Hvað gera bankarnir fyrir viðskiptavini sína vegna COVID-19?

Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn hafa gefið út yfir­lýs­ingar þar sem farið er yfir hvað stendur við­skipta­vinum þeirra til boða á tímum kór­ónu­veiru.

Þrír stærstu bank­arnir á Íslandi, Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn, hafa allir sent frá sér sér­stakar til­kynn­ingar til að bregð­ast til því ástandi sem upp er komið vegna COVID-19 far­ald­urs­ins.

Þá kemur fram í til­kynn­ingu Íslands­banka að hann hafi gripið til marg­vís­legra ráð­staf­ana til að tryggja órofna þjón­ustu við við­skipta­vini ásamt því að draga úr lík­indum á smiti í hópi starfs­manna og við­skipta­vina sem sækja þjón­ustu til bank­ans.

„Bankinn er vel í stakk búinn til að takast á við aðstæður sem þessar og eru eigin- og lausa­fjár­hlut­föll bank­ans sterk. Starfs­fólk bank­ans mun halda áfram að eiga í góðum sam­skiptum við við­skipta­vini og leita lausna á meðan þessu tíma­bili stendur. Bankinn mun koma til móts við þarfir við­skipta­vina, svo sem með því að bjóða fryst­ingu afborg­ana útlána tíma­bundið hjá þeim við­skipta­vinum, ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum, sem mest verða fyrir áhrifum af þessum for­dæma­lausu aðstæðum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, segir í til­kynn­ing­unni þetta vera for­dæma­lausa tíma „en við munum gera allt okkar til að sýna sam­fé­lags­lega ábyrgð. Við fögnum aðgerðum stjórn­valda til að koma til móts við fyr­ir­tæki og munum við einnig leggja áherslu á að leita far­sælla lausna með ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum í gegnum þetta tíma­bundna ástand.“

Bjóða greiðsluhlé

Arion banki býður ein­stak­lingum greiðslu­hlé vegna Covid-19, að því er fram kemur í til­kynn­ingu frá bank­anum.

Þá segir að bank­inn muni koma til móts við þá ein­stak­linga sem sjá fram á erf­ið­leika við að standa skil á afborg­unum íbúða­lána vegna Covid-19. Þessum ein­stak­lingum bjóð­ist að gera hlé á afborg­unum lán­anna í allt að þrjá mán­uði til að auð­velda þeim að takast á við fyr­ir­sjá­an­legar áskor­anir.

„Ef þörf er á frek­ari sveigj­an­leika er farið yfir málin með hverjum og einum við­skipta­vini,“ segir í til­kynn­ingu Arion banka.

Bankinn vel í stakk búinn til að takast á við ástandið

Á vef Lands­bank­ans kemur fram að bank­inn bjóði ýmis úrræði fyrir ein­stak­linga sem sjá fram á að lenda í greiðslu­erf­ið­leikum vegna óvæntra aðstæðna – atvinnu­missis eða veik­inda – meðal ann­ars að sækja um að fresta greiðslum af íbúða­lánum. Ýmsar lausnir séu einnig í boði fyrir fyr­ir­tæki sem eru í við­skiptum við bank­ann og lenda í tíma­bundnum erf­ið­leikum.

Bankinn minnir enn fremur á að í Lands­banka-app­inu og net­bank­anum sé hægt að breyta yfir­drátt­ar­heim­ild, skipta kredit­korta­reikn­ingum og fá Aukalán til allt að 5 ára.

Lilja Björk Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Lands­bank­ans, segir að þau ætli að vinna með og styðja við við­skipta­vini þeirra á meðan þetta gengur yfir og að bank­inn sé vel í stakk búinn til að takast á við þetta tíma­bundna ástand.

Vegna COVID-19 biður bank­inn við­skipta­vini vin­sam­leg­ast um að nýta sér staf­ræna þjón­ustu bank­ans ef þess er kostur, fremur en að koma í útibú.

„Við hvetjum alla við­skipta­vini sem sjá fram á greiðslu­erf­ið­leika að hafa sem fyrst sam­band við bank­ann til að fá lausnir og ráð­gjöf við hæfi,“ segir á vef bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár