Almenningur er að borga bankaskattinn að hluta

Þegar rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks kynnti áform sín um skulda­leið­rétt­ingu á völdum verð­tryggðum hús­næð­is­lánum fyrir um 80 millj­arða króna í nóv­em­ber 2013 kom í ljós að rík­is­sjóður myndi fjár­magna þær. Til að auka tekjur sínar svo hægt yrði að standa undir þessum aukna kostn­aði átti að hækka gjald á banka­starf­semi, oft­ast kall­aður hinn sér­staki banka­skattur, sem leggst á skuldir, enn meira. Á end­anum var hann hækk­aður úr 0,041 pró­sent skulda fjár­mála­fyr­ir­tækja í 0,376 pró­sent. Þessi hækkun, sem var afgreidd á Alþingi í des­em­ber 2013, átti að skila því að skatt­ur­inn yrði 38,5 millj­arðar króna á árinu 2014.

Áður hafði skatt­ur­inn verið hækk­aður til að stoppa upp í fjár­lagagatið 2014 þannig að hann myndi skila 13,2 millj­örðum krónum meira í rík­is­kass­ann í fyrra en hann gerði árið áður. Þá hafði skatt­ur­inn skilað 1,1 millj­arði króna. Þessi skarpa hækkun átti að nást fram með því að láta skatt­inn ná til þrota­búa föllnu bank­anna líka og hækka pró­sentu­töl­una sem greiða ætti sam­hliða.

Skatt­lagn­ingin lítur mjög vel út á pappír. Í henni felst að láta fjár­mála­kerfi sem valdið hefur gríð­ar­legum skaða hér­lendis greiða fyrir þessi fok­dýru for­gangs­mál rík­is­stjórn­ar­innar. Þegar kafað er dýpra í hana kemur þó fljót­lega í ljós að banka­kerfi sem starfar á fákeppn­is­mark­aði innan gjald­eyr­is­hafta með rík­is­á­byrgð er í mjög góðri aðstöðu til að velta hluta þess kostn­aðar sem á það fellur yfir á við­skipta­vini sína. Og við­skipta­vinir bank­anna, það erum við öll.


Þrotabúin borga langstærstan hluta


Stór hluti banka­skatts­ins er greiddur af þrota­búum föllnu bank­anna. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá þeim greiddi Glitnir 8,3 millj­arða króna, Kaupþing 9,9 millj­arða króna og Lands­bank­inn 7,7 millj­arða króna í skatt­inn á síð­asta ári. Það gera sam­tals 25,9 millj­arðar króna sem rík­is­sjóði tókst að ná úr þrota­bú­unum þremur á síð­asta ári.

[caption id="attachment_18324" align="alignnone" width="624"] Steinunn Guð­bjarts­dóttir, for­maður slita­stjórnar Glitnis. Þrota­búið hefur kært banka­skatt­inn.[/caption]

Þau ætla reyndar ekki að una skatt­lagn­ing­unni. Slita­stjórnir Glitnis og Kaup­þings hafa báðar kært banka­skatt­inn til emb­ættis Rík­is­skatt­stjóra. For­svars­menn þrota­bú­anna hafa líka sagt að þeir séu til­búnir að láta reyna á lög­mæti skatts­ins fyrir dóm­stólum.

En þrota­búin hafa greitt skatt­inn. Það gerðu þau í nóv­em­ber og des­em­ber í fyrra. Pen­ing­arnir hafa því skilað sér í rík­is­sjóð, þótt enn eigi eftir að takast á um lög­mætið.

Viðskiptabankarnir borguðu átta milljarða


Sérstaki banka­skatt­ur­inn skil­aði 34,5 millj­örðum króna í rík­is­kass­ann í fyrra, sam­kvæmt greiðslu­af­komu rík­is­sjóðs sem var birt í gær. Það þýðir að önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki utan þrota­bú­anna þriggja borg­uðu 8,6 millj­arða króna.

Við­skipta­bank­arnir þrír: Lands­bank­inn (3,0 millj­arðar króna), Arion banki (2,6 millj­arðar króna) og Íslands­banki (2,4 millj­arðar króna) borga þorra þeirrar upp­hæðar, eða sam­tals átta millj­arða króna.

Við fyrstu sýn virð­ast þeir hafa vel efni á að greiða þessa skatta. Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að sam­eig­in­legur hagn­aður bank­anna þriggja frá hruni væri 370 millj­arðar króna.

Gefið í skyn að neytendur myndu borga


Eftir að til­kynnt hafði verið um veru­lega hækkun banka­skatts­ins fjall­aði Kjarninn ítar­lega um málið og beindi fyr­ir­spurnum til allra við­skipta­bank­anna þriggja um hvort þeir myndu auka vaxta­mun í kjöl­far álagn­ingar hans.

Þann 6. febr­úar 2014 birt­ist frétta­skýr­ing í Kjarn­anum þar sem svör bank­anna voru rakin. Kristján Krist­jáns­son, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bank­ans, sagði að bank­inn hefði ekki tekið neina ákvörðun um að auka vaxta­mun til að mæta aukn­ingu á banka­skatt­inum. Til að ná við­un­andi arð­semi þyrfti hins vegar annað hvort að auka tekjur eða lækka kostnað. „Ef kostn­að­ar­lækk­unin fer öll í skatt, þá er ekki ósenni­legt að við myndum þurfa að auka vaxta­mun síðar.“

[quote font="0" align="right"]þessi stór­kost­lega skatt­lagn­ing sem felst í hinum sér­staka banka­skatti felur í sér mikla kostn­að­ar­aukn­ingu fyrir bank­ann og mun á end­anum hafa áhrif á þau kjör sem við getum boðið okkar við­skipta­vinum. Hjá því verður ein­fald­lega ekki kom­ist.[/quote]

Haraldur Guðni Eiðsson, upp­lýs­ing­ar­full­trúi Arion banka, sagði ljóst að „þessi stór­kost­lega skatt­lagn­ing sem felst í hinum sér­staka banka­skatti felur í sér mikla kostn­að­ar­aukn­ingu fyrir bank­ann og mun á end­anum hafa áhrif á þau kjör sem við getum boðið okkar við­skipta­vinum. Hjá því verður ein­fald­lega ekki kom­ist.“

Þegar umfjöll­unin var birt hafði Íslands­banki þegar til­kynnt að hann ætl­aði að lækka inn­láns­vexti á nokkrum reikn­ingum við­skipta­vina sinna, með þeim afleið­ingum að við­skipta­vinir bank­ans myndu ávaxta fé sitt verr en áður. Dögg Hjalta­lín, þáver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Íslands­banka, sagði við Kjarnann að bank­inn hefði þó ekki verið að bregð­ast við sér­staka banka­skatt­inum. Að öðru leyti tjáði Íslands­banki sig ekki um málið.

Vaxtamunur jókst á árinu 2014


En hvað hefur gerst síðan? Íslenskt efna­hags­líf hefur upp­lifað eitt mesta stöð­ug­leika­skeið í manna minnum, reyndar í skjóli hafta sem aftengja landið að mörgu leyti við alþjóð­legan veru­leika. Verð­bólga hefur nán­ast ekki verið til staðar. Kaup­máttur hefur auk­ist. Seðla­bank­inn hefur lækkað stýri­vexti. Vanskil hafa dreg­ist saman. En vaxta­munur við­skipta­bank­anna hefur samt auk­ist.

Í frétt sem birt­ist á vef stétt­ar­fé­lags­ins VR 11. des­em­ber síð­ast­lið­inn kom fram að stóru við­skipta­bank­arnir þrír hefðu allir aukið vaxta­mun sinn á árinu 2014. Þannig hafi vaxta­munur Arion banka auk­ist um 0,2 pró­sent á árinu 2014 og um 0,15 pró­sent hjá Íslands­banka og Lands­bank­anum.

[quote font="0" align="right"]stóru við­skipta­bank­arnir þrír hefðu allir aukið vaxta­mun sinn á árinu 2014. Þannig hafi vaxta­munur Arion banka auk­ist um 0,2 pró­sent á árinu 2014 og um 0,15 pró­sent hjá Íslands­banka og Lands­bank­anum.[/quote]

Þegar stýri­vextir lækk­uðu í byrjun nóv­em­ber 2013 hafi bank­arnir meira að segja nýtt tæki­færið og aukið enn á mun á útláns- og inn­láns­vöxtum.

Bank­arnir hafa lítið tjáð sig um ástæður þess­arrar aukn­ingar. Arion banki gaf reyndar út frétta­til­kynn­ingu 7. jan­úar 2015 vegna vaxta­hækk­anna á íbúð­ar­lánum bank­ans þar sem sagði meðal ann­ars að það væri ekki „hægt að líta fram­hjá því a ðbanka­skattur sem hjá Arion banka er áætl­aður tæpir þrír millj­arðar króna fyrir árið 2014 hefur áhrif til hækk­unar vaxta þar sem hann leggst á allar skuldir, m.ö.o. fjár­mögnun bank­ans, umfram 50 millj­arða króna“.

Sumir þurfa ekki að borga


Það þurfa ekki öll fjár­mála­fyr­ir­tæki að borga hinn sér­staka banka­skatt. Íbúða­lána­sjóður, sem er rek­inn í sam­keppni við hina bank­anna á fast­eigna­lána­mark­aði, er til að mynda unda­skilin. Auk þess var því bætt inn í lögin nokkrum dögum fyrir lok þings í des­em­ber 2013 að sér­stakt frískulda­mark upp á 50 millj­arða króna ætti að gilda. Engin grunn­vinna, útreikn­ingar eða beiðnu um slíkt frískulda­mark lág fyrir. Raunar hefur það aldrei verið útskýrt hvernig sú ákvörðun var tekin, enda báðu þau álit sem send voru inn til efna­hags- og við­skipta­nefndar við með­ferð máls­ins ein­ungis um þriggja og sjö millj­arða króna frískulda­mark.

[caption id="attachment_11456" align="alignnone" width="640"] MP banki borg­aði ekk­ert í sér­stakan banka­skatt á árinu 2014.[/caption]

En frískulda­markið gerir það að verkum að MP banki, fjórði stærsti við­skipta­banki lands­ins, þurfti ein­ungis að borga nokkra tugi millj­óna króna í banka­skatt vegna árs­ins 2013 og önnur fjár­mála­fyr­ir­tæki, meðal ann­ars fjár­fest­inga­bankar, kredit­korta­fyr­ir­tæki og spari­sjóðir, eru und­an­þegnir honum með öllu. Á árinu 2014 borg­aði MP banki ekk­ert í sér­staka banka­skatt­inn. Við­skipta­vinir hans þurftu því ekki að fá á sig aukin vaxta­mun til að borga fyrir hann.

Þegar breyt­ingi var gerð voru skuldir MP banka 55 millj­arðar króna. Margir í fjár­mála­geir­anum voru, og eru, sann­færðir um að frískulda­markið hefði verið sér­sniðið að stöðu MP banka. Því hefur ávallt verið neitað af stjórn­mála­mönn­unum sem tóku ákvörð­un­ina og stjórn­endum MP banka.

Að hluta til velt yfir á almenning


Sérstaki banka­skatt­ur­inn, sem not­aður hefur verið til að stoppa upp í fjár­lagagatið og á að fjár­magna tug­millj­arða króna skaða­bætur til hluta þjóð­ar­innar sem var með verð­tryggð lán á árunum 2008 og 2009, kemur að langstærstu leyti úr þrota­búum föllnu bank­anna. Rík­is­stjórnin er því byrjuð að taka til sín hluta eigna „hrægammanna“, eða erlendra kröfu­hafa. Standist sú skatt­lagn­ing lög mun þessi leið nýt­ast stjórn­völdum vel í bar­áttu sinni gagn­vart sliti búanna og ein­hverri losun fjár­magns­hafta, þótt lík­ast til verði tek­ist á um rétt­mæti þess hvernig pen­ing­unum var ráð­stafað næstu ára­tug­ina.

Það er hins vegar líka ljóst að átta millj­arðar króna koma út íslensku við­skipta­bönk­unum. Og það er ljóst að kostn­að­inum vegna þess­arrar skatt­lagn­ingar hefur verið, að minnsta kosti að hluta, velt yfir á almenn­ing sem hefur þurft að borga hærri vaxta­greiðslur af lánum sínum og fá minni ávöxtun af inn­lánum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár