„Við tökum glöð að okkur það hlutverk að leiða saman ólík öfl að bestu niðurstöðu“

For­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG seg­ist sjá hættur víða um heim þar sem sam­fé­lög brotni upp vegna skaut­unar í stjórn­mála­um­ræð­unni. „Ísland má ekki og á ekki að verða þannig.“ Lands­fundur Vinstri grænna stendur yfir í dag.

Katrín Jakobsdóttir flutti ávarrp á landsfundi VG í morgun.
Katrín Jak­obs­dóttir flutti ávarrp á lands­fundi VG í morgun. Mynd: Steinþór Rafn Matthíasson

„Við Vinstri-græn höfum sýnt það að við hefjum verk­efnin og ljúkum þeim, erum með skýr mark­mið og erum til í að taka slag­inn. Verkin sýna merkin. Og við viljum halda áfram að vinna í þágu fólks­ins í land­inu.“

Þetta sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna, á raf­rænum lands­fundi flokks­ins sem hald­inn er í dag.

Í ávarpi sínu fór hún yfir stefnu­á­herslur flokks­ins og hverju þau hefðu áorkað í rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu. „Við eigum sam­fé­lag þar sem við erum fær um að mæta hvert öðru af virð­ingu og ræða okkur niður að nið­ur­stöðu.“

Katrín sagði að það hefði aldrei verið mik­il­væg­ara að standa vörð um það sam­fé­lag. „Við sjáum hætt­urnar víða um heim þar sem sam­fé­lög brotna upp vegna skaut­unar í stjórn­mála­um­ræð­unni. Ísland má ekki og á ekki að verða þannig. Við tökum glöð að okkur það hlut­verk að leiða saman ólík öfl að bestu nið­ur­stöðu. Ekki ein­göngu vegna þess að það er rétt að gera það – heldur vegna þess að við veljum sam­talið fram yfir berg­máls­hell­inn.“

Þá kom fram í máli hennar að Ísland væri land tæki­fær­anna. „En það er ekki sjálf­gefið að við öll fáum notið þeirra. Þess vegna er það okkar hlut­verk að skapa sam­fé­lag þar sem öllum býðst að nýta þessi tæki­færi.

Næsta rík­is­stjórn snýst um þetta; jöfn tæki­færi og jöfn rétt­indi allra. Næsta rík­is­stjórn snýst um að bæta lífs­kjör á Íslandi með sjálf­bærni að leið­ar­ljósi. Við munum öll sjá hversu miklu inn­viða­upp­bygg­ing und­an­far­inna ára mun skila land­inu fram á við. Næsta rík­is­stjórn snýst um að snúa vörn í sókn í bar­átt­unni gegn lofts­lags­vánni. Næsta rík­is­stjórn snýst líka um að stíga stór skref í að auka verð­mæta­sköpun í öllum greinum með auk­inni áherslu á þekk­ing­ar­geir­ann og skap­andi greinar.“

Að lokum sagði Katrín að þessa rík­is­stjórn væru þau til­búin að leiða og „tryggja að sú bjarta fram­tíð­ar­sýn sem við stöndum fyrir verði leið­andi við rík­is­stjórn­ar­borðið á næsta kjör­tíma­bilið og þannig tryggja áfram vel­sæld og fram­farir fyrir Ísland – fyrir okkur öll“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár