­bankar reyna þá að kaupa gjald­eyri hver af öðrum og verð á gjald­eyri á milli­banka­mark­aði hækkar, gengi krón­unnar lækkar. Nú hækkar verð á öllum inn­flutn­ingi mælt í krónum og versl­anir munu fyrr en síðar hækka krónu­verð á inn­fluttum vörum sínum. Kaup­máttur launa­fólks lækkar; það verður dýr­ara að kaupa bíla og heim­il­is­tæki og ferða­lögum til útlanda fækkar.

Hag­stofan mælir sömu­leiðis meiri verð­bólgu í kjöl­far geng­is­lækk­unar krón­unnar sem verður til þess að tölvu­kerfi við­skipta­bank­anna hækka höf­uð­stól verð­tryggðra fast­eigna­lána, nú skuldar launa­fólkið meira í krónum mælt. Verka­lýðs­leið­togar krefj­ast þess þá að þak sé sett á verð­trygg­inu til þess að lánin hækki ekki en slíkt þak yrði til þess að eignir líf­eyr­is­sjóð­anna sem fel­ast í verð­tryggðum útlánum rýrð­ust og hvati til sparn­aðar minnk­aði vegna nei­kvæðra raun­vaxta. Vonandi segði rík­is­stjórn nei við slíkum til­lögum. Vextir á óverð­tryggðum lánum myndu einnig hækka þótt engar vaxta­hækk­anir yrðu í Seðla­banka ein­fald­lega vegna þess að bank­arnir byggjust við meiri verð­bólgu.

Þannig geta hót­anir verka­lýðs­hreyf­ingar orðið til þess að skerða lífs­kjör launa­fólks áður en til kjara­samn­inga kemur. Til­raunir til stétta­bar­áttu, svo ekki sé talað um bylt­ingu, leiða til falls krón­unnar, minni kaup­máttar launa og auk­innar mis­skipt­ingar eigna. Þetta er hið járn­harða lög­mál sam­tím­ans.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár