Búið að leggja fram vantrauststillögu á Sigríði Andersen

Tveir stjórn­ar­and­stöðu­flokkar standa að fram­lagn­ingu þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um van­traust á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Til­lög­unni var skilað inn til Alþingis í gær.

Búið er að leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um van­traust á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra. Flutn­ings­menn til­lög­unnar eru þing­menn Sam­fylk­ingar og Pírata. Tillagan var send inn til Alþingis seint í gær. Ekki liggur nákvæm­lega fyrir á þess­ari stundu hvenær hún verður tekin fyrir en lík­leg­ast verður farið fram á að koma henni á dag­skrá á fimmtu­dag. Í yfir­lýs­ingu frá Þórhildi Sunnu Ævars­dóttur þing­flokk­for­manni Pírata frá því í morgun segir að hefð sé fyrir því að van­traust­s­til­lögur séu teknar á dag­skrá þings­ins við fyrsta tæki­færi.

[links]Kjarninn greindi frá því í gær að stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fimm hefðu allir tekið þátt í umræðu um að leggja fram van­traust­s­til­lögu á Sigríði vegna fram­göngu hennar í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða. Þing­flokks­for­menn þeirra fund­uðu í gær­morgun þar sem málið var rætt. Til stóð að annar fundur færi fram í dag, þriðju­dag, þar sem þing­flokks­for­menn og for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna til að taka ákvörðun um hvort og þá hvenær til­laga um van­traust yrði lögð fram. Ljóst er að þau áform hafa breyst og nú hafa þing­menn tveggja flokka lagt fram van­traust­s­til­lög­una. Komist til­lagan ekki á dag­skrá á fimmtu­dag er ljóst að bíða verður eftir afgreiðslu hennar í nokkurn tíma, þar sem nefnd­ar­vika er á Alþingi í næstu viku og engir þing­fundir haldnir.

Tveir af hverjum þremur landsmönnum vilja afsögn

Lands­rétt­ar­málið snýst um það að mats­nefnd um hæfi umsækj­enda um dóm­ara­emb­ætti við Lands­rétt, nýtt milli­dóm­stig, lagði fram til­lögu um 15 hæf­ustu ein­stak­ling­anna í fyrra­vor til að taka við 15 stöðum. Sigríður ákvað að breyta þeirri til­lögu og færa fjóra af lista mats­nefnd­ar­innar en setja fjóra aðra í stað­inn. Í des­em­ber 2017 komst Hæsti­réttur að þeirri nið­ur­stöðu að Sigríður hefði brotið gegn stjórn­sýslu­lögum með athæfi sínu í málum sem tveir mann­anna sem höfðu verið færðir af list­anum höfð­uðu. Hinir tveir hafa síðan höfðað bóta­mál á hendur rík­inu.

[adspot]Lands­réttur tók samt sem áður til starfa í byrjun árs. Nú þegar hefur verið látið reyna á hæfi eins þeirra dóm­ara sem bætt var inn á list­ann af Sigríði, Arnfríði Ein­ars­dóttur. Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son lög­maður hefur kraf­ist þess að hún víki sæti í máli sem hann rekur fyrir dóm­stólnum á grund­velli þess að hún hafi ekki verið skipuð í emb­ættið með réttum hætti. Í grein­ar­gerð hans fyrir Hæsta­rétti segir m.a.: „Það að stjórn­mála­menn, stjórn­mála­flokk­ar, til­tek­inn þing­meiri­hluti, sitj­andi rík­is­stjórn eða ein­stakur ráð­herra eigi hönk upp í bakið á ákveðnum dóm­urum grefur undan sjálf­stæði þeirra og getur með réttu veikt til­trú almenn­ings á dóms­kerf­in­u.“ Arn­fríður er eig­in­kona Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem vék úr odd­vita­sæt­inu í kjör­dæmi sínu fyrir síð­ustu kosn­ingar og eft­ir­lét það Sigríði Á. Andersen.

Í nýlegri könnun sem Mask­ína vann fyrir Stund­ina kom fram að 72,5 pró­sent lands­manna vilja að Sig­ríður segi af sér emb­ætti. Spurt var „Finnst þér að Sig­ríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra eigi að segja af sér ráð­herra­dómi eða á hún að sitja áfram sem dóms­mála­ráð­herra?“ Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagð­ist hins vegar á þingi í gær að hún beri fullt traust til allra ráð­herra í rík­is­stjórn­inni, þar á meðal Sigríðar.

Umboðsmaður gerði veigamiklar athugasemdir

Umboðs­maður Alþingis sendi bréf til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar á föstu­dag, sem var gert opin­bert í gær. Þar kom fram að hann myndi ekki hefja frum­kvæð­is­rann­sókn á mál­inu í ljósi yfir­stand­andi umfjöll­unar dóm­stóla og Alþingis um mál­ið. Hann gerði hins vegar nokkrar veiga­miklar athuga­semdir við máls­með­ferð­ina, meðal ann­ars þá að hann teldi að sá tveggja vikna frest­ur, sem ráð­herra hefur ítrekað borið við að hafi haft áhrif á mögu­leika hennar til að rann­saka mál­ið, hafi ekki átt við í því til­felli.

Að auki benti hann sér­stak­lega á skyldu sér­fræð­inga ráðu­neyt­is­ins til að veita ráð­herra ráð­gjöf, til að tryggja að ákvarð­anir hans séu lögum sam­kvæmt og að öll stjórn­sýsla ráð­herra og ráðu­neytis sé í sam­ræmi við ólög­festa rétt­mæt­is­reglu stjórn­sýslu­rétt­ar. Ráð­herra hafi í þessu til­viki verið veitt sú ráð­gjöf. Eins og kunn­ugt er vör­uðu minnst þrír sér­fræð­ingar ráðu­neyt­is­ins Sig­ríði ítrekað við því að breyt­ingar á lista Lands­rétt­ar­dóm­ara og sá ófull­nægj­andi rök­stuðn­ingur sem þeim breyt­ingum fylgdi gæti verið brot á stjórn­sýslu­lögum, eins og síðar kom á dag­inn.

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, mætti Páli Magn­ús­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks, í Kast­ljósi í gær til að ræða um mögu­lega van­traust­s­til­lögu. Þar sagði hún að ein­boðið væri að leggja fram slíka til­lögu enda hefði ráð­herr­ann brotið af sér af ásetn­ingi. Páll sagði hins vegar að ef hann væri í stjórn­ar­and­stöðu þá myndi hann bíða „eftir öðru tæki­færi til að van­treysta ráð­herra því ég er alveg viss um það að næstum því allir þeirra eiga eftir að gera meiri mis­tök en þessi á því kjör­tíma­bili sem er að byrja.“

Þurfa að minnsta kosti fjóra stjórnarliða

Þingmenn stjórn­ar­flokk­anna á Alþingi eru 35 tals­ins, en stjórn­ar­and­stöð­unnar 28. Tveir þeirra, Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir og Andrés Ingi Jónsson, sem sitja bæði á þingi fyrir Vinstri græn, styðja þó ekki stjórn­ar­sam­starfið í heild. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans von­ast stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir til að þau tvö muni ekki leggj­ast gegn van­traust­s­til­lögu komi hún fram og því er lögð rík áhersla á að minnsta kosti annað þeirra sé við­statt þegar kosið verður um van­traust­s­til­lög­una. Bæði Rósa og Andrés eru hins vegar á leið úr landi á næstu dögum.

Jafnvel þótt þau tvö myndu styðja van­traust­s­til­lög­una, og öll stjórn­ar­and­staðan líka, þá myndi það ekki duga til þess að fá hana sam­þykkta. Til þess þarf lík­ast til tvo stjórn­ar­þing­menn til við­bótar til að kjósa með henni. Hjáseta mun ekki duga.

Vantraust komst aftur í tísku

Van­traust­til­lögur hafa orðið ansi tíð fyr­ir­bæri á síð­ustu tíu árum. Á þeim tíma hafa verið lagðar fram fimm til­lögum um van­traust á rík­is­stjórnir í heild sinni. Allar til­lög­urnar hafa verið annað hvort felldar eða aft­ur­kall­aðar áður en að atkvæða­greiðsla fór fram. Síðast var lögð fram til­laga um van­traust á rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar árið 2016 í kjöl­far Panama-skjala­hneyksl­is­ins, en hún var felld. Fyrir banka­hrun hafði ekki komið fram van­traust­til­laga á rík­is­stjórn frá árinu 1994. Raunar hefur van­traust­til­laga á rík­is­stjórn ein­ungis einu sinni verið sam­þykkt, það var árið 1950.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár