Stjórnarmenn Samherja þöglir um vitneskju sína um mútugreiðslurnar

Björgólfur Jóhanns­son fæst ekki til að skil­greina þær greiðslur sem runnu frá félögum Samherja erlendis til Namib­íu­mann­anna sem nú hafa verið hand­teknir og settir í gæslu­varð­hald grun­aðir um mútu­þægni og fleiri brot. Stjórn­ar­menn Samherja vilja ekki tjá sig um málið.

Stjórnarmenn Samherja þöglir um vitneskju sína um mútugreiðslurnar
Tjá sig ekki Eiríkur Jóhanns­son, stjórn­ar­for­maður Samherja, hefur ekki tjáð sig per­sónu­lega um Namib­íu­málið við Stundina frekar en stjórn­ar­menn­irnir Óskar Magn­ús­son, Sigrún Björk Jak­obs­dóttir og Kristján Vil­helms­son. Eiríkur er sá í ljós­brúna frakk­anum við hlið Þor­steins Más Bald­vins­sonar á mynd­inni. Mynd: Haraldur Jónasson/Hari

Stjórn Samherja hf. á Íslandi kom ekki að því að ákveða og skipu­leggja að greiða mútur frá erlendum dóttur- og hlut­deild­ar­fé­lögum útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins til stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna í Namibíu í skiptum fyrir hesta­makríl­skvóta sem útgerð í eigu félags­ins fékk í Namibíu á árunum 2012 til 2018. 

Þetta kemur fram í svörum frá Björgólfi Jóhanns­syni, starf­andi for­stjóra Samherja og tals­manni stjórnar félags­ins, við spurn­ingu Stund­ar­innar um aðkomu stjórnar Samherja að því að ákveða og skipu­leggja mútu­greiðsl­urnar í Namibíu sem greint var frá í Stund­inni, Kveik og hjá Al-Jazeera, á grund­velli gagna frá Wikileaks, fyrir skömmu.

Svörin bár­ust í tölvu­pósti frá Margréti Ólafs­dóttur, rit­ara for­stjóra Samherja, og kom fram í svör­unum frá Samherja að Björgólfur Jóhanns­son væri að veita svörin sem tals­maður Samherja og stjórnar félags­ins. Björgólfur fæst hins vegar ekki til að útskýra svör sín og til hvers …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár