Níu af hverjum tíu framsóknarmönnum kristnir

Tæpur helm­ingur Íslend­inga telur sig trú­aðan og hefur hlut­fallið aldrei verið lægra. Nær allir kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins eru kristnir og þrír af hverjum fjórum Íslend­ingum eru hlynntir líkn­andi dauða, er fram kemur í nýrri skoð­ana­könnun.

Hlutfall þeirra sem telja sig trú­aða hefur aldrei verið lægra á Íslandi en nú. Í nýrri könnun Sið­menntar, sem Maskína gerði í nóv­em­ber, kemur fram að 46 pró­sent lands­manna telji sig trú­aða og þriðj­ungur seg­ist alveg trú­laus. Yngra fólk er lík­legra til að vera trú­laust heldur en það eldra og ein­ungis rúmur þriðj­ungur þjóð­ar­innar seg­ist eiga sam­leið með þjóð­kirkj­unni.

Lítill munur er á milli kynja varð­andi trú, en þriðj­ungur kvenna telur sig ekki geta svarað hvort þær séu trú­aðar eða ekki á meðan hlut­fallið er 18 pró­sent meðal karla.

Þó kemur í ljós að mark­tækur munur er á svörum eftir lýð­fræði­legum breytum, að und­an­skildum fjöl­skyldu­tekjum. Elsti hóp­ur­inn er til dæmis mun trú­aðri heldur en sá yngri, og sömu­leiðis þeir sem hafa lokið grunn­skóla­prófi miðað við þá sem hafa lokið háskóla. Þannig er þriðj­ungur svar­enda yngri en 45 ára trú­aður, en um 59 pró­sent þeirra sem eru 45 ára og eldri. Íbúar á Suð­ur­landi, Reykja­nesi og Aust­ur­landi eru lík­legri til þess að telja sig trú­aða heldur en íbúar ann­arra lands­svæða.

Nær allir framsóknarmenn kristnir

Þegar stjórn­mála­skoð­anir fólks eru bornar saman við trú­ar­skoð­anir kemur í ljós að kjós­endur Fram­sókn­ar­flokks­ins eru alla jafna trú­aðri en kjós­endur ann­arra flokka.

87,1 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins játa kristna trú þegar þeir eru spurðir hvað lýsi helst trú­araf­stöðu þeirra, og 82,1 pró­sent Sjálf­stæð­is­manna. Einungis 48 pró­sent kjós­enda Pírata og 51,8 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna. Hlutfall trú­leys­ingja er hæst meðal kjós­enda Vinstri grænna, eða 38,2 pró­sent og Pírata, 37,3 pró­sent, en fæstir trú­leys­ingjar kjósa Fram­sókn­ar­flokk­inn, eða 8,1 pró­sent.

Taka skal fram að 13,5 pró­sent kjós­enda Pírata segj­ast trúa á „annað” og 6,9 pró­sent kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar trúa á „það góða”.

Yfir helm­ingur kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins, eða 53 pró­sent, telur að trú og vís­indi fari saman í leit að sann­leik­anum um lífið og til­ver­una og helm­ingur kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Lægst er hlut­fallið meðal kjós­enda Sam­fylk­ing­ar­innar, en rúm 25 pró­sent eru sam­mála stað­hæf­ing­unni.

Langflestir hlynntir líknandi dauða

Þátt­tak­endur voru spurðir að lokum hvort þeir væru hlynntir eða and­vígir því að „ein­stak­lingur geti fengið aðstoð við að binda enda á líf sitt ef hann er hald­inn ólækn­andi sjúk­dómi (líkn­andi dauði).” Nið­ur­staðan var afger­andi og eru þrír af hverjum fjórum hlynntir aðgerð­inni og ein­ungis rúm sjö pró­sent and­víg.

Þegar aðeins er litið til þeirra sem eru hlynntir eða and­vígir, eru rúm 90 pró­sent hlynnt líkn­andi dauða. Ekki reynd­ist vera mark­tækur munur á milli fylgi flokk­anna og hvort fólk væri and­vígt eða hlynnt líkn­andi dauða, en hæst hlut­fall hlynntra er meðal kjós­enda Pírata, tæp 85 pró­sent, og hæst hlut­fall and­vígra er meðal kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tæp 13 pró­sent.

43 prósent kristinna ekki vissir um tilvist Guðs

Þegar fólk var spurt hvaða full­yrð­ing lýsi best trú­araf­stöðu þess sögð­ust meira en tveir af hverjum þremur játa kristna trú en um 23 pró­sent vera trú­laus. Elsti hóp­ur­inn er lík­legri til að vera krist­inn en sá yngsti, sem og íbúar á Aust­ur­landi miðað við íbúa ann­ars staðar á land­inu. Þeir sem hafa lokið grunn­skóla­prófi eru lík­legri en þeir sem hafa lokið háskóla­prófi til að vera kristnir.

Af þeim sem játa kristna trú er þó ein­ungis 36 pró­sent sem trúa á Guð, Jesú, upp­ris­una og eilíft líf. 43 pró­sent krist­inna segj­ast ekki vissir um til­vist Guðs, en trúa á boð­skap kristn­innar.

72 pró­sent svar­enda vilja aðskila ríki og kirkju og rúm­lega 60 pró­sent vilja fella þjóð­kirkju­á­kvæðið úr stjórn­ar­skránni en tæpur þriðj­ungur er and­vígur því. Einungis 35 pró­sent telja sig eiga sam­leið með þjóð­kirkj­unni.

Hröð þróun trúleysis þjóðarinnar

Árið 1996 töldu 87 pró­sent þjóð­ar­innar sig trú­aða, en eins og áður segir er hlut­fallið nú komið niður í 46 pró­sent. Hlutfall trú­lausra tók stökk á tíma­bil­inu 2011 til 2015, þegar hlut­fallið jókst úr 10 pró­sentum í 30 pró­sent. Árið 2005 töldu ein­ungis sex pró­sent sig trú­lausa.

Tæp 62 pró­sent svar­enda telja að heim­ur­inn hafi orðið til við Mikla­hvell, en tæp 18 pró­sent halda því fram að Guð hafi skapað heim­inn.

Maskína lagði 18 spurn­ingar um lífs­skoð­anir fyrir svar­endur og var nið­ur­stöð­unum skipt í þrjá flokka. Rann­sóknin var gerð fyrir Siðmennt dag­ana 13. til 25. nóv­em­ber 2015 og fór hún fram á net­inu í Þjóð­ar­gátt Maskínu. Svar­endur voru 821 á aldr­inum 18 - 75 ára af öllu land­inu.

Hér má nálg­ast könnun Maskínu - Lífs­skoð­anir Íslend­inga

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár