Eygló Harðadóttir telur að húsnæðisfrumvörpin nái í gegn og verði hluti af lausn kjaradeilna

Eygló Harð­ar­dóttir, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, er enn bjart­sýn á að tvö hús­næð­is­frum­vörp hennar, sem setið hafa föst í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu í sex vikur, muni koma fram, að sam­staða muni nást um þau og að frum­vörpin fái braut­ar­gengi. Hún telur einnig að frum­vörpin tvö geti orðið „mik­il­vægur hluti“ af lausn þeirrar hörðu kjara­deilu sem nú geisar á vinnu­mark­aði. Þetta kom fram í við­tali við hana í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í dag.

Hefur ekki heyrt frá Bjarna andstöðu við frumvörpin


Frum­vörpin, sem snú­ast ann­ars vegar um breyt­ingar á hús­næð­is­bóta­kerf­inu og hins vegar um stofn­fram­lög til leigu­fé­laga, áttu upp­haf­lega að koma fram á haust­þingi. Þegar ljóst varð að svo yrði ekki átti frum­varp um hús­næð­is­bætur að koma fram ekki síðar en 27. febr­úar og frum­varp til laga um hús­næð­is­mál, um stofn­fram­lög til leigu­fé­laga, eigi síðar en 26. mars, sem var síð­asti dagur til að leggja fram mál á Alþingi. Tvö önnur frum­vörp Eyglóar um hús­næð­is­mál, frum­varp um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög og um breyt­ingar á húsa­leigu­lögum, áttu einnig að vera komin fram fyrir þennan frest en það náð­ist ekki. Þau frum­vörp eru komin inn í þingið með afbrigðum og umræða um húsa­leigu­lög hófst í lok síð­asta mán­aðar.

Nú eru ein­ungis níu þingdagar eftir og tím­inn til að leggja fram frum­vörp með afbrigðum orðin ansi knappur. Eygló sagði á Sprengisandi að það hafi tekið tvö ár að vinna frum­vörpin. Þegar hún hafi tekið við lyklunum í ráðu­neyt­inu, sem Sam­fylk­ingin hefði stýrt í mörg ár á undan, hafi ekki einu sinni verið til drög að frum­vörpum um breyt­ingar á hús­næð­is­kerf­inu. Hún sagði ekk­ert óeðli­legt að það taki fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið sex vikur að meta og reikna út hver áhrifin af frum­vörp­unum. Hún hafi ekki heyrt frá Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að and­staða væri við frum­vörpin innan ráðu­neytis hans.

Orkubitarnir virkuðu ekki


Líkt og áður sagði eru um sex vikur síðan að frum­vörpin tvö voru send til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í kostn­að­ar­mat. Upp­haf­lega var von­að­ist Eygló til þess að því mati myndi ljúka skömmu eftir páska en af því varð ekki. Þann 7. apríl síð­ast­lið­inn sendi hún starfs­fólki fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins kveðju á Facebook. Með kveðj­unni, sem var sett fram í korti, fylgdi haugur af orku­bitum.

Í kort­inu var starfs­fólk á skrif­stofu opin­berra fjár­mála hvatt til að klára kostn­að­ar­mat á frum­vörpum hennar um upp­bygg­ingu félags­legs leigu­hús­næðis og um aukin hús­næð­is­stuðn­ing fyrir leigj­endur. „Vonandi munu þessir orku­bitar hjálpa ykkur við að meta áhrifin á rík­is­sjóð og þjóð­ar­bú­skap­inn að hjálpa þeim allra fátæk­ustu að fá öruggt húsa­skjól“. Þessi hvatn­ing virð­ist ekki hafa skilað miklu því í dag, rúmum mán­uði síðar, er mati á kostn­aði frum­varpana enn ekki lokið.

Mikilvægt innlegg í kjaradeilur


Í við­tal­inu við Sprengisand sagði Eygló að frum­vörp hennar gætu orðið mik­il­vægt inn­legg í þær hörðu kjara­deilur sem nú geisa á vinnu­mark­aði. „Ég held að þau geti verið mjög mik­il­vægur hluti af lausn­inni,“ sagði Eygló.

Hún greindi einnig frá því að rík­is­stjórnin hefði átt í sam­ráði og sam­tali við deilu­að­ila þar sem mögu­legar skatt­kerf­is­breyt­ingar og breyt­ingar á hús­næð­is­málum hafi verið kynntar fyrir þeim sem inn­legg í kjara­deil­urnar. Hins vegar hafi ekki verið lagt fram neitt form­legt til­boð.

Ekkert hafi verið rætt um það að setja lög á verk­föll innan rík­is­stjórn­ar­innar, að sögn Eyglóar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár