Kínverjar vilja ekki lengur ruslið

Þegar tóm jógúrt­dósin flaug ofan í rusla­dall­inn í skápnum undir eld­hús­vask­inum velti sá sem spændi upp úr dósinni því sjaldn­ast fyrir sér hvað varð um hana. Dós­ar­innar beið hins vegar langt ferða­lag, alla leið til Kína.

Á und­an­förnum ára­tugum hefur notkun plasts auk­ist mikið. Umbúðir um flest sem nöfnum tjáir að nefna eru úr plasti: mat­vörur, drykki og sæl­gæti, fatnað, hús­búnað, snyrti­vörur og fleira. Leikföng, ílát undir mat, eld­hús­á­höld og margt margt fleira er fram­leitt úr plasti, að ógleymdum burð­ar­pokum versl­ana. Plastið er, að margra mati, undra­efni og notkun þess mjög útbreidd um allan heim. Þægilegt, til margra hluta nyt­sam­legt og fremur ódýrt. Plast er eig­in­lega sam­heiti yfir all­mörg mis­mun­andi efni, sem eiga það flest sam­eig­in­legt að vera unnin úr olíu sem ýmsum efnum er svo blandað saman við, eftir því hvaða eig­in­leikum sóst er eftir.

Kostirnir eru jafnframt ókostir

Meðal kosta plast­s­ins má nefna að það er sterkt og end­ing­ar­gott. Fyrir all­löngu upp­götv­uðu drykkj­ar­vöru­fram­leið­endur þessa kosti. Plast­flöskur brotna ekki þótt þær detti í göt­una, þær eru létt­ari og með­færi­legri en (gamla) glerið. Nokkru eftir að notkun plasts varð almenn­ari og útbreidd­ari kom í ljós að þetta undra­efni var ólíkt mörgum öðrum að því leyti að það eydd­ist ekki, hvorki fún­aði né ryðg­aði. Var end­ing­ar­betra en flesta hafði grunað. Í upp­hafi olli það ekki áhyggjum, meng­un­ar­um­ræðan var ekki hafin og end­ur­vinnsla nán­ast óþekkt.

En þessir áður­nefndu kostir eru jafn­framt helstu ókostir plast­efn­anna. Plast­poki sem fleygt er á jörð­ina hverfur kannski fljót­lega af yfir­borð­inu, ofan í jörð­ina, en hann eyð­ist ekki. Slíkt tekur ára­tugi, jafn­vel hund­ruð ára.

Eins rusl getur verið annars brauð

Alllangt er síðan fyrst fóru að heyr­ast raddir um end­ur­nýt­ingu. Margir þekktu vita­skuld fyr­ir­bærið þótt orðið væri óþekkt. Barnaföt, sem ganga milli fjöl­skyldna, barna­rúmið, kerrur, reið­hjól, leik­föng svo fátt sé nefnt, allt er þetta end­ur­nýt­ing. Síðar kom svo það sem nú er þekkt víða um lönd: hinir svoköll­uðu nytja­mark­aðir þar sem flest milli him­ins og jarðar er fáan­legt. Annað en plast og umbúðir. Það fór bara í tunn­una og var svo annað hvort urðað eða brennt. Þannig er það reyndar víða enn. En að því kom að farið var að tala um end­ur­vinnslu, og þá beindust sjónir manna einkum að plast­inu, og pappír. Þótt margt hafi verið rætt og ritað um hvernig hægt væri að end­ur­vinna plast og papp­írs­vörur hefur það reynst meira en að segja það. Margar þjóðir hafa náð góðum árangri í að safna plasti og pappír en hafa hins vegar verið í vand­ræðum með að end­ur­vinna það gríð­ar­lega magn sem berst að. Þarna hafa Kín­verjar séð sér leik á borði.

70 milljónir tonna

Um ára­bil hafa fjöl­mörg lönd sent plast, pappír og ýmis­legt annað, sem flokk­ast undir sorp, til Kína. Þessi útflutn­ingur hefur farið vax­andi ár frá ári og í hitteð­fyrra (nýrri tölur ekki til) tóku Kín­verjar á móti um það bil 70 milljón tonnum af plasti, pappír og fleiru til end­ur­vinnslu, eða urð­unar. Af þessu hafa Kín­verjar haft umtals­verðar tekjur og sendendur hafa losnað við „vanda­málið“.

Kínverjar hafa skellt í lás

Um mitt síð­asta ár til­kynntu kín­versk stjórn­völd að frá og með ára­mótum 2017- 18 yrði hætt að taka á móti 24 „teg­undum“ sorps til end­ur­vinnslu. Þar á meðal plasti, pappa og pappír og fatn­aði. „Við viljum ekki vera rusla­haugur heims­ins“ sagði kín­verskur ráð­herra í við­tali þegar ákvörðun stjórn­valda var kynnt.

Aðhöfðust ekkert

Þrátt fyrir að Kín­verjar hafi gert „við­skipta­vinum“ sínum grein fyrir ákvörðun sinni með hálfs árs fyr­ir­vara virð­ist sú til­kynn­ing hafa farið fyrir ofan garð og neðan hjá flestum þeirra. Þótt nú sé ein­ungis hálfur annar mán­uður síðan Kín­verjar stöðv­uðu inn­flutn­ing­inn er plast og pappír þegar farið að safn­ast upp í mörgum löndum. Bretar sendu tæp­lega 3 millj­ónir tonna af plasti til Kína á síð­asta ári, breska stjórnin við­ur­kennir að hún viti ekk­ert hvað nú sé til ráða, sömu sögu er að segja frá Banda­ríkj­unum, Ástralíu og fleiri löndum. Vegna þess hve ódýrt og auð­velt það hefur verið að senda sorpið til Kína hafa margar þjóðir ekki lagt mikla áherslu á að finna lausnir í end­ur­vinnslu­málum. Í dag­blaðsvið­tali sagði þýskur ráð­herra að „fyrir 40 árum hefði kannski þótt í lagi að kveikja bara í haugnum, það gengur ekki í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár