Ennþá nokkur bið í að fjármálaráðuneytið afgreiði húsnæðismál Eyglóar

Fjár­mála­ráðu­neytið seg­ist von­ast til þess að lokið verði við kostn­að­ar­mat á frum­varpi Eyglóar Harð­ar­dóttur um hús­næð­is­bætur í lok þess­arar viku. Hitt frum­varp hennar sem beðið hefur verið, um stofn­fram­lög til leigu­fé­laga, verður hins vegar ekki til­búið strax. Þetta kemur fram í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið. Miðað við starfs­á­ætlun Alþingis verður að telj­ast afskap­lega ólík­legt að málin tvö verði kláruð án þess til þing verði lengt.

„Ráðu­neytið er að fara yfir ýmsar spurn­ingar og álita­mál sem hafa vaknað í tengslum við þessi áform og hefur verið að afla upp­lýs­inga og talna­efnis sem hefur vantað fyrir áhrifa­matið. Gert er ráð fyrir að fara þurfi yfir hluta af þeim álita­efnum með félags- og hús­næð­is­mála­ráðu­neyt­inu í vik­unni,“ segir í svari fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans. „Vonast er til að hægt verði að ganga frá nið­ur­stöðum og ljúka við umsögn um frum­varp um hús­næð­is­bætur í þess­ari viku en meiri vinna er eftir í grein­ingu á frum­varpi um stofn­fram­lög til leigu­fé­laga.“

Lengi beðið eftir frumvörpunum


Frum­vörpin tvö sem um ræðir áttu upp­haf­lega að koma fram á haust­þingi. Þegar ljóst varð að svo yrði ekki átti frum­varp um hús­næð­is­bætur að koma fram ekki síðar en 27. febr­úar og frum­varp til laga um hús­næð­is­mál, um stofn­fram­lög til leigu­fé­laga, eigi síðar en 26. mars, sem var síð­asti dagur til að leggja fram mál á Alþingi. Tvö önnur frum­vörp Eyglóar um hús­næð­is­mál, frum­varp um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lög og um breyt­ingar á húsa­leigu­lögum, áttu einnig að vera komin fram fyrir þennan frest en það náð­ist ekki. Þau frum­vörp eru komin inn í þingið með afbrigðum og umræða um húsa­leigu­lög hófst á Alþingi í dag.

Eftir dag­inn í dag eru aðeins ell­efu funda­dagar eftir á Alþingi sam­kvæmt starfs­á­ætlun, auk eld­hús­dags. Fundir eru í þing­inu á morgun og á fimmtu­dag en að þeim loknum verður ekki aftur þing­fundur fyrr en mánu­dag­inn 11. maí, þar sem næsta vika er nefnda­vika í þing­inu. Þá verða níu þing­funda­dagar eftir.

Frumvarp um stofn­fram­lög til leigu­fé­laga verður því ekki til­búið til að koma inn í þingið fyrr en í fyrsta lagi 11. maí. Ef hægt verður að ganga frá frum­varpi um hús­næð­is­bætur í lok þess­arar viku á enn jafn­framt eftir að koma því inn í þingið og ræða þarf bæði frum­vörpin í þremur umræðum.

Frum­vörpin hafa einnig verið nefnd sem ein­hvers konar inn­legg stjórn­valda inn í kjara­deil­urnar. Eygló Harð­ar­dóttir hefur sagt að Alþingi þurfi ein­fald­lega að starfa eins lengi og þarf til þess að klára þessi mál og ef ein­hvern tím­ann væri til­efni til að halda sum­ar­þing væri það nú. „Allur vinnu­mark­að­ur­inn er undir og við verðum að afgreiða þessi mál áður en Alþingi fer í frí,“ sagði hún við Frétta­blaðið 27. mars síð­ast­lið­inn. Um miðjan apríl sagði hún hins vegar í við­tali við Við­skipta­blaðið að frum­vörpin verði lögð fram á næsta haust­þingi ef það tekst ekki á þessu þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár