Hverjir lækka fylgi flokkanna?

Gamalt fólk vill síður kjósa Pírata og yngstu kjós­end­urnir vilja hvorki VG né Sam­fylk­ingu. Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn eru með lægsta fylgið hjá milli­tekju­fólki og karlar kjósa ekki Bjarta fram­tíð. For­ystu­menn flokk­anna skoða ástæð­urnar og ræða úrbætur

For­svars­menn stjórn­mála­flokk­anna hafa ýmsar skýr­ingar á mis­mun­andi fylgi þegar litið er til ólíkra þjóð­fé­lags­hópa. Þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks segir til dæmis umræð­una hafa verið erf­iða, for­maður Vinstri grænna ætlar að tefla fram ungu fólki í næstu kosn­ingum, þing­flokks­for­maður Pírata seg­ist aldrei hafa reynt að höfða til ákveð­inna þjóð­fé­lags­hópa og vara­for­maður Sam­fylk­ingar segir að erfitt geti reynst að vinna aftur traust kjós­enda, en það sé nauð­syn­legt. Formaður Bjartrar fram­tíðar segir flokk­inn þurfa að spýta í lóf­ana til að auka fylgið og rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir stjórn­mál virka óspenn­andi fyrir ungt fólk.

Mark­tækur munur er á fylgi stjórn­flokka eftir kyni, heim­il­is­tekjum og aldri kjós­enda í nýj­ustu skoð­ana­könnun MMR. Píratar, sem eru með lang­mest fylgi, tæp 40 pró­sent, eru til að mynda með nær helm­ingi lægra fylgi meðal fólks sem er 68 ára og eldra, eða 21 pró­sent. Vinstri græn, sem eru með 12 pró­senta heild­ar­fylgi, eru ein­ungis með fjög­urra pró­senta fylgi meðal ungs fólks á aldr­inum 18 til 29 ára og Sjálf­stæð­is­flokkur, sem mæld­ist með tæp 20 pró­sent, er með rúm 12 pró­sent á bak við sig í lægri milli­tekju­hópnum. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er með mun meira fylgi á lands­byggð­inni heldur en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og Björt fram­tíð virð­ist ekki ná til karla.

Kjarninn rýndi í töl­urnar á bak við nið­ur­stöður könn­unar MMR, sem gerð var 12. til 20. jan­úar 2016, og fékk til­lögur for­ystu­manna flokk­anna að úrbótum og skoð­anir þeirra á ástæð­unum að baki þessum fylg­is­muni eftir þjóð­fé­lags­hópum. Breyt­ingar á fylgi flokka voru í öllum til­fellum innan vik­marka frá síð­ustu könnun og var fjöldi svar­enda 922.

Nið­ur­stöður könn­unar Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2, sem birt var í dag, sýna Pírata með 42 pró­senta fylgi og Bjarta fram­tíð ein­ungis með 1,5 pró­sent. Þar voru svar­endur þó mun færri, um 450, og vik­mörk því hærri en hjá MMR.

Erum ekki að vinna okkar baráttu

Lægra fylgi hjá körlum, fólki yfir fimmtugu, lægsta tekjuhópnum og fólki með há laun.

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, segir flokk­inn oft hafa séð mun á fylgis­tölum eftir kynjum, en aldrei svona skýran. „Mér finnst ólík­legt að það sé svona rosa­lega mik­ill munur, en við höfum séð meira fylgi hjá konum en körlum í gegn um tíð­ina,” segir hann. „Það er margt sem getur komið til eins og áherslur okkar í vel­ferðar- og mann­rétt­inda­málum. En þeir mála­flokkar eiga svo sem ekk­ert að höfða betur til kvenna en karla.”

Fylgi Bjartrar fram­tíðar hefur verið á hraðri nið­ur­leið und­an­farin miss­eri.

„Þetta er áhyggju­efni og við höfum verið að remb­ast við að koma okkur betur á fram­færi,” segir hann. „Fyrsta áherslu­at­riðið er að axla ábyrgð okkar sem þing­menn og sveit­ar­stjórn­ar­menn og standa fast á okkar stefnu­málum í von um að fólk styðji okkur. Því það er þörf fyrir umbóta­sinn­aðan, frjáls­lyndan miðju­flokk í íslenskri póli­tík.”

Óttarr segir Bjarta fram­tíð hafa verið stofn­aða sem gras­rót­ar­flokk sem hafi úr litlum fjár­munum að spila til að stunda hefð­bundna stjórn­mála­bar­áttu. „En við erum ekki að vinna okkar bar­áttu og þurfum að gera eitt­hvað í því.”

Umræðan um flokkinn hefur verið erfið

Lægra fylgi hjá ungu fólki, íbúum höfuðborgarsvæðisins og millitekjuhópum.

„Við verðum að reyna að bæta okkur og nálg­ast unga fólkið betur,” segir Þórunn Egils­dóttir, starf­andi þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks. „Umræðan um flokk­inn hefur verið erfið og ýmsir frasar á lofti sem virð­ast ná til fólks. Frasar sem ég er ekki sam­mála um að séu réttir. En við erum með fullt af góðu og ungu fólki með okkur í flokknum.”

Þórunn segir sam­spil sveit­ar­stjórn­ar­stigs­ins og land­spóli­tík­ur­innar mögu­lega vera eina af skýr­ing­unum á lágu fylgi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

„Við þurfum að horfa á þetta allt sem heild. Lands­byggðin má ekki vera sér. Einhvers staðar hefur mynd­ast gjá þarna á milli sem við verðum að brúa,” segir hún. „Ég held að við höfum ekki komið okkar mál­efnum nægi­lega skýrt á fram­færi og það eru mörg af okkar góðu málum sem hafa ekki náð í gegn. Nú hafa ráð­stöf­un­ar­tekjur til dæmis auk­ist en við höfum ekki komið þessu nægi­lega skýrt á fram­færi og fólk er ekki að upp­lifa þetta. Það vantar eitt­hvað í upp­lýs­inga­flæðið en þetta lag­ast þegar þetta skýrist betur.”

Aldrei með strategíur til að ná í kjósendur

Lægra fylgi meðal ellilífeyrisþega, fólks með yfir milljón á mánuði í heimilistekjur og kvenna.

„Ég veit í raun ekki hvers vegna svona margir styðja við okkur yfir höfuð og þá er erfitt fyrir mig að svara hvers vegna ákveðnir hópar gera það ekki,” segir Birgitta Jóns­dóttir, þing­flokks­for­maður Pírata. Hún bendir á að konur séu mjög áber­andi meðal Pírata, sem sé mjög langt frá því að vera karllægur flokkur. „En flestir sem eru með yfir milljón á mán­uði styðja vænt­an­lega Sjálf­stæð­is­flokk­inn, enda hafa þeir gert vel við þann hóp.”

Birgitta segir flokk­inn aldrei hafa verið með ákveðnar stra­teg­íur varð­andi hvernig eigi að ná í kjós­endur.

„Við ein­beitum okkur að því að vinna vinn­una okkar vel, en ekki reyna að höfða til ákveð­ins hóps. En við eigum lítið af pen­ingum og höfum því ekki aug­lýst okkur mikið. Kannski nær boð­skapur okkar ekki eins vel til þeirra sem eru ekki á net­inu því það er lang­mest virkni þar.”

Erfitt að snúa svona skipi við

Lægra fylgi hjá ungu fólki, fólki undir lágtekjumörkum og með lágmarkslaun.

Katrín Júl­í­us­dóttir, vara­for­maður Sam­fylk­ingar, segir flokk­inn með­vit­aðan um stöð­una.

„Við erum búin að missa gríð­ar­legt fylgi og höfum helm­ing­ast á einu ári í könn­unum,” segir hún. „Það kemur mér ekki á óvart að við séum búin að glata trún­aði þeirra hópa sem voru vanir að kjósa okkur.”

Katrín seg­ist vita að traustið verði ekki unnið til baka á einni nóttu en von­ast til að þessir hópar sjái að það skipti gríð­ar­legu máli fyrir kjós­endur að það sé sterkur jafn­að­ar­manna­flokkur á svið­inu.

„Þetta er kjarni flokks­ins, bar­átta fyrir fólk með lægstu tekj­urnar. En það kann að vera að við höfum villst af leið og við þurfum að taka það alvar­lega,” segir hún. „Við höfum glatað trún­aði meðal kjós­enda og það er eðli­legt að ungt fólk stökkvi ekki á það. Við þurfum að tala betur til þeirra og gefa betri mynd af því hvert okkar hlut­verk er í íslenskri póli­tík. Það er erfitt að snúa svona skipi við, en ég er sann­færð um að við munum geta það.”

Stjórnmálin virka óspennandi og óskilvirk

Lægra fylgi hjá ungu fólki og heimilum með millitekjur.

„Stjórn­málin virka óspenn­andi og óskil­virk, enda er alltaf verið að tönnlast á tækni­at­riðum úr for­tíð­inni en ekki rætt um hvernig land við viljum byggja,” segir Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari Sjálf­stæð­is­flokks­ins. „En ef við vissum hvernig ætti að bregð­ast við þessu værum við ekki í þess­ari stöðu.”

Fylgi flokks­ins er líka lægra meðal heim­ila með milli­tekjur. Áslaug Arna telur að það eigi eftir að breyt­ast þegar skatta­lækk­anir og afnám tolla og vöru­gjalda skili sér betur til lands­manna.

Hún von­ast til þess að grunn­gildi flokks­ins fái hljóm­grunn meðal ungra kjós­enda. „Þó að skoð­ana­kann­anir sýna ekki hátt fylgi þá er ég þess full­viss að ungt fólk vill fá ábyrgð og frelsi til þess að standa á eigin fótum og gera sín mis­tök,” segir hún.

„Öllum hefð­bundnu flokk­unum hefur mis­tek­ist að fá ungt fólk til liðs við sig og Pírata­fylgið er fylgi fyrir eitt­hvað nýtt, ekki endi­lega fylgi við mál­efna­skrá þeirra. Per­sónu­lega vil ég breyta póli­tík­inni mikið, en það er erfitt og þungt verk­efni.”

Ætla að tefla fram ungu fólki

Lægra fylgi hjá körlum, ungu fólki og fólki undir lágtekjumörkum.

„Mér finnst lík­leg­ast að þetta sé sami hóp­ur­inn, það er unga fólkið og lág­tekju­hóp­ur­inn, jafn­vel stúd­entar. En allir flokkar þurfa að vinna unga fólkið til baka, sem er nú að flykkja sér að baki Pírötum,” segir Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna. „VG þarf líka að skoða fylg­is­mun­inn á milli karla og kvenna, hann er áber­andi. Við erum yfir­lýstur kven­frels­is­flokkur með konu sem for­mann og kannski vilja konur þá frekar kjósa okkur.”

Stjórn­mála­menn­ing og vinnu­brögð eins og Borg­un­ar­málið séu ekki til þess fallin að auka traust ungs fólks á stjór­málum, segir Katrín. Stór hluti félags­manna VG sé af yngri kyn­slóð­inni og þangað verði flokk­ur­inn að sækja.

„Við munum tefla fram ungu fólki með fram­tíð­ar­sýn sem fólk hefur trú á. Það verður áber­andi hjá okkur næst. Við eigum að hafa allt til alls á Íslandi og það skiptir máli hvernig auð­ur­inn dreyf­ist, hvernig er höndlað með hann og hvernig gengið er á auð­lindir. Þetta verða eitt af stóru mál­unum í næstu kosn­ingum.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár