Grunnvatn mikilvægt fyrir líf í náttúru Íslands og daglegt líf fólks

Neyslu­vatn hefur gjarnan verið talið mjög gott á Íslandi en hvernig er málum háttað í sam­bandi við grunn­vatns­stöðu á land­inu? Sér­fræð­ing­arnir Davíð Egilson og Kristín Vala Ragn­ars­dóttir greina frá stöð­unni.

Grunnvatn er ekki síst mikilvægt fyrir sakir náttúruverndar en lindarsvæðin eru víða fallegustu svæðin á landinu.
Grunn­vatn er ekki síst mik­il­vægt fyrir sakir nátt­úru­verndar en lind­ar­svæðin eru víða fal­leg­ustu svæðin á land­inu. Mynd: Bára Huld Beck

Íslend­ingar geta stært sig af góðu vatni en 97 pró­sent drykkj­ar­vatns á Íslandi er grunn­vatn. Þess vegna er eft­ir­lit tölu­vert, til dæmis á vegum Umhverf­is­stofn­unar, heil­brigð­is­eft­ir­lita sveit­ar­fé­lag­anna, Veð­ur­stof­unnar og fleiri stofn­ana.

Veð­ur­stofan fylgist með álags­þáttum á grunn­vatn og heil­brigð­is­eft­ir­litin með gæði neyslu­vatns. Grunn­vatni stafar í heild ekki mikil hætta af búsetu og athöfnum manns­ins en þó er vatns­taka í tals­verðum til­fellum umtals­verður álags­þáttur. Helst fylgir mengun búsetu fólks og eru stað­bundin áhrif af henni á stöku stað. Fá dæmi sýna fram á að land­bún­aður, og land­notkun tengt honum, hafi mikil áhrif á gæði grunn­vatns.

Ekki má van­meta áhrif orku­vinnslu á grunn­vatn, hvort sem um er að ræða nýt­ingu háhita eða vatns­aflsvikj­anir. Myndun uppi­stöðu­lóna hefur umtals­verð áhrif á grunn­vatns­stöðu. Almennt séð verður að gæta þess­arar auð­lindar vel enda er um mjög sér­stakt fyr­ir­brigði að ræða sem á fáa sína líka í heim­inum. Þetta kemur fram í grein­ar­gerð um álags­þætti á gunn­vatn.

Nánast allt neysluvatn Íslendinga grunnvatn

Grunn­vatn er gríð­ar­lega mik­il­vægt fyrir líf í nátt­úru Íslands og fyrir dag­legt líf fólks. Davíð Egilson, hóp­stjóri vatna­rann­sókna hjá Veð­ur­stofu Íslands, segir að fyrir því séu fjórar meg­in­á­stæður. Í fyrsta lagi beri að nefna drykkj­ar­vatn í því sam­hengi. Drykkj­ar­vatn Íslend­inga sé að langstærstum hluta grunn­vatn en slíkt vatn sé að mestu leyti úrkoma og leys­ing­ar­vatn sem sigið hefur niður í jörð­ina. Jarð­lögin sem það rennur um á leið sinni síi úr því óhrein­indin og sé það því alla jafna ferskt og ómengað.

Í öðru lagi segir Davíð grunn­vatnið skipta máli vegna orku­nýt­ingar. Fram­leiðsla orku þurfi að upp­fylla þarfir not­enda. Rennsli drag- og jök­uláa sé mjög breyti­legt eftir árs­tíðum. Það sé mest á vorin og sumrin og oft sé lítið vatn á vetrum þegar mikil þörf er á raf­orku. Þess vegna þurfi að byggja uppi­stöðu­lón eins og til dæmis Hálslón til að miðla rennsl­inu. Grunn­vatnið og lind­irnar séu hins vegar stöðugar yfir árið. Þess vegna þurfi mun minna að miðla og hægt sé að nýta renn­andi vatnið eins og það er.

[links]Í þriðja lagi segir hann að grunn­vatn sé stundum eins konar orku­beri. Grunn­vatni sé dælt upp við Svarts­engi, Hell­is­heið­ar­virkjun og Nesja­valla­virkjun til að breyta sjóð­andi gufu yfir í heitt vatn sem veitt er til neyt­enda. Í fjórða lagi, sem er afar mik­il­vægt fyrir mjög marga, snú­ist þetta um nátt­úru­vernd vegna þess að linda­svæðin séu víða fal­leg­ustu svæðin á land­inu, órofa tengd kyrrð og ósnortnu umhverfi.

Samkvæmt grein­ar­gerð um álags­þætti á grunn­vatn sem unnin var á vegum Veð­ur­stofu Íslands renna um 5.000 rúmmetrar af vatni á sek­úndu af land­inu og þar af um 1.000 rúmmetrar af grunn­vatni. Stærsti hluti grunn­vatns­ins, eða um 600 rúmmetrar á sek­úndu, kemur fram sem lind­ar­vatn á hálend­inu og sam­ein­ast jökul- og dragám þar. Afgang­ur­inn, um 400 rúmmetrar á sek­úndu, kemur fram í lindum á lág­lend­inu.

[adspot]

Jöklarnir forðabú fyrir grunnvatn

Yngstu jarð­lögin sem eru að mestu bundin við eld­virka beltið eru gropn­ust og þar á vatn auð­veld­ara með að hripa niður og mynda grunn­vatn en þar sem bergið er eldra og þétt­ara eins og á Aust- og Vest­fjörðum og Mið-Norð­ur­landi. Grunn­vatns­öflun á eld­virkni­belt­inu er því til þess að gera auð­veld. Víða er hins vegar nokkrum vand­kvæðum bundið að ná í lind­ar­vatn á eldra berg­inu. Sums staðar er það þó hægt með því að leita í stórar jarð­vegs­skriður, áreyrar eða sprungur til að fá grunn­vatn og í ein­staka til­felli þarf að nota yfir­borðs­vatn. Íslend­ingar eru afar vel settir þar sem 97 pró­sent af neyslu­vatni þeirra er grunn­vatn.

Davíð segir að lega lands­ins skipti veru­legu máli varð­andi úrkomu og þar af leið­andi afrennsli. Mikinn raka reki yfir landið vegna þeirra tveggja sjáv­ar­strauma sem liggja að land­inu. Hann segir að jökl­arnir séu eins konar forðabú fyrir afrennsli og þar með talið grunn­vatn. Við hlýn­andi lofts­lag minnki jöklar og tíma­bundin aukn­ing verði á afrennsli meðan leys­ingin varir. Eftir það muni draga úr afrennsli af land­inu.

Hann segir að for­spá veð­ur­farslík­ana bendi til þess að úrkoma verði um 6.000 rúmmetrar á sek­úndu árið 2100 vegna loft­lags­breyt­inga. Jökl­arnir muni bráðna meira og hlýrra verði í veðri. Hins vegar sé mun erf­ið­ara að segja til um víð­tæk­ari áhrif eins og öfgar í veð­ur­fari eða breyt­ingu á sjáv­ar­straumum sem gætu haft afger­andi áhrif á líf í land­inu.

Tvö grunnvatnshlot í hættu

Árið 2013 kom út Stöðu­skýrsla vatns á Íslandi þar sem könnuð var mengun í íslenskum vötnum. Skýrslan er einn hluti inn­leið­ingar vatna­til­skip­unar Evr­ópu­sam­bands­ins og laga um stjórn vatna­mála. Talað er um sér­stök grunn­vatns­hlot en það er afmörkuð stjórn­un­ar­ein­ing fyrir grunn­vatn sam­kvæmt lögum um stjórn vatna­mála. Þar kemur fram að tvö grunn­vatns­hlot eru metin í hættu á að stand­ast ekki umhverf­is­mark­mið um gott ástand. Þau eru Rosmhvala­nes á Suð­ur­nesjum, stundum kallað Miðnes, og Tjörnin í Reykja­vík.

Á Suð­ur­nesjum hefur orðið mengun á grunn­vatni vegna úrgangs og umsvifa á flug­vell­inum og ekki er búið að upp­ræta þá mengun enn þrátt fyrir að hún hafi minnkað sums staðar. Á mörgum stöðum á land­inu ríkir óvissa varð­andi mengun og stafar hún af margs konar ástæðum, svo sem vegna óhreins­aðs skólps, hugs­an­legs leka meng­un­ar­efna, hættu á upp­söfnun efna vegna fisk­eldis, efna­meng­unar vegna los­unar affalls­vatns frá jarð­varma­virkj­unum eða þegar mæli- og rann­sókn­ar­gögn vantar.

Neysluvatn lakara hjá minni veitum

Kristín Vala Ragn­ars­dóttir, pró­fessor í sjálf­bærni­vís­indum við Háskóla Íslands, hefur und­an­farin ár unnið í málum tengdum sjálf­bærni en hún er menntuð í jarð­efna­fræði og jarð­vís­indum. Hún segir að staðan á Íslandi sé góð varð­andi vatn því lands­menn séu heppnir að hér rignir og snjóar mikið þannig að á flestum stöðum á land­inu sé vatn ekki beint vanda­mál. Hún nefnir sér­stak­lega Reykja­vík­ur­svæðið þar sem fólk fær allt þetta mikla og góða vatn úr Blá­fjöll­unum yfir í Gvend­ar­brunna þar sem vatnið er tekið. Hún bendir á að drykkj­ar­vatn á svæð­inu sé því mjög gott.

Heil­brigð­is­eft­ir­lit sveit­ar­fé­lag­anna sjá um að mæla gæði neyslu­vatns á hverjum stað fyrir sig. Í svari við fyr­ir­spurn til Heil­brigð­is­eft­ir­lits Reykja­víkur kemur fram að í reglu­bundnu eft­ir­liti séu tekin yfir 100 sýni úr vatns­bólum og dreifi­kerf­inu sem síðan eru rann­sökuð sam­kvæmt reglu­gerð um neyslu­vatn frá árinu 2001. Mat­væla­stofnun sér um að safna upp­lýs­ingum saman um gæði neyslu­vatns en síð­ustu eft­ir­lits­nið­ur­stöður komu út í mars 2015 fyrir árin 2002-2012. Þar kemur fram að sam­an­tekt nið­ur­staðna fyrir þetta tíma­bil sýni að örveru­á­stand sé í flestum til­fellum mjög gott hjá stærri vatns­veitum en lak­ara hjá minni veitum sem þjóna færri en 500 íbúum. Þá sé efna­fræði­legt ástand neyslu­vatns á land­inu almennt mjög gott og sjald­gæft að eit­ur­efni grein­ist í vatn­inu.

Heild­ar­út­tektir, sem bæði ná yfir örveru­á­stand og efna­inni­hald, eru flestar frá vatns­veitum sem þjóna fleiri en 500 íbúum og upp­fylla veit­urnar í nær öllum til­vikum kröfur neyslu­vatns­reglu­gerðar sam­kvæmt nið­ur­stöðum. Við reglu­bundið eft­ir­lit á árunum 2010 til 2012 greind­ist E.coli í innan við 1 pró­sent sýna hjá vatns­veitum sem þjóna fleirum en 500 manns. Hins vegar greind­ist E.coli í 6,5 pró­sent sýna frá vatns­veitum sem þjóna 500 íbúum eða færri. Segir í sam­an­tekt nið­ur­staðn­anna að lakast hafi ástandið verið á Aust­ur­landi og Vest­fjörðum, þar sem mun erf­ið­ara sé að nálg­ast grunn­vatn en í öðrum lands­hlutum. Þá skýrist mun­ur­inn milli stærri og minni vatns­veitna meðal ann­ars af miklum fjölda lít­illa einka­veitna til sveita, þar sem frá­gangi vatns­bóla er enn ábóta­vant. Samkvæmt Mat­væla­stofnun stendur til að gefa út nýja sam­an­tekt næsta haust eða í byrjun næsta árs.

En þrátt fyrir gott neyslu­vatn hefur Kristín Vala áhyggjur af áherslum Íslend­inga und­an­farna ára­tugi í sam­bandi við nátt­úr­una en hún telur að sú stefna sem felur í sér að nýta nátt­úr­una, veiða fisk­inn úr sjónum, virkja árnar og jarð­hita­kerfin til að fram­leiða orku sé ekki heilla­drjúg. Hún telur að Íslend­ingar ættu að hlúa mun betur að nátt­úr­unni.

Hún segir að á nokkrum svæðum þurfi að vanda vel til verka og var­ast að ofnýta vatnið. Þetta séu svæði við sjó og á nesjum, til dæmis á Reykja­nesi og Snæ­fells­nesi og víðar, en hún bendir á að á þessum svæðum sé aðeins þunn grunn­vatns­l­insa ofan á salt­vatn­inu.

Hægt er að lesa nánar um stöðu vatns á Íslandi í umfjöllun Kjarnans „Bláa gullið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vatn

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár