Örplast finnst í vatni í Reykjavík - Mörgum spurningum ósvarað

Í vatns­sýnum sem safnað var úr vatns­veitu Veitna í Reykja­vík kom í ljós að 0,2 til 0,4 plast­agnir fund­ust í hverjum lítra vatns. Örplast er heiti á plast­ögnum sem eru minni en 5mm að þver­máli.

Í vatns­sýnum sem safnað var úr vatns­veitu Veitna í Reykja­vík kom í ljós að 0,2 til 0,4 plast­agnir fund­ust í hverjum lítra vatns. Eru þetta mun betri nið­ur­stöður en birtar voru í erlendri skýrslu um örplast í neyslu­vatni sem var í fréttum hér á landi á síð­asta ári. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Veitum. Sér­fræð­ingur sem Kjarninn tal­aði við segir að þrátt fyrir jákvæðar nið­ur­stöður þá beri að taka þær alvar­lega. Frekari rann­sókna sé þörf.

Örplast er heiti á plast­ögnum sem eru minni en 5 milli­metrar að þver­máli. Örplast getur ann­ars vegar verið fram­leitt örplast, sem til dæmis finnst í snyrti­vörum, eða örplast sem verður til við nið­ur­brot, til að mynda úr dekkjum, inn­kaupa­pokum eða fatn­aði.

Nið­ur­stöður mæl­inga Veitna sam­svara því að 1 til 2 slíkar agnir finn­ist í 5 lítrum vatns. Tekin voru stór sýni, eða 10 til 150 lítrar. Kom fram í fyrr­nefndri erlendri skýrslu að 83 pró­sent þeirra 159 sýna sem hún byggir á, og tekin voru víðs vegar í heim­inum, inni­héldu að með­al­tali tutt­ugu­falt og allt að 400-falt magn plast­agna miðað við það sem fannst í neyslu­vatni Reyk­vík­inga.

Lifum ekki í einangruðum heimi

Hrönn Jör­unds­dóttir, sviðs­stjóri og sér­fræð­ingur hjá MATÍS, segir að nauð­syn­legt sé að finna upp­sprettu örplasts, þ.e. hvaðan það komi. Hún segir að þau hjá MATÍS séu að skoða þessi mál og að til standi að birta skýrslu um örplast á Íslandi í náinni fram­tíð.

Varðandi nið­ur­stöður úr sýna­töku Veitna þá segir hún að það sé jákvætt að lítið örplast hafi greinst í sýn­unum en á hinn bóg­inn þá sé það áhyggju­efni að plast­agnir hafi fund­ist yfir­höfuð. Þetta sýni að örplast sé víðar en fólk geri sér grein fyrir. „Það verður að taka þetta alvar­lega, við erum ekki laus við þetta í okkar umhverfi frekar en aðrir,“ segir hún og bætir við að Íslend­ingar lifi ekki í ein­angr­uðum heimi og að þetta snerti okkur öll.

Telja rétt að hafa fyrirvara

Þrátt fyrir að þessar nið­ur­stöður gefi vís­bend­ingar um ágæta stöðu þarf að taka þeim með fyr­ir­vara, segir í til­kynn­ingu Veitna. Ástæðan fyrir því sé að ekki er til við­ur­kennd sýna­töku- og grein­ing­ar­að­ferð þegar kemur að rann­sóknum á örplasti í neyslu­vatni. Til að minnka skekkju sem getur orðið vegna söfn­unar, með­höndl­unar og taln­ingar á litlum sýnum hafi verið ákveðið að taka mun stærri sýni en í erlendu rann­sókn­inni sem nefnd er að ofan. Raunar hafi höf­undar hennar bent á að sýni þeirra hafi verið lítil og hafi til­kynnt að nú standi yfir fram­halds­rann­sóknir sem stand­ast eðli­legar vís­inda­legar kröfur.

„Við vitum ekki til þess að áður hafi verið skoðað hvort örplast sé að finna í neyslu­vatni hér á landi. Því er eng­inn sam­an­burður til fyrir vatn ann­ars staðar á land­inu. Engar reglu­gerðir eru til um örplast í neyslu­vatni, ekki eru til við­mið­un­ar­mörk, engin krafa er um hreinsun örplasts úr neyslu­vatni og ekki er til heild­stætt mat á magni og upp­runa plasts í umhverf­inu,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Enn fremur kemur fram að Veitur muni halda áfram að fylgj­ast með örplasti í neyslu­vatni Reyk­vík­inga og vís­inda­legri umræðu hér á landi og í útlöndum um mál­efnið. Hún sé að þroskast eins og gagn­rýni á áður­nefnda alþjóð­lega rann­sókn sýnir.

Mörgum spurningum ósvarað

Inga Dóra Hrólfs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Veitna, segir í sam­tali við Kjarnann að erfitt sé að segja til um hvaðan þetta örplast komi. Hún bendir á að ekki sé til stöðluð rann­sókn­ar­að­ferð og þar af leið­andi sé erfitt að bera saman nið­ur­stöður úr rann­sóknum. „Við vitum hrein­lega ekki hvernig örplast kemst í vatnið eða nákvæm­lega hvaðan það kemur,“ segir hún.

Veitur greindu hvort um væri að ræða þræði, brot og flögur en vegna skorts á rann­sóknum segir Inga Dóra að ómögu­legt sé að draga nákvæma ályktun hvaðan örplastið komi.

Enn fremur segir hún að afleið­ingar örplasts á heilsu séu óljósar, hvenær það verði skað­legt og jafn­vel hvort eða hversu mikið sé af því í and­rúms­loft­inu. Mörgum spurn­ingum sé því ósvarað en bætir hún við að mæl­ingar sem þessar séu fyrsta skrefið í átt að svörum.

Örplast fer beint út í sjó

[links]Sumarið 2016 vann MATÍS skýrslu um losun örplasts með skólpi í sam­starfi við Sænsku umhverf­is­rann­sókn­ar­stofn­un­ina (IVL), Finnsku umhverf­is­stofn­un­ina (SYKE) og Aalto-háskól­ann í Finn­landi. Rann­sakað var hvort skólp­hreinsi­stöðvar væru gátt fyrir öragnir út í umhverfið. Plast­agnir mynd­ast með tvenns konar hætti, eins og áður segir, ann­ars vegar með nið­ur­broti af stærra plasti og hins vegar geta þetta verið öragnir sem not­aðar eru í til dæmis snyrti­vörur.

Að mati sér­fræð­inga ógna þær líf­ríki hafs­ins en í skýrsl­unni er greint frá því að eina hreins­unin sem fram­kvæmd er á Íslandi, meðal ann­ars í Kletta­garða­stöð­inni og skólp­hreinsi­stöð­inni í Hafn­ar­firði, sé gróf­síun. Agnir sem eru minni en milli­metri og niður í hund­rað míkró­metra fara gegnum stöðv­arnar og út í umhverfið. Annað er upp á ten­ingnum í Svíþjóð og Finn­landi þar sem 99 pró­sent öragna setj­ast í óhrein­indin sem skilj­ast frá frá­veitu­vatni eftir for­hreinsun. Ljóst er því að úrbóta er þörf í hreinsi­stöðvum á Íslandi.

Hrönn Jör­unds­dóttir vann að skýrsl­unni en hún sagði í sam­tali við Kjarnann á síð­asta ári að rann­sóknir á örplasti væru til­tölu­legar nýjar af nál­inni og því væri enn verið að bæta við þekk­ing­una á þessu sviði. Áhrif stærra plasts væru aug­ljós­ara og þess vegna væri örplastið lúm­skara ef svo mætti að orði kom­ast og smæð þess því sér­stakt áhyggju­efni. Hún sagði að örplast væri talið hafa tvenns konar áhrif á umhverfið. Í fyrsta lagi inni­heldur plast fjölda óæski­legra efna. Mikið af efna­sam­böndum væru í plasti, eins og mýk­ing­ar­efni og lit­ar­efni, sól­ar­vörn og svo fram­vegis, sem geta lekið úr því. Það gæti gerst inni í lík­ama dýr­anna og þá væru meng­andi efnin komin inn í fæðu­keðju okkar. Plast væri í eðli sínu feitt efni og mengun í sjónum sem er fitu­sækin sæki í plastið. Það drægi í raun í sig meng­andi efni úr sjónum sem geta losnað þegar þau koma inn í lík­amann.

Í öðru lagi sagði hún að áhrifa gæti sem minna hefðu verið rann­sökuð og vitað væri um. Hrönn sagði að hugs­an­lega hefði plast­ögnin sjálf áhrif á líf­verur. Þegar plast­ögnin væri orðin mjög lítil þá getur hún mögu­lega kom­ist yfir þarma­vegg­ina, út úr þörm­unum og inn í blóð­rás­ina. Og þegar hún væri farin að flakka um lík­amann með blóð­rásinni þá geti hún kom­ist hvert sem er. Ekki er vitað um áhrifin af því, að sögn Hrannar, og erfitt að meta.

Hrönn sagði að Íslend­ingar yrðu að hugsa skólp­hreinsun upp á nýtt og fara að taka ábyrgð á þessum hlutum. Ekki væri ein­ungis mik­il­vægt að huga að líf­rænni mengun heldur yrði að skilja að plast­agnir og lyfja­leifar úr skólp­inu sem fer út í sjó og mengar út frá sér. Plastið brotni ekki niður og því hverfi vanda­málið ekki þrátt fyrir að því væri dælt út í sjó.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vatn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár