Minnst 120 látnir eftir fordæmalausar hryðjuverkaárásir í París

Saklaust fólk að skemmta sér var strá­fellt með hryðju­verka­byssum og sprengjum í París í gær­kvöldi. Átta árás­ar­menn eru látnir en leitað er vit­orðs­manna.

Ráðist var á París, höf­uð­borg Frakk­lands, í gær­kvöldi. Talið er að árás­ar­menn­irnir hafi verið átta og eru þeir allir látnir, sjö þeirra með því að sprenga sjálfa sig í loft upp. Vit­orðs­menn ganga þó enn lausir. Árá­sa­menn­irnir drápu að minnsta kosti 120 manns og særðu um 200 í við­bót, þar af 80 alvar­lega. Ráðist var á fólkið með hríð­skota­byssum og sprengjum við þjóð­ar­leik­vang Frakka, á börum, veit­inga­stöðum og í tón­leika­sal í París. Allir stað­irnir áttu það sam­eig­in­legt að vera staðir þar sem fólk fer til að skemmta sér. Til að horfa á fót­bolta, drekka, borða, hlusta á tón­list. Og sam­kvæmt fregnum flestra miðla heims var árás­unum ekki beint gegn neinum sér­stökum ein­stak­lingum. Árás­ar­menn­irnir voru að reyna að myrða sem flesta.

Árás­irnar, sem virð­ast þaul­skipu­lagðar, áttu sér stað á sex mis­mun­andi stöðum víðs­vegar um París, sam­kvæmt The Guardian.Tvær sjálfs­morðsárásir voru gerðar á Stade de France, þjóð­ar­leik­vang Frakka í norð­ur­hluta borg­ar­innar, á meðan að lands­lið Frakka lék æfinga­leik við Þýska­land. Fleiri sprengjur sprungu við leik­vang­inn.

Flestir sak­lausir borg­arar féllu hins vegar á tón­leika­staðnum Bataclan, þar sem banda­ríska hljóm­sveitin Eagles of Death Metal var með tón­leika.

Samkvæmt frá­sögnum franskra fjöl­miðla þá réð­ust árás­ar­menn, vopn­aðir hríð­skota­byssum, fyrst til­vilj­un­ar­kennt gegn fólki sem var á kaffi­húsum í nágrenni tón­leik­ar­stað­ar­ins, en hann er með þekkt­ari slíkum í Frakk­landi. Árás­ar­menn­irnir fóru síðan inn á Bataclan og hófu til­vilj­un­ar­kennda skot­hríð á fjöld­ann sem þar var til að fylgj­ast með tón­leik­unum. Menn­irnir hlóðu vopn sín aftur og aftur og ætl­uðu sér, sam­kvæmt frá­sögnum þeirra sem af lifðu, að drepa sem allra flestra.

Þegar lög­reglan bjóst til þess að ráð­ast inn í Bataclan þá sprengdu þrír mann­anna sig í loft upp og settu af stað röð ann­arra spreng­inga inni á tón­leik­ar­staðnum.

Endanleg tala um hversu margir lét­ust á og við Bataclan liggur ekki fyrir. En sam­kvæmt BBC voru fórn­ar­lömbin um 80 tals­ins.

Saklaust fólk að skemmta sér myrt

Árásir voru gerðar á bari og veit­ing­ar­staði á fimm öðrum stöðum í París. Á meðal þeirra var vin­sæll pizzastaður og kam­bódískur veit­inga­staður. Árás­irnar voru gerðar þegar mest er að gera á slíkum stöðum, á föstu­dags­kvöldi, og gestir eru sem flestir.

Auk þess voru sprengjur sprengdar fyrir utan Stade de France, þar sem Francois Hollande Frakk­lands­for­seti og um 80 þús­und aðrir voru að horfa á lands­leik Frakk­lands og Þýska­lands. Leiknum var auk þess sjón­varpað til millj­óna áhorf­enda út um allan heim. Þrír árás­ar­menn voru felldir þar.

Neyðarástandi lýst yfir og landamærum lokað

Hollande til­kynnti í gær að neyð­ar­á­standi hefði verið lýst yfir í öllu Frakk­landi. Það er í fyrsta sinn sem það er gert síðan árið 2005. Auk þess voru um 1.500 her­menn kall­aðir út á götur Parísar og landa­mærum Frakk­lands lokað. Flug­vellir voru þó áfram opnir en mörg af stærstu flug­fé­lögum heims hafa þegar til­kynnt að þau muni fresta flugum. Hollande sagði árás­irnar vera „for­dæma­lausar hryðju­verka­árásir á Frakk­land“.

Engin hefur lýst yfir ábyrgð á árás­unum en talið er að þær teng­ist Íslamska rík­inu (ISIS). Sú ályktun margra erlendra stór­fjöl­miðla byggir á vitn­is­burði ýmissa sem lifðu af árás­irnar og heyrðu hróp og köll árás­armann­anna á meðan að á þeim stóð.

Leið­togar stærstu ríkja heims hafa flestir for­dæmt voða­verkin. Barack Obama Banda­ríkja­for­seti sagði þau vera árás á allt mann­kyn. Xi Jinping, for­seti Kína, for­dæmdi þær og Malcolm Turnbull, for­sæt­is­ráð­herra Ástralíu, sagði að árás­irnar væru verk djöf­uls­ins. David Cameron, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sagð­ist í áfalli yfir atburð­unum. Bretar myndu gera allt sem þeir gætu til að aðstoða Frakka í þessum aðstæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár