Íslendingar auka sífellt plastnotkun

Plast­um­búðum á mark­aði á Íslandi fjölg­aði um 10 pró­sent á árunum 2014 til 2016.

Notkun plast­um­búða jókst á árunum 2014 til 2016 úr 13.660 tonnum í 15.029 tonn, eða um 10 pró­sent. Plast­um­búðir sem skil­uðu sér til end­ur­vinnslu voru 4.478 tonn árið 2014 og 6.411 tonn tveimur árum síðar. Plast­um­búðir sem skil­uðu sér til brennslu með orku­nýt­ingu voru 423 tonn árið 2014 og 666 tonn árið 2016. Plast­úr­gangur, þ.e. annar en plast­um­búðir, sem skil­aði sér til end­ur­vinnslu voru 193 tonn árið 2014 og 666 tonn tveimur árum síðar.

Þetta kemur fram í svari Guð­mundar Inga Guð­brands­sonar umhverfis- og auð­linda­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Olgu Margréti Cilia um mengun af völdum plast­notk­unar sem birt­ist á dög­unum. Í svar­inu kemur fram að áreið­an­legar tölur séu til frá End­ur­vinnsl­unni hf. og Úrvinnslu­sjóði yfir notkun plast­um­búða, þ.e. magn umbúða sem settar eru á markað og afdrif þeirra, til dæmis til end­ur­vinnslu. Ekki séu til áreið­an­legar tölur yfir notkun ann­ars plasts en plast­um­búða. Umhverf­is­stofnun safni þeim tölum saman frá þeim aðilum sem með­höndla úrgang.

Jafn­framt segir í svar­inu að erfitt sé að leggja mat á hversu stór hluti þetta er af þeim plast­úr­gangi sem fellur til þar sem tölur yfir notkun vantar og tölu­verður hluti plast­úr­gangs fer að öllum lík­indum með blönd­uðum úrgangs­straumum til förg­unar.

Flutt inn 156 kg af innkaupapokum úr plasti á síðasta ári

[links]Tekið er fram í svar­inu að nýlega hafi toll­flokkum fyrir plast­um­búðir verið skipt upp þannig að hægt yrði að safna tölu­legum upp­lýs­ingum um notkun einnota burð­ar­plast­poka hér á landi. Alls hafi verið flutt inn 156 kg af inn­kaupa­pokum úr plasti árið 2017. Magn­tölur fyrir inn­lenda fram­leiðslu af inn­kaupa­pokum úr plasti séu ekki fáan­legar enn.

„Ráðu­neyt­inu er ekki kunn­ugt um að fram hafi farið beinar mæl­ingar á mengun af völdum plast­notk­unar á Íslandi. Það er þó rétt að benda á verk­efni þar sem umfang úrgangs á ströndum er reglu­lega kannað. Plast er þar sér­stak­lega skoðað en athuga ber að upp­runi plast­s­ins er ekki endi­lega frá notkun á Íslandi, heldur berst hluti þess að öllum lík­indum að utan með haf­straumum. Verk­efnið er hluti af alþjóð­legu verk­efni á vegum OSPAR sem er samn­ingur um verndun Norð­austur-Atl­ants­hafs­ins.“

En hvað á að gera í mál­inu? Í svari ráð­herra segir hann að árið 2016 hafi ráð­herra gefið út stefnu um úrgangs­for­varnir, Saman gegn sóun, sem hefur það að mark­miði að draga úr myndun úrgangs og hrá­efn­is­notkun og bæta nýt­ingu auð­linda. Árin 2016 til 2017 hafi áherslan verið á að draga úr sóun mat­væla en næstu tvö ár verði áhersla lögð á að draga úr notkun plasts. Um þessar mundir vinni ráðu­neytið, í sam­vinnu við und­ir­stofn­anir, að útfærslu og fjár­mögnun til­lagna til að draga úr notkun plasts hér á landi.

Evrópusambandið ræðst gegn plastmengun

Kjarninn greindi frá því á dög­unum að Evr­ópu­sam­bandið hafi ein­sett sér að allar plast­um­búðir verði gerðar úr end­ur­vinn­an­legu efni fyrir árið 2030. Þannig verður dregið veru­lega úr notkun einnota plasts og skorður settar við notkun örplasts.

Áætlun ESB til að bregð­ast við plast­mengun er ætlað að vernda nátt­úr­una, verja íbú­ana og styrkja fyr­ir­tækin sam­kvæmt til­kynn­ingu frá sendi­nefnd Evr­ópu­sam­bands­ins á Íslandi.

„Ef við umbreytum ekki plast­notkun okkar og fram­leiðslu, verður meira af plasti en fiski í sjónum okkar árið 2050. Við verðum að koma í veg fyrir að plast kom­ist í vatnið okkar, mat­inn og jafn­vel í lík­ama okkar. Eina lang­tíma­lausnin er að draga úr plast­úr­gangi með því að end­ur­vinna meira og end­ur­nýta. Þetta er áskorun sem borg­ar­arnir, iðn­fyr­ir­tæki og stjórn­völd þurfa að tækla í sam­ein­ingu,“ er haft eftir Frans Timmermans, fyrsta vara­for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB, í til­kynn­ing­unni.

Minna en þriðj­ungur af því plasti sem Evr­ópu­búar fram­leiða ratar í end­ur­vinnslu. Plast­rusl er 85 pró­sent af draslinu sem finnst á strand­svæðum víða um ver­öld. Plast­efni er jafn­vel farið að koma sér fyrir í lungum fólks og á mat­ar­borð­inu. Það er örplast í lofti, vatni og fæð­unni og áhrif þess á heilsu okkar eru óþekkt. Evr­ópu­sam­bandið hyggst takast á við þessi úrlausn­ar­efni af fullri festu.

Örplast fannst í neysluvatni Reykvíkinga

Í frétt Kjarnans frá því í byrjun febr­úar að í vatns­sýnum sem safnað var úr vatns­veitu Veitna í Reykja­vík hafi komið í ljós að 0,2 til 0,4 plast­agnir fund­ust í hverjum lítra vatns. Eru þetta mun betri nið­ur­stöður en birtar voru í erlendri skýrslu um örplast í neyslu­vatni sem var í fréttum hér á landi á síð­asta ári. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Veitum. Sér­fræð­ingur sem Kjarninn tal­aði við segir að þrátt fyrir jákvæðar nið­ur­stöður þá beri að taka þær alvar­lega. Frekari rann­sókna sé þörf.

Örplast er heiti á plast­ögnum sem eru minni en 5 milli­metrar að þver­máli. Örplast getur ann­ars vegar verið fram­leitt örplast, sem til dæmis finnst í snyrti­vörum, eða örplast sem verður til við nið­ur­brot, til að mynda úr dekkjum, inn­kaupa­pokum eða fatn­aði.

Nið­ur­stöður mæl­inga Veitna sam­svara því að 1 til 2 slíkar agnir finn­ist í 5 lítrum vatns. Tekin voru stór sýni, eða 10 til 150 lítrar. Kom fram í fyrr­nefndri erlendri skýrslu að 83 pró­sent þeirra 159 sýna sem hún byggir á, og tekin voru víðs vegar í heim­inum, inni­héldu að með­al­tali tutt­ugu­falt og allt að 400-falt magn plast­agna miðað við það sem fannst í neyslu­vatni Reyk­vík­inga.

Lifum ekki í einangruðum heimi

Hrönn Jör­unds­dóttir, sviðs­stjóri og sér­fræð­ingur hjá MATÍS, sagði í sam­tali við Kjarnann að nauð­syn­legt væri að finna upp­sprettu örplasts, þ.e. hvaðan það komi. Hún sagði að þau hjá MATÍS væru að skoða þessi mál og að til stæði að birta skýrslu um örplast á Íslandi í náinni fram­tíð.

Varðandi nið­ur­stöður úr sýna­töku Veitna þá sagði hún að það væri jákvætt að lítið örplast hafi greinst í sýn­unum en á hinn bóg­inn þá væri það áhyggju­efni að plast­agnir hafi fund­ist yfir­höfuð. Þetta sýndi að örplast sé víðar en fólk geri sér grein fyrir. „Það verður að taka þetta alvar­lega, við erum ekki laus við þetta í okkar umhverfi frekar en aðrir,“ sagði hún og bætti því við að Íslend­ingar lifi ekki í ein­angr­uðum heimi og að þetta snerti okkur öll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár