„Við erum, vil ég meina, búin að leysa hann með þeim aðgerðum sem við erum að ráðast í á Stuðlum á síðustu vikum þannig að það á ekki að þurfa að vísa börnum frá sem koma inn í kerfið.“ Þetta segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra, um bráðavanda ungra einstaklinga sem glíma við fíknivanda.
Í viðtali Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, við Ásmund Einar í sjónvarpsþættinum 21 á Hringbraut sem frumsýndur var á miðvikudagskvöld ræðir hann um stigvaxandi fíknivanda sem íslenskt samfélag glímir við og skort á meðferðarúrræðum til að takast á við þann vanda. Ein birtingarmynd þeirrar stöðu er að yfir 600 manns bíða nú eftir því að komast í meðferð vegna fíknar. Hægt er að horfa á stiklu úr þættinum hér að neðan.
Stjórnvöld hafa legið undir gagnrýni vegna skorts á meðferðarúrræðum, sérstaklega sérhægðum úrræðum fyrir ungt fólk. Vegna þessa stendur nú yfir undirskriftasöfnun til að þrýsta á stjórnvöld að auka þegar í stað árleg framlög til sjúkrahússins á Vogi um 200 milljónir króna til að útrýma biðlistum eftir áfengis- og vímuefnameðgerð, en þar eru einungis 138 pláss í boði. Það er sama magn og var í boð fyrir slíka meðferð árið 1976.
Þeir sem standa að þessu þjóðarátaki til varnar sjúkrahúsinu Vogi munu svo halda tónleika í kvöld klukkan 20. Þegar þetta er skrifað hafa 11.491 skrifað undir undirskriftarlistann.
[adspot]Ásmundur Einar segir að hann muni mæta á þá tónleika og hlusta eftir því sem verið er að segja. Aðspurður um hvernig hann vilji bregðast við yfirstandandi bráðavanda segir hann að málið sé tvíþætt, annars vegar sé um félagslegt mál og hins vegar heilbrigðismál. „Það sem snýr að börnum og þeim sem eru ekki lögráða snýr meira að félagsmálaráðuneytinu. Við höfum verið að setja mikinn kraft í þetta. Það eru nýir fjármunir á næsta ári í þessi mál fyrir börnin. Við erum núna búin að vera í vinnu, og ráðuneytið og pólitíkin hafa verið að reyna að aðstoða við það að flýta þessari lóð undir þetta heimili sem þarf að byggja. Fram að þeim þeim tíma höfum við verið að gera breytingar síðustu vikurnar á Stuðlum sem miða að því að það þurfi aldrei að vista börn í fangaklefum sem hafa verið að lenda í því að það er ekki úrræði til staðar. Ástæðan að það er ekki úrræði til staðar er sú að heilbrigðishlutinn og félagshlutinn hafa ekki verið að tala nægilega vel saman vegna þess að fyrstu klukkutímarnir og dagarnir af þessari meðferð er eiginlega heilbrigðisúrræði. Þannig að við höfum verið að brjóta niður múranna þarna á milli og láta menn tala saman.“
Hægt er að horfa á viðtalið við Ásmund Einar í heild sinni hér að neðan.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.












































Athugasemdir