Illugi hefur ekki lagt til að lífeyrisskuld verði lyft af RÚV

Mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra segir að hann muni leggja fram frum­varp um óbreytt útvarps­gjald. Morg­un­blaðið segir Illuga hafa lofað stjórn­endum RÚV meiri pen­ingum.

Illugi Gunn­ars­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, ætlar að leggja fram frum­varp á þingi um að útvarps­gjaldið verði óbreytt á næsta ári en hefur ekki lagt til að líf­eyr­is­skuld­bind­ingum verði lyft af Rík­is­út­varp­inu (RÚV).

Hann getur þó ekki gefið vil­yrði um að útvarps­gjaldið verði óbreytt þar sem fjár­veit­ing­ar­valdið sé hjá Alþingi.

Í skýrslu um RÚV, sem kynnt var fyrir viku síðan, segir m.a. að áætl­anir RÚV, sem fyr­ir­tækið vinnur eftir, geri ráð fyrir því að það fái hærra útvarps­gjald en gert er ráð fyrir í fjár­laga­frum­varpi árs­ins og að lán vegna líf­eyr­is­skuld­bind­inga hverfi úr efna­hag RÚV. Gangi þessar for­sendur ekki eftir er rekstur RÚV eins og fyr­ir­tækið er rekið í dag ósjálf­bær.

Hefur ekki lagt til að lífeyrisskuldbindingum verði lyft

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Illuga um hvort stjórn eða stjórn­endur RÚV hefðu fengið vil­yrði fyrir því frá mennta- og menn­ing­ar­mála­ráðu­neyt­inu um að útvarps­gjald verði óbreytt og að lán vegna líf­eyr­is­skuld­bind­inga verði tekið yfir af rík­inu?

Í svari frá Sigríði Hall­gríms­dóttur, aðstoð­ar­manni Illuga, segir að ráð­herr­ann hafi lýst því yfir opin­ber­lega síð­ast­liðið vor að hann hygð­ist leggja fram frum­varp á þingi um að útvarps­gjaldið yrði óbreytt á næsta ári. Síðan þá hafi hann ítrekað þá stefnu sína. „Ekkert vil­yrði er hægt að gefa, þar sem fjár­veit­ing­ar­valdið er hjá Alþingi. Mennta­mála­ráð­herra hefur ekki lagt til að líf­eyr­is­skuld­bind­ingum verði lyft af Rík­is­út­varp­inu, en hann hefur vakið athygli á því hversu þungur baggi sú skuld­bind­ing er á stofn­un­inni.“

Útvarps­gjaldið sem rennur að mestu til RÚV var lækkað um síð­ustu ára­mót, úr 19.400 krónum í 17.800 krónum. Um næstu ára­mót á að lækka það aftur í 16.400 krónur, sam­kvæmt fram­lögðum fjár­lögum.

Bæði Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður fjár­laga­nefndar og sam­flokks­maður Illuga, hafa sagt opin­ber­lega að þau séu á móti því að fallið verði frá fyr­ir­hug­aðri lækkun útvarps­gjalds. Þau telja einnig að það sé ekki meiri­hluti á þingi fyrir þeirri aðgerð.

Morgunblaðið segir Illuga hafa gefið vilyrði fyrir meira fé

Í frétta­skýr­ingu í Morg­un­blað­inu í dag segir að við­mæl­endur blaðs­ins telji aug­ljóst að Illugi hafi gefið Magnúsi Geir Þórð­ars­syni útvarps­stjóra vil­yrði fyrir meira fjár­magni þegar hann tók við starfi útvarps­stjóra í jan­úar 2014. Þar segir að áætlað sé að tap á rekstri RÚV á næsta rekstr­ar­ári verði 54 millj­ónir króna.

Stjórn RÚV sendir frá sér frétta­til­kynn­ingu í gær þar sem því var hafnað að til standi að reka fyr­ir­tækið með halla á næsta ári. Þar segir: "Fréttir Morg­un­blaðs­ins og mbl.is þess efnis, sem birst hafa í dag eru ekki réttar. Skýrt kemur fram í til­kynn­ingu RÚV til Kaup­hallar þann 30.októ­ber sl. að áætl­anir RÚV geri ráð fyrir rekstr­ar­af­gangi á yfir­stand­andi rekstr­ar­ári, rétt eins og á nýliðnu rekstr­ar­ári. [...]Ekki er gert ráð fyrir tapi í áætl­unum stjórnar og stjórn­enda RÚV. Vænt­ingar stjórnar byggj­ast, líkt og margoft hefur komið fram, á því að útvarps­gjald lækki ekki frekar á næsta ári sem er í sam­ræmi við það sem mennta­mála­ráð­herra hefur gefið fyr­ir­heit um. Gangi þau áform ráð­herra ekki eftir þá er ekki um annað að ræða en að skera niður þjón­ustu Rík­is­út­varps­ins til að tryggja halla­lausan rekstur. Því er rangt sem segir í fyr­ir­sögn Morg­un­blaðs­ins og mbl.is „Spá miklum halla á RÚV“.

Segja Ingva Hrafn hafa hætt vegna stuðningsleysis

Í Morg­un­blað­inu var einnig haft eftir heim­ild­ar­manni blaðs­ins að Ingvi Hrafn Ósk­ars­son, sem hætti skyndi­lega sem for­maður stjórnar RÚV í upp­hafi viku, hafi kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að „hann nyti ekki lengur nægj­an­legs stuðn­ings innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins til að fara þá leið í rekstri stofn­un­ar­innar sem marka átti með nýjum útvarps­stjóra“. Ingvi Hrafn var einn full­trúa Sjálftæð­is­flokks­ins í stjórn­inni.

Ingvi Hrafn og Guð­laugur Þór hafa áður tek­ist á opin­ber­lega um fjár­mál RÚV. Fyrir tæpu ári, þegar miklar deilur stóðu einnig yfir um fjár­mál RÚV, skrif­aði Ingvi Hrafn harð­orða grein í Morg­un­blaðið undir fyr­ir­sögn­inni „Rökþrot þing­manns­ins?“ þar sem hann rést gegn full­yrðum Guðlaugs Þórs um fjár­mál RÚV.

Þar skrif­aði Ingvi Hrafn m.a.: „Vandinn er hins vegar sá að á und­an­förnum vikum hefur Guð­laugur ítrekað ferið fram með stað­lausa stafi um fjár­mál Rík­is­út­varps­ins og beitt fyrir sig útúr­snún­ingum sem hvergi snerta kjarna máls­ins. Hann verður að sætta sig við að á það sé bent“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár