Brynjar sakar Pírata um popúlisma – Björn Leví segir Brynjar vera latan og gera ekkert

Tveir þing­menn, annar úr Sjálf­stæð­is­flokki og hinn frá Pírötum, tók­ust hart á á sam­fé­lags­miðli í gær. Sá fyrr­nefndi ásak­aði hinn um popúl­isma. Sá síð­ar­nefndi sagði hinn vera latan og reyna að gera sem minnst.

„Fólk er í póli­tík til að hafa áhrif. Vald er mik­il­vægt í þeim þeim efnum en hægt er að hafa áhrif án þess að sitja á valda­stóli. En þá þurfa menn að hafa ein­hverja póli­tíska hug­mynda­fræði og sýn aðra en þá að aðrir séu óheið­ar­legir, spilltir og ómögu­legir í alla staði. Slík sýnd­ar­mennska dugar oft­ast skammt í póli­tík og er ávísun á pirr­ing og þreytu.“

Þetta skrif­aði Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, í stöðu­upp­færslu sem hann birti á Facebook í gær. Tilefnið var ákvörðun tveggja þing­manna Pírata, Smára McCarthy og Helga Hrafns Gunn­ars­sonar, að ætla ekki að bjóða sig fram í næstu kosn­ingum. Ofan­greindur texti átti, að sögn Brynjars, að vera ábend­ing til þing­mann­anna tveggja um ástæður þess að fólk tæki beinan þátt í stjórn­málum.

[adspot]Einn þeirra sem svarar Brynjari er Björn Leví Gunn­ars­son, þing­maður Pírata. Hann spurði á móti hvaða árangri Brynjar vildi ná með þátt­töku sinni í póli­tík og og benti á að hún virt­ist bundin við það að vilja fang­elsa for­eldra sem tálma, og vís­aði þar í eina frum­varpið sem Brynjar hefur lagt fram á þing­ferli sínum sem teng­ist ekki flutn­ingi fyrir hönd nefndar sem hann sitji í.

Til við­bótar við það komi svo áhyggjur Brynjars af kostn­aði við að sinna eft­ir­liti með fram­kvæmda­vald­inu með fyr­ir­spurnum, en Brynjar hefur lagt fram fyr­ir­spurnir um hvað það kosti stjórn­sýsl­una að svara fyr­ir­spurnum þing­manna. Sá þing­maður sem setur fram flestar fyr­ir­spurnir er Björn Leví. „Til þess að svara spurn­ing­unni fyrir þig, þá ertu í póli­tík til þess að gera ekki neitt. Til þess að sem minnst breyt­ist. Þú nærð þeim árangri með því að vera latur og gera sem minnst. Það sem er ánægju­legt er að nú er það mjög aðgengi­legt að sjá hvað það kostar skatt­greið­endur að hafa þing­mann sem gerir ekki neitt. Ef þú hefur áhyggjur af kostn­aði, þá ættir þú frekar að hafa áhyggjur af því en kostn­aði af því að vinna eft­ir­litsvinn­una.“

Að gleypa ælu

Brynjar sagði á móti að Björn Leví hefði litla inn­sýn í póli­tík þrátt fyrir umtals­verða þing­setu. „Ég er hluti af meiri­hluta og rík­is­stjórn. Þar eru lagðar línur um verk­efnin framundan og hvað ráð­herrar okkar eigi að leggja áherslu á. Ég er ekki á einkaflippi heldur er ég hluti af liði. Aðal­starf mitt er lög­gjaf­ar­starf og hafa áhrif í þeim efnum. Ég fór ekki á þing til að vera eft­ir­lits­maður, það er algert auka­starf. Hvað þá að ég telji eft­ir­lit fel­ast í því að íþyngja stjórn­kerf­inu með til­gangs­lausum fyr­ir­spurnum. Ég er ekki maður breyt­inga breyt­ing­anna vegna og tel að sam­fé­lagið eigi að þró­ast hægt og þétt til betri vegar. Það er eðli frjálsra sam­fé­laga þegar alvöru­stjórn­mála­menn eru í brúnni. Svo eru til stjórna­mál­menn sem halda að þeir eigi að hanna nýtt sam­fé­lag. Þeir eru oft miklir popúlistar og sam­eig­in­legt er með þeim öllum að að þeir nota fra­s­ann um að aðrir eru óheið­ar­legir og spilltir. Þeir hafa stundum kom­ist til valda en alltaf hefur það endað með hörm­ungum. Svo er það afskap­lega bil­leg vörn í umræð­unni að saka and­stæð­ing­inn um leti, spill­ingu, jafn­vel þjófn­aði og þaðan af verra. Þið hljótið að geta gert betur en það, sér­stak­lega þau ykkar sem sjást ekki vikum og jafn­vel mán­uðum saman á þing­inu.“

Björn Leví brást við og spurði Brynjar hvort hann væri að gleypa æluna í þessu aðal­starfi sínu, og vísar þar í orð Brynjars frá árinu 2017, þegar hann sagð­ist hafa „kyngt ælunni“og sam­þykkt lög um jafn­launa­vottun „í þágu mik­il­vægra hags­muna“, en Sjálf­stæð­is­flokkur sat þá í skamm­vinnri stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð, sem börð­ust sér­stak­lega fyrir mál­inu.

Björn Leví spurði enn fremur hvað Brynjar hafi verið að gera sem for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, en hann gegndi því starfi um tíma árið 2017 og hefur setið í nefnd­inni árum saman. „Finnst þér það fjár­munum vel varið að hafa full­trúa þar sem sinnir ekki hlut­verki nefnd­ar­innar heldur er bara í ein­hverju „liði"? Finnst þér liðið mik­il­væg­ara en hlut­verk þings og eft­ir­lits­nefndar?“

Meint leti af yfirlögðu ráði

Björn Leví sagð­ist hafa ágætis inn­sýn í póli­tík og að hann skildi vel hvernig það væri val að sinna lið­inu umfram vinn­unni. „Það er til orð yfir það val og það orð er spill­ing. Að leyfa valda­fólki að kom­ast upp með mis­notkun á valdi þegar það er þitt starf sem eft­ir­lits­að­ila að upp­lýsa um slíkt. Þessi pist­ill þinn er sorg­legur vitn­is­burður um hvernig þú velur að stunda póli­tík. Að sinna lið­inu í stað­inn fyrir að sinna verk­efnum þings­ins. Fyrir vikið verður yfir­gangur fram­kvæmda­valds­ins meiri og þingið breyt­ist í stimp­il­stofnun yfir­gangs og lög­gjafar. Það er ekki þing­ræði eins og þú hefur talað um. Það er ráð­herraræði og þú ert þar peð sem þarft að gleypa æluna.“

Hann sagð­ist nota orðið leti yfir störf Brynjars vegna þess að skjal­festur afrakstur af vinnu hans á þingi væri afskap­lega lít­ill á allt of mörgum árum. Það væri ásökun byggð á gögnum en ekki út í loftið. „Ég veit að það er sárt þegar bent er á spill­ingu liðs­fé­laga. Með­virknin er samt verri. Hún leyfir spill­ing­unni að halda áfram. Þú ert með­virknin af því að með því að sinna ekki vinn­unni þinni heldur bara „spila með lið­inu". Sama hvað ger­ist. Gleypir bara ælu og spilar með. Ég veit að þú ert ágæt­lega gáf­aður. Það þýðir að þú velur að sinna vinn­unni þinni á þennan hátt af yfir­lögðu ráði. Satt best að segja finnst mér það verra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár