„Við þurfum að vakna“ - Almenningur tók við sér en enn er langur vegur framundan

Plast­laus sept­em­ber er nú lið­inn undir lok en ætl­un­ar­verk­inu er hvergi nærri lokið. Aðstand­endur verk­efn­is­ins von­ast til að átakið muni leiða til minni plast­notk­unar til fram­búðar.

Verk­efnið Plast­laus sept­em­ber var árvekni-átak sem ætlað var að vekja fólk til umhugs­unar um ofgnótt og skað­semi plasts í umhverf­inu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. En þrátt fyrir að nú sé kom­inn októ­ber stendur til að halda áfram að vekja athygli á mál­staðnum.

Jóhanna Gísla­dóttir, for­maður stjórnar félags­ins í kringum verk­efnið og dokt­or­snemi í umhverfis- og auð­linda­fræði, segir að brýn þörf hafi rekið verk­efnið af stað. „Við Íslend­ingar notum svo mikið magn af einnota plasti og fáir pæla í því. Þetta er því mjög stórt vanda­mál eins og t.d. með örplastið og annað sem fer út í sjó í gíf­ur­legu magni,“ segir hún.

Hún telur að Íslend­ingar ættu að huga betur að umgengni við sjó­inn og að frá­rennsl­is­málum yfir­höfuð. Hún segir að kom­inn sé tími til að fólk losi sig við doð­ann sem fylgir afskipta­leys­inu.

[adspot]

Plast veldur skaða um ókomna tíð

Á vef­síðu átaks­ins www.plastlausseptember.is kemur fram að plast end­ist í þús­undir ára og sé því afar slæmur kostur fyrir einnota notkun. Plast brotnar niður á mjög löngum tíma og þá í örplast sem ekki er betra fyrir umhverfið. Plast er ein­göngu hægt að end­ur­vinna í annað plast af lélegri gæðum. Allt plast sem notað er og fer ekki í end­ur­vinnslu safn­ast fyrir á urð­un­ar­stöðum eða í nátt­úr­unni og veldur þar skaða um ókomna tíð.

Plast endar þannig allt of oft í nátt­úr­unni og þá sér­stak­lega í ám, vötnum og sjó. Plast dregur til sín ýmis meng­un­ar­efni og þegar það endar í vef líf­vera geta efnin þar með endað í fæðu manna. Mjúk­plast inni­heldur stundum horm­ón­arask­andi efni, til að mynda þalöt, sem eru skað­leg mann­fólki.

Setja þarf fé í frekari rannsóknir

Í byrjun sum­ars tóku fjórar nágranna­konur sig til í Foss­vog­inum og byrj­uðu að spjalla um þessa gengd­ar­lausu plast­notkun í sam­fé­lag­inu. Hug­myndin kom erlendis frá en átakið Plastic Free July var hrundið af stað í Ástralíu í júlí­mán­uði. Þessum konum datt í hug í fram­hald­inu að fara út í slíkt átak á Íslandi. Þær þéttu hóp­inn og fengu fleiri konur með sér sem höfðu áhuga á mál­efn­inu.

Þær sáu fljót­lega að ekki gekk að hafa slíkt átak yfir sum­arið og út varð að hafa sept­em­ber plast­lausan enda skól­arnir að byrja og haustið. „Sumarið fór að miklu leyti í að koma vef­síð­unni í loftið og skipu­leggja starf á sam­fé­lags­miðlum,“ segir Jóhanna. Þær fund­uðu með Land­vernd, Umhverf­is­stofnun og Reykja­vík­ur­borg til að kanna stöðu mála en hún segir að þær hafi lært mikið á þessu ferli.

Hópurinn fann fyrir miklum með­byr þrátt fyrir að fjöl­miðlar hafi óvænt ein­beitt sér að rík­is­stjórn­ar­slitum um miðjan sept­em­ber, að sögn Jóhönnu. Það hafi ekki haft áhrif á áhuga eða þátt­töku almenn­ings.

Jóhanna telur að meira aðhald þurfi frá stjórn­völdum hvað þessi mál varðar. Setja þarf skýr­ari reglur og þurfi stjórn­völd að setja fé í rann­sóknir á plast­notkun og hvað fari út í sjó­inn við strendur Íslands. „Við þurfum að fara að vakna,“ segir hún og bætir við að hún sjálf hafi ekki verið nægi­lega með­vituð um plast­notkun sína og afleið­ingar hennar áður en hún fór af stað með verk­efnið. „Þess vegna töldum við þörf á því að koma með árvekni-átak og vekja athygli á þessu,“ segir hún.

Plastlausar lausnir frekar en hræðsluáróður

Hópurinn hélt úti fyrr­nefndri vef­síðu þar sem hægt er að nálg­ast frek­ari upp­lýs­ingar um verk­efnið. Jóhanna segir að þær hafi ekki viljað vera með hræðslu­á­róður heldur koma með lausnir eða til­lögur að lausnum á jákvæðan hátt til að ná til fólks. Inn á síð­unni benda þær á ýmsar plast­lausar lausnir; hvað sé hægt að nota í stað­inn fyrir plast við hinar ýmsu aðstæður.

Þær voru einnig virkar á Facebook-síðu átaks­ins þar sem þær birtu færslur á hverjum degi með ráð­legg­ingum til fólks og deildu mynd­böndum og greinum frá öðrum. Einnig var til­gang­ur­inn að búa til sam­fé­lag í kringum verk­efnið þar sem fólk gæti spjallað saman og skipst á ráðum. Þær voru á mörgum sam­fé­lags­miðlum til þess að ná til sem flestra á öllum aldri.

Hópurinn vann sína vinnu að mestu leyti í sjálf­boða­starfi og segir Jóhanna að þetta hafi verið skemmti­legt starf. Þær hafi unnið mikið og segir hún að verk­efnið hafi gengið vonum framar. „Við­tök­urnar voru meiri en við bjugg­umst við,“ segir hún. Fjöl­miðlar hafi sýnt verk­efn­inu áhuga og vatt það upp á sig í fram­hald­inu. Þær fengu boð um að koma í fram­halds­skóla og halda fyr­ir­lestra á vinnu­stöðum en segir hún að þær hafi því miður ekki getað gert það vegna anna. Það sýni að almenn­ingur hafi haft áhuga á átak­inu.

Vitundarvakningu ekki lokið

[quote font="0" align="right“]Við erum að þessu af ástríðu og höfum allar brenn­andi áhuga á umhverf­is­málum almennt.[/quote]

Til stendur að halda áfram með verk­efnið og gera við­burð­inn árlegan. Jóhanna segir að best væri ef mann­eskja feng­ist í hund­rað pró­sent vinnu í sept­em­ber á næsta ári til að sinna öllu því sem þarf að sinna. Hún sér fyrir sér að hóp­ur­inn fari í frekara sam­starf við stofn­anir eða ein­stak­linga á næsta ári og að ýmsar hug­myndir gangi nú milli þeirra sem að átak­inu komu og fólks sem tók þátt í því.

Jóhann segir að vit­und­ar­vakn­ingin sé ekki lokið þrátt fyrir að sept­em­ber sé það. Hún fagni öllum breyt­ingum til batn­aðar, hvort sem um hug­ar­fars­breyt­ingu sé að ræða eða verk­lags­breyt­ingu hjá fyr­ir­tækjum eða sveit­ar­fé­lögum. Hún bendir einnig á að áhuga­vert verði að sjá hver muni sitja í rík­is­stjórn eftir næstu kosn­ingar, hver umhverfis- og auð­linda­ráð­herra verði og hvernig stefna verði tekin í umhverf­is­málum sem þessum.

Hún seg­ist þreytt eftir mán­uð­inn en þó sátt og sæl. Hópurinn muni taka sér frí í októ­ber til að fá and­rými en þrátt fyrir það séu þær hvergi nærri hættar. „Við erum að þessu af ástríðu og höfum allar brenn­andi áhuga á umhverf­is­málum almennt,“ segir hún. Hún segir að lokum að þær séu í þessu til fram­búðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár