Illugi eini þingmaðurinn sem á eftir að svara

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra er eini núver­andi þing­mað­ur­inn sem hefur ekki gefið upp ákvörðun sína um áfram­hald­andi þing­setu. Hann hefur frest til klukkan 16 í dag til að gefa kost á sér fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum.

Allir þing­menn, að und­an­skildum mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herr­anum Illuga Gunn­ars­syni, hafa nú gefið út opin­ber­lega hvort þeir hygg­ist gefa kost á sér áfram á næsta kjör­tíma­bili. Fram­boðs­frestur í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum rennur út klukkan 16 í dag. Illugi er nú staddur í Rio de Janiero í Brasilíu til að vera við­staddur Ólymp­íu­leik­ana. Hann var í beinni útsend­ingu á Facebook í gær þar sem hann var meðal ann­ars spurður hvort hann ætli að gefa kost á sér til áfram­hald­andi þing­mennsku, en hann svar­aði ekki spurn­ing­unni. Illugi skip­aði fyrsta sæti flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í síð­ustu kosn­ingum. Ekki hefur náðst í Illuga und­an­farnar vikur.

Öll forystusætin komin

Ólöf Nordal, inn­an­rík­is­ráð­herra og vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ætlar að bjóða sig fram í öðru hvoru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu. Guð­laugur Þór Þórð­ar­son þing­maður til­kynnti í gær að hann sækt­ist eftir því að leiða list­ann í sömu kjör­dæmum og því er lík­legt að Ólöf og Guð­laugur leiði sitt­hvort kjör­dæmið. Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra vill leiða lista sjálf­stæð­is­manna í norð­aust­ur­kjör­dæmi, Haraldur Bene­dikts­son þing­maður og Teitur Björn Ein­ars­son, aðstoð­ar­maður fjár­mála­ráð­herra, ætla að bít­ast um odd­vita­sætið í norð­vest­ur­kjör­dæmi, Ragn­heiður Elín Árna­dóttir iðn­að­ar­ráð­herra, Páll Magn­ús­son, fyrr­ver­andi útvarps­stjóri, Árni Johnsen, fyrr­ver­andi þing­maður, og Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, hafa öll gefið kost á sér til að leiða list­ann í Suð­ur­kjör­dæmi. Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, er svo í suð­vest­ur­kjör­dæmi. Þannig eru öll kjör­dæmin komin með fram­boð í odd­vita­sætin. Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra og odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suð­ur, gaf það út fyrir nokkru síðan að hún myndi hætta í póli­tík nú í haust.

Lilja, Karl og Þorsteinn vilja leiða Framsókn í Reykjavík

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Karl Garð­ars­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, til­kynntu í gær og í morgun og þau ætli að gefa kost á sér til þess að leiða listana í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum. Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur einnig gefið kost á sér í fyrsta sætið í Reykja­vík norður.

Dagsetning komin fyrir haustkosningar

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Sig­urður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra lögðu til við stjórn­ar­and­stöð­una í gær að kosið verði til Alþingis 29. októ­ber næst­kom­andi. Tekið var vel í það og þessi dag­setn­ing því ákveðin. Bjarni telur að hægt verði að klára helstu mál rík­is­stjórn­ar­innar fyrir þann tíma en þá þurfi að lengja það þing sem nú stendur yfir. Þá verður fjár­laga­frum­varp ekki lagt fram fyrr en eftir kosn­ing­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár