Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra hefur ráðið Matthías Pál Imsland sem aðstoðarmann sinn. Mattías hefur starfað sem aðstoðarmaður Eyglóar Harðardóttur félags- og húsnæðismálaráðherra það sem af er þessu kjörtímabili. Samkvæmt tilkynningu frá forsætisráðuneytinu verða verkefni Matthíasar
meðal annars á sviði stefnumörkunar og samræmingar til að styðja við forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar. Þar segir einnig að Sigmundur Davíð hafi haft einn aðstoðarmann, Jóhannes Þór Skúlason, síðan að Ásmundur Einar Daðason, þingmaður og þingflokksformaður Framsóknarflokksins, lét af starfi aðstoðarmanns á árinu 2015. Nú verði þeir aftur tveir.

Matthías er 41 árs. Hann var kosningastjóri Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2013. Á pólitískum vettvangi hefur Matthísas verið formaður Félags ungra Framsóknarmanna í Reykjavík, formaður kjördæmasambandsins í Reykjavík, í stjórn Sambands ungra Framsóknarmanna, í miðstjórn Framsóknarflokksins og í landsstjórn flokksins. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni, BA-prófi frá Háskóla Íslands í stjórnmálafræði og síðar MS-prófi frá Háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Þá hefur hann stundað nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og stjórnunarnám við North Park University í Chicago í Bandaríkjunum. Áður vann hann sem ráðgjafi fyrir erlend fyrirtæki á sviði framtaksfjárfestinga. Þar áður var Matthías framkvæmdastjóri rekstrarsviðs flugfélagsins WOW-air og fyrir stofnun þess var hann forstjóri Iceland Express. Matthías starfaði um tíma í opinberri stjórnsýslu, fyrst sem sviðsstjóri fræðslu-, félags- og menningarsviðs á Blönduósi og síðar í iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu. Að loknu námi starfaði hann hjá Símanum við ýmis stjórnunarstörf.
Með fjölmarga ráðgjafa
Auk aðstoðarmanna sinna hefur Sigmundur haft fjölmarga ráðgjafa á sínum snærum innan forsætisráðuneytisins. Þannig hefur Sigurður Már Jónsson, fyrrum ritstjóri Viðskiptablaðsins, starfað sem upplýsingafulltrúi ríkisstjórnarinnar með aðsetur í forsætisráðuneytinu frá því í september 2013. Benedikt Árnason hefur starfað sem sérlegur efnahagsráðgjafi forsætisráðherra frá 27. ágúst 2013. Þann 1. september 2014 var Lilja Alfreðsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri á skrifstofu bankastjóra og alþjóðasamskipta í Seðlabanka Íslands, ráðin í tímabundna verkefnastjórn sem tengdist vinnu ráðuneytisins við losun fjármagnshafta. Hún snéri aftur til starfa í Seðlabankanum um miðjan desember síðastliðinn.
Hrannar Pétursson, fyrrum upplýsingafulltrúi Vodafone, var ráðinn til forsætisráðuneytisins í lok árs 2014 til að móta stefnu Stjórnarráðsins í upplýsinga- og samskiptamálum. Hann starfaði þar í tæpt ár en er nú að íhuga forsetaframboð. Í mars 2014 var Margrét Gísladóttir ráðin sem sérstakur ráðgjafi í forsætisráðuneytið, en hún hafði áður verið aðstoðarmaður Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra. Hún hætti störfum í janúar 2015 og starfar nú í einkageiranum.
Auk þess var, líkt og áður sagði, alþingismanninn Ásmund Einar Daðason aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs í um tvö ár samhliða þingmennsku, og varð þar með fyrsti þingmaður þjóðarinnar til að vera ráðinn aðstoðarmaður ráðherra.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir