Eignum verði ráðstafað til greiðslu lífeyrisskuldbindinga ríkisins

Verð­mætar eignir komu í fang rík­is­ins frá slita­búum bank­anna. Lind­ar­hvoll, dótt­ur­fé­lag rík­is­ins, hefur haldið utan um þær eignir.

Til greina kemur að nýta ósölu­hæfar eignir Lind­ar­hvols ehf., félags íslenska rík­is­ins sem heldur á eignum sem komu í fang þess frá slita­búum föllnu bank­anna, til þessa að greiða inn á líf­eyr­is­skuld­bind­ingar rík­is­ins. Þannig mætti hámarka virði þeirra fyrir rík­is­sjóð.

Þetta kemur fram í grein­ar­gerð um starf­semi Lind­ar­hvols til Alþingis. Í grein­ar­gerð­inni er fjallað um starf­semi Lind­ar­hvols í stórum dróttum, og hvernig hefur fengið að vinna úr þeim eignum sem komu til ríks­ins í gegnum stöð­ug­leika­fram­lag frá slita­bú­unum.

Risavaxnar fjárhæðir

Óhætt er að segja að skatt­greið­endur eigi mikla hags­muni í starf­semi Lind­ar­hvols og að þar sé vandað til verka við hámarka virði eigna. Í fang rík­is­ins komu eignir upp á 384,3 millj­arða króna, mest mun­aði þar um 95 pró­sent eign­ar­hlut í Íslands­banka og veð­skulda­bréf og afkomu­skipta­samn­ingur vegna Arion banka, upp á sam­tals ríf­lega 105 millj­arða króna.

Aðrar eignir nema, þar á meðal hluta­fjár­eignir, lán og aðrar eignir, nema tæp­lega 100 millj­örðum króna. Allt laust fé sem borist hefur félag­inu rennur inn á reikn­ing félags­ins hjá Seðla­banka Íslands.

Í grein­ar­gerð­inni segir að sam­tals hafi um 140 millj­arðar króna runnið inn á reikn­ing­inn í Seðla­bank­anum frá því árið 2016. „Frá því í febr­úar 2017 og fram til ágúst­loka hafa greiðslur inn á stöð­ug­leik­a­reikn­ing­inn numið 56.448 millj­ónum króna. Staðan á reikn­ingnum þann 3. febr­úar var 6.641 milljón króna. Alls hefur 58.700 millj­ónum verið ráð­stafað til nið­ur­greiðslu skulda á tíma­bil­inu, skulda­bréf sem rík­is­sjóður gaf út til end­ur­fjár­mögn­unar Seðla­banka Íslands var greitt upp að fullu en eft­ir­stöðvar þess námu 28,5 ma.kr. Þá voru um 30 ma.kr. ráð­stafað til upp­kaupa á skulda­bréfa­flokknum RIKH 18 sem rík­is­sjóður gaf út til end­ur­fjár­mögn­unar fjár­mála­stofn­ana. Sam­an­dregið frá því að fram­sal stöð­ug­leika­eign­anna átti sér stað í upp­hafi árs 2016 og til og með 25. ágúst 2017 hafa greiðslur inn á stöð­ug­leik­a­reikn­ing­inn ásamt greiðslum inn á reikn­inga dótt­ur­fé­laga numið sam­tals ríf­lega kr. 140 ma.kr. Þar af var 17 ma.kr. ráð­stafað til rík­is­sjóðs til að mæta töp­uðum banka­skatti og um 120 ma.kr. hefur verið ráð­stafað til nið­ur­greiðslu skulda,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Samkeppniseftirlitið hindraði sölu á Lyfju

Meðal óskráðra hluta­bréfa­eigna Lind­ar­hvols er Lyfja hf. sem rekur lyfja­versl­anir um allt land. Félagið fór í opið sölu­ferli haustið 2016 og var til­boði Haga hf. tekið þar sem það reynd­ist hæst, upp á 6,7 millj­arða króna.

Kaupin voru með fyr­ir­vara um sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, en í júlí mán­uði var ljóst að ekki yrði af kaupum Haga á Lyfju þar sem Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafn­aði sam­runa félag­anna. Lind­ar­hvoll heldur því enn á þess­ari eign fyrir hönd rík­is­ins.

Á næstu vikum mun stjórn Lind­ar­hvols ehf. meta næstu skref í mál­inu, segir í grein­ar­gerð­inni. „Að mati Lind­ar­hvols ehf. er ekki talið heppi­legt að setja önnur óskráð hluta­bréf í umsýslu þess í sölu­ferli að svo stöddu þar sem slík sala muni ekki verða til þess að hámarka verð­mæti við­kom­andi hluta­bréfa m.a. vegna eðli eign­anna og ann­arra þátta sem snúa sér­stak­lega að ein­stökum eignum í þessum eigna­flokki,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár