Spyr hvernig hægt sé að komast hjá því að allt fari í „blússandi losun“ á ný

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda er nán­ast sú sama milli áranna 2017 og 2018. Sviðs­stjóri hjá Umhverf­is­stofnun segir það ekki koma á óvart en veltir fyrir sér fram­tíð­inni í ljósi COVID-19 far­ald­urs­ins.

Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórn­valda var svo gott sem óbreytt milli áranna 2017 og 2018 en hún minnk­aði um 0,1 pró­sent. Nið­ur­stöður þess efnis voru birtar í vik­unni.

Elva Rakel Jóns­dóttir, sviðs­stjóri hjá Umhverf­is­stofnun, segir í sam­tali við Kjarnann að þessar nið­ur­stöður komi ekki á óvart. „Þetta er í takt við það sem við höfum verið að sjá í los­un­ar­töl­unum und­an­farið, þ.e. að þær hafi verið að breyt­ast mjög lítið. Heild­ar­losun er eig­in­lega búin að vera óbreytt á Íslandi und­an­farin 10 ár – eða til árs­ins 2018.“

[adspot]

Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef stofn­un­ar­innar var hámarki á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda náð árið 2007. Eftir hrun hafi gætt tölu­verðs sam­dráttar en síðan 2011 hafi losun verið til­tölu­lega stöðug.

Elva Rakel segir að spenn­andi verði að sjá hvort aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum sem tók gildi árið 2018 beri strax mæl­an­legan árangur í bók­haldi næsta árs eða hvort þörf verði á að bíða lengur.

Árið 2020 verður stórmerkilegt

Varðandi árið í ár þá segir Elva Rakel að bók­haldið sem kemur árið 2022 fyrir þetta ár verði stór­merki­legt. „Vegna þess að núna er mikið minni losun í gangi í sam­fé­lag­inu. Miklu minni akstur, miklu minna flug og sam­dráttur er á ýmsum sviðum. Það er því við­búið að við munum sjá mik­inn sam­drátt í losun fyrir árið 2020,“ segir hún.

Hún bendir á að vegna þess að aðgerða­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar hafi ekki tekið gildi fyrr en árið 2018 þá end­ur­spegli þessar nið­ur­stöður stöð­una eins og hún var áður en gripið var til þeirra aðgerða sem eru í gangi núna. „Ég myndi segja að það hafi allir vænt­ingar um og búist við því að sam­dráttur verði á losun í kjöl­far þess að aðgerð­irnar komi til fram­kvæmda. En það er erfitt að segja til um nákvæm­lega hversu hröð hún verður þrátt fyrir að til séu ákveðnar spár um það. Menn ættu ekki að reikna með að los­unin detti niður, heldur er þetta kúrfa sem við erum að reyna að mynda. Við erum að búa til brekk­una niður á við en hún er ekki enn hafin.“

Elva Rakel segir að stóra verk­efnið – jafn­vel fyrir öll sam­fé­lög heims­ins – sé að spyrja sig að því hvernig hægt sé að halda þessum sam­drætti áfram í losun sem nú má sjá vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. „Hvernig komumst við hjá því að allt fari í blússandi losun á ný með til­heyr­andi afleið­ingum?“ spyr hún. Það sé verð­ugt verk­efni.

Stjórnvöld gætu reynt að flýta aðgerðum sínum

En hvernig er hægt að halda þessum sam­drætti áfram eftir að far­aldr­inum lýkur? Elva Rakel segir að henni finn­ist það senni­legt að ríki heims­ins muni leggja meiri áherslu á að tíma­lína þeirra verk­efna, sem þau ætl­uðu sér hvort sem er að fara í, byrji fyrr vegna þeirra aðstæðna sem upp eru komnar. „Ríkin eru búin að gera aðgerða­á­ætl­anir sem eiga að ná til áranna 2030 eða 2040. Rík­is­stjórnir heims­ins gætu reynt að flýta að ein­hverju leyti tíma­lín­unni á aðgerðum sínum, þannig að mögu­lega nái þær að grípa tæki­færið sem gefst núna.“ Það væri ósk­andi.

Hún bendir á að auð­vitað stang­ist ákveðnir hags­munir þarna á, fólk þarf að hafa vinnu og hjól atvinnu­lífs­ins að snú­ast. „Það hljóta þó að verða breyt­ingar á ferða­mynstri – sér­stak­lega í tengslum við atvinnu fólks. Ég held að það hljóti að vera að fólk þurfi að fara að rök­styðja gjörðir sínar þegar það þarf að fara í ferð vegna vinnu.“ Þá sé rétt að spyrja hvort ekki nægi að hafa fjar­fund.

„Nú sjáum við það að fólk getur tekið allt í fjar­fundi. Það eru afskap­lega fá til­efni sem kalla á ferðir. Þannig að við þurfum að fara að sjá áherslu­breyt­ingar þar,“ segir hún.

Má ekki gleyma vegasamgöngunum

Í þessum nýju nið­ur­stöðum kemur enn fremur fram að helstu upp­sprettur sem falla undir beina ábyrgð íslenskra stjórn­valda séu vega­sam­göngur, olíu­notkun á fiski­skipum, nytja­jarð­vegur, losun frá kæli­m­iðlum og losun frá urð­un­ar­stöðum.

Elva Rakel minn­ist sér­stak­lega á hlut­fall los­unar frá akstri hér á landi en það er mjög hátt. „Þrátt fyrir að við Íslend­ingar fljúgum mikið þá má ekki gleyma vega­sam­göngum. Og það er eitt­hvað sem stjórn­völd geta haft áhrif á; þau geta flýtt fyrir orku­skiptum í sam­göngum tölu­vert mikið með inn­viða­upp­bygg­ingu, íviln­unum og ýmsum öðrum aðgerðum,“ segir hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár