Lilja vill leiða í Reykjavík suður hjá Framsókn – Smári leiðir hjá Pírötum á Suðurlandi

Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra.
Lilja Alfreðs­dóttir utan­rík­is­ráð­herra. Mynd: EPA

Lilja D. Alfreðs­dóttir, sem verið hefur utan­rík­is­ráð­herra frá því í apríl, ætlar að sækj­ast eftir því að leiða lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður í kosn­ing­unum í haust. Nokkuð ljóst var í hvað stefndi þegar Karl Garð­ars­son til­kynnti í gær að hann ætl­aði sér að sækj­ast eftir odd­vita­sæti í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, en hann var í öðru sæti á lista flokks­ins í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður í síð­ustu kosn­ingum. Kjarninn spáði m.a. þess­ari nið­ur­stöðu í morg­un­pósti sínum í morgun.

Sú sem leiddi flokk­inn þar í kosn­ing­unum í apríl 2013, Vigdís Hauks­dóttir, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í kom­andi kosn­ingum. Kosið verður á milli þeirra sem gefa kost á sér í fyrstu sætin á tvö­földu kjör­dæm­is­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík 27. ágúst.

Lilja, sem hefur verið utan­þings­ráð­herra frá því í apríl, greinir frá ákvörðun sinni í Frétta­blað­inu í dag en seg­ist þar ekki ætla að bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, sitj­andi for­manni flokks­ins ef haldið verður flokks­þing í aðdrag­anda kosn­inga. Leið­togar rík­is­stjórn­ar­innar, Sigurður Ingi Jóhanns­son og Bjarni Bene­dikts­son, fund­uðu með leið­togum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna í gær og til­kynntu þeim að kosið yrði 29. októ­ber að óbreyttu.

Próf­kjöri Pírata á Suð­ur­landi lauk í gær­kvöldi. Nið­ur­stöður þess voru þær að Smári McCarthy mun leiða list­ann, en hann sótt­ist eftir því. Smári hefur verið virkur í starfi Pírata frá því að flokk­ur­inn var stofn­aður og leiddi lista flokks­ins í kjör­dæm­inu í þing­kosn­ing­unum 2013 en náði ekki kjöri. Í öðru sæti á lista Pírata í kjör­dæm­inu verður Oktavía Hrund Jóns­dóttir, í þriðja sæti verður Þórólfur Júlían Dagsson og í því fjórða Álf­heiður Eymars­dóttir. 113 manns kusu í próf­kjör­inu.

Próf­kjöri Pírata í Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum og í Suð­vest­ur­kjör­dæmi lýkur síðar í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár