Íslenska ríkið reynir að koma í veg fyrir að sérfræðingur verði skipaður

Már Guðmundsson seðlabankastjóri. Seðlabankinn hélt tvö aflandskrónuútboð í sumar á grunni laga sem samþykkt voru fyrr á þessu ári.
Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri. Seðla­bank­inn hélt tvö aflandskrón­u­út­boð í sumar á grunni laga sem sam­þykkt voru fyrr á þessu ári. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Íslenska ríkið reynir nú að koma í veg fyrir að hér­aðs­dómur Reykja­víkur skipi sér­fræð­inga til að meta hvort ríkið hefði efna­hags­legar for­sendur fyrir því að neita að skipta aflandskrónum tveggja banda­rískra vog­un­ar­sjóða á mark­aðs­gengi í aflandskrón­u­út­boði sem fram fór í júní. Lögmenn stjórn­valda hafa fengið frest til þess að skila inn frek­ari skrif­legum rök­stuðn­ingi fyrir því að það eigi ekki að skipa sér­fræð­inga í mál­inu. Bloomberg greinir frá.

Seðla­banki Íslands hélt tvö aflandskrón­u­út­boð í júní þar sem eig­endum aflandskróna bauðst að skipta þeim yfir í evrur gegn afslætti. Fjöldi banda­rískra sjóða sem eiga slíkar ákváðu að taka ekki þátt í útboð­unum tveim­ur, en í því síð­ari bauðst bank­inn til að kaupa krónur þeirra fyrir 190 krónur á hverja evru. Fjár­­hæð sam­­þykktra til­­­boða í báðum útboð­unum var 83 millj­­arðar króna og hækk­­aði ein­ungis um fimm millj­­arða króna milli útboða. Alls voru 188 millj­­arðar króna boðnir í útboð­inu en heild­­ar­um­­fang aflandskrón­u­vand­ans var fyrir það um 319 millj­­arðar króna.

Tveir sjóðir, Eaton Vance Corp. og Autonomy Capital LP, sættu sig ekki við að eignir þeirra hafi verið settar inn á nær vaxta­­lausa reikn­inga í refs­ing­­ar­­skyni fyrir að taka ekki þátt í útboð­unum á því gengi sem Seðla­­bank­inn bauð þeim, og var umtals­vert undir mark­aðs­gengi. Þess í stað fólu sjóð­irnir lög­­­manni sínum að kanna grund­­völl fyrir mög­u­­legri máls­höfðun á hendur íslenska rík­­inu auk þess sem þeir hafa kvartað til Eft­ir­lits­­stofn­unar EFTA (ESA) vegna laga­­setn­ingar sem sam­­þykkt voru aðfara­nótt 23. maí síð­­ast­lið­ins, og þeir telja að feli í sér eign­­ar­­upp­­­töku og brot á jafn­­ræð­is­­reglu. Fyrsta skrefið í þeirri við­leitni var að fara fram á það við hér­aðs­dóm Reykja­víkur að sér­fræð­ingar verði skip­aðir til að fara yfir lög­mæti þeirra aðgerða sem fram­kvæmdar voru gegn aflandskrónu­eig­endum með lögum sem sam­þykkt voru fyrr á þessu ári.

Á Bloomberg er rætt við Guðrúnu Þor­leifs­dóttur, skrif­stofu­stjóra efna­hags­mála og fjár­mála­mark­aðar í fjár­mála­ráðu­neyt­inu. Hún segir að stjórn­völd séu að verja sig með sama hætti í mál­inu og þau geri í öðrum. Það sé þó óvenju­legt, ef ekki for­dæma­laust, að stefn­andi fari fram á að dóm­stólar skipi sér­fræð­inga til að sinna því hlut­verki sem sjóð­irnir vilja að þeir sinni. Mótmæli stjórn­valda snú­ast um að sjóð­irnir tveir séu að fara fram á að vald sér­fræð­ing­anna til að kom­ast að nið­ur­stöðu verði of umfangs­mikið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár