Zúistar fá 3.200 meðlimi á meðan kirkjan tapar 2.400

Tæplega 3.200 manns gengu í nýtt trú­fé­lag, Zuism, félag Zúista, á síð­asta fjórð­ungi árs­ins 2015. Þaðan komu rúm­lega þús­und ein­stak­lingar úr þjóð­kirkj­unni, sam­kvæmt tölum Þjóð­skrár sem birtar voru í dag.

Yfir 2.400 manns yfir­gáfu þjóð­kirkj­una á síð­ustu þremur mán­uðum árs­ins 2015.

Þjóðskrá birti í dag tölur um breyt­ingar á skrán­ingum ein­stak­linga í trú­fé­lög á tíma­bil­inu 1. októ­ber til 31. des­em­ber 2015.

Vegna vin­sældar nýja trú­fé­lags­ins Zúista tók Þjóðskrá sér­stak­lega saman tölur vegna skrán­inga í það.

Zúistar komu fram á sjón­ar­sviðið seinni hluta síð­asta árs með það höf­uð­mark­mið að hið opin­bera felli úr gildi öll lög sem veita trú- og líff­skoð­un­ar­fé­lögum for­rétt­indi eða fjár­styrki umfram önnur félög. Þá end­ur­greiðir félagið öllum skráðum með­limum árlegan styrk sem það fær frá rík­inu.

Alls gengu 3.176 ein­stak­lingar í félagið á þessu þriggja mán­aða tíma­bili, þar af komu 1.056 úr þjóð­kirkj­unni og 1.652 sem voru áður utan trú­fé­laga. 

Fækkað hefur jafnt og þétt í þjóð­kirkj­unni und­an­farin ár. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2015 gengu 1.357 fleiri úr henni en í hana. Alls skráðu 1.706 ein­stak­lingar sig úr Þjóð­kirkj­unni en 309 í hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár