Sprengja inn á húsnæðislánamarkað - Lífeyrissjóður býður mun ódýrari lán en bankar

Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna býður nú langódýr­ustu hús­næð­is­lána­kjör sem Íslend­ingum bjóð­ast. Á þriðju­dag til­kynnti hann að hann hefði lækkað vexti á verð­tryggðum líf­eyr­is­sjóðs­lánum, að sjóðs­fé­lögum bjóð­ist nú einnig óverð­tryggð lán, að láns­hlut­fall hafi verið hækkað í 75 pró­sent og að lán­töku­kostn­aður hafi verið lækk­aður um fjórð­ung.

Óverð­tryggðir vextir, bundir í þrjú ár, eru sem stendur 6,97 pró­sent hjá líf­eyr­is­sjóðnum á meðan að þeir eru 7,15 til 7,4 pró­sent hjá stóru bönk­unum þremur. Þar munar 2,6 til 6,2 pró­sent. Fastir verð­tryggðir vextir hjá sjóðnum eru 3,6 pró­sent á meðan að þeir eru 3,85 til 4,3 pró­sent hjá bönk­unum. Þar munar 6,9 til 19,4 pró­sent.

Og mestu af öllu munar á breyti­legum verð­tryggðum vöxtum. Þar býður Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna upp á 3,2 pró­sent vexti á meðan að vextir hjá Arion banka og Lands­bank­anum eru 3,65 til 3,85 pró­sent. Þar munar 14 til 20,3 pró­sent á vöxt­unum. Íslands­banki býður ekki upp á breyti­lega verð­tryggða vexti.

Til við­bótar býður líf­eyr­is­sjóð­ur­inn upp á 75 pró­sent láns­hlut­fall. Hinir bank­arnir lána 70 pró­sent af verð­mæti eignar, en bjóða síðan upp á dýr­ari við­bót­ar­lán til þeirra sem þurfa á því að halda.


Ein mestu tíðindi í langan tíma


Þá lækkar Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna lán­töku­gjaldið hjá sér um fjórð­ung og er það nú 0,75 pró­sent af teknu láni. Hjá stóru bönk­unum öllum er það eitt pró­sent. Þetta þýðir til að mynda að lán­töku­kostn­aður vegna 30 millj­óna króna láns er 225 þús­und hjá sjóðnum á meðan að hann er 300 þús­und hjá bönk­unum.

Því er um að ræða gríð­ar­leg tíð­indi á íslenska hús­næð­is­mark­að­inum. Ein þau mestu sem orðið hafa árum saman. Það er eng­inn vafi á því að lánin sem Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er að bjóða 150 þús­und Íslend­ingum - sem hafa á ein­hverjum tíma­punkti greitt í sjóð­inn – eru það lang­hag­stæð­ustu sem í boði eru. Og við­búið að þeir sem það geta skoði gaum­gæfi­lega að færa hús­næð­is­lánin sín þangað. Það sparar þeim ein­fald­lega umtals­verðar fjár­hæðir og þegar tugir pró­senta af ráð­stöf­un­ar­tekjum þús­unda íslend­inga fara í hús­næð­is­kostnað á hverjum mán­uði skiptir það veru­legu máli.

Þeir sem vilja fá þessi lán þurfa ekki lengur að fara í greiðslu­mat hjá banka heldur fram­kvæmt greiðslu­mat í gegnum greiðslu­mats­kerfi Creditinfo sem skilar nið­ur­stöðu mun fyrr en áður hefur tíðkast og kostar lán­tak­end­ann minna.

Engin ákvörðun um viðbrögð hjá bönkunum


Kjarninn leit­aði eftir upp­lýs­ingum hjá Arion banka, Íslands­banka og Lands­bank­anum um hvort og þá hvernig þeir ætl­uðu að bregð­ast við þess­ari breyttu stöðu á hús­næð­is­lána­mark­aði.

Haraldur Guðni Eiðsson, upp­lýs­inga­full­trúi Arion banka, segir að bank­inn hafi ekki tekið ákvörðun um að breyta vöxtum hjá sér, en að ákvörðun Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna gefi til­efni til að skoða það gaum­gæfi­lega. Edda Her­manns­dóttir,sam­skipta­stjóri Íslands­banka, segir málið í skoðun hjá bank­anum en að engar ákvarð­anir hafi verið teknar.

Í svari frá Rúnari Pálma­syni, í mark­aðs- og sam­skipta­deild Lands­bank­ans, segir að bank­inn hafi boðið betri eða sam­bæri­leg kjör á íbúða­lánum en keppi­nautar hans. "Lands­bank­inn hefur und­an­farin miss­eri leit­ast við að lækka útláns­vexti eins og kostur er. Má t.d. benda á að þegar Seðla­bank­inn hækk­aði síð­ast stýri­vexti lækk­aði Lands­bank­inn vexti á óverð­tryggðum íbúða­lánum með föstum vöxtum til 60 mán­aða." Rúnar segir hins vegar að sam­keppn­is­staða íslenskra banka og líf­eyr­is­sjóða og að öjöfn sam­keppn­is­staða setji Lands­bank­anum því tölu­verðar skorður í sam­keppni á íbúða­lána­mark­aði. Bankinn muni áfram " leit­ast við að bjóða góð og sam­keppn­is­hæf kjör á íbúða­lána­mark­aði".

[caption id="attachment_21495" align="alignnone" width="1000"] Engin ákvörðun hefur verið tekin um við­brögð hjá stóru bönk­unum. Lána­kjörin sem þeir bjóða í dag eru mun lak­ari en það sem Líf­eyr­is­sjóður verls­un­ar­manna býður upp á.[/caption]

Lífeyrissjóðirnir þurfa ekki eigið fé


Það er rétt hjá Lands­bank­anum að sam­keppn­is­staða banka og líf­eyr­is­sjóða sé ójöfn.

Bank­arnir hafa hingað til ekki talið sér fært að lækka kjör á hús­næð­is­lánum meira en raun ber vitni og hafa borið fyrir sig tvenns konar ástæður sem skerði sam­keppn­is­stöðu þeirra gagn­vart öðrum lán­veit­endum á mark­aðnum. Í fyrsta lagi eru þeir skyldugir sam­kvæmt lögum til að eiga mun meira eigið fé en líf­eyr­is­sjóðir. Í lok árs 2014 var eigið fé Íslands­banka, Arion banka og Lands­banka sam­an­lagt tæpir 600 millj­arðar króna. Það er reyndar nokkuð umfram eig­in­fjár­kröfu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem eru að jafn­aði yfir 19 pró­sent.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir þurfa ekki að sitja á svona miklu eigin fé. Raunar eiga þeir ekk­ert eigið fé. Þeirra hlut­verk er að taka við yfir hund­rað millj­örðum krónum sem lands­mönnum er gert að greiða í þá árlega og ávaxta það fé í minnsta lagi um 3,5 pró­sent verð­tryggt á ári.

Lánakjör verri vegna bankaskatts


Í öðru lagi þurfa stóru við­skipta­bank­arnir að greiða banka­skatt og sér­stakan fjár­sýslukatt. Efna­hags­svið Samtaka atvinnu­lifs­ins áætlar greiðsla þeirra sé ígildi um 15 pró­sent af þeim vaxta­mun sem bank­arnir inn­heimtu árið 2014.

Stjórn­endur bank­anna segja í einka­sam­tölum að þeir gætu boðið almenn­ingi betri kjör ef þeir væru ekki að borga þessa skatta. Banka­skatt­ur­inn er til að mynda 0,376 pró­sent skattur á allar skuldir bank­anna. Því sé hann bein­línis álag ofan á útlán. Með öðrum orðum er almenn­ingur að borga banka­skatt­inn - sem not­aður hefur verið til að skila rík­is­sjóði afgangi und­an­farin ár – að minnsta kosti að hluta. Samtals greiddu Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn átta millj­arða króna í banka­skatt í fyrra.

Ýmsar ástæður fyrir stöðunni


En af hverju er Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna að þessu?

Í Morg­un­blað­inu í vik­unni var rætt við Magnús Árna Skúlason, hag­fræð­ing hjá Reykja­vik Economics,sem nefndi tvær ástæður. Í fyrsta lagi að það væru ekki mörg fjár­fest­inga­tæki­færi fyrir líf­eyr­is­sjóði á skulda­bréfa­mark­aði. Þeir hafi vana­lega keypt mikið af skulda­bréfum útgefnum af Íbúða­lána­sjóði, og þar með komið óbeint að fjár­mögnun hús­næð­is­lána, en sjóð­ur­inn hefur ekki gefið út ný bréf í tvö ár. Auk þess taldi Magnús Árni að Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna væri mögu­lega að svara ákalli innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar, sem hefur mikla aðkomu að líf­eyr­is­kerf­inu,um að bjóða sjóðs­fé­lögum lán­veit­ingar á góðum kjörum.

Í sama blaði var rætt við Guðmund Þ. Þór­halls­son, fram­kvæmda­stjóra Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna, sem sagði að hlut­fall sjóð­fé­lags­lána af eignum sjóðs­ins væri mjög lágt í sögu­legu til­liti, eða ein­ungis sjö pró­sent. Á sínum tíma hafi þau verið 13 til 14 pró­sent og megi því hækka nokkuð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár