Svandís leggur fram frumvarp sem hækkar veiðigjöld um 2,5 milljarða á næsta ári

Í apríl í fyrra var sam­þykkt frum­varp um flýti­fyrn­ingar. Til­gangur þess var að til að hvetja til fjár­fest­inga á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs. Afleið­ing­arnar urðu meðal ann­ars þær að veiði­gjöld næsta árs verða að óbreyttu 2,5 millj­örðum krónum lægri.

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra hefur lagt fram frum­varp um breyt­ingar á lögum um veiði­gjöld. Fram­lagn­ing frum­varps­ins átti sér skamman aðdrag­anda og það var afgreitt út úr rík­is­stjórn í gær. Til stendur að það verði að lögum strax og búið verði að sam­þykkja frum­varpið.

Frum­varp­inu er ætlað að bregð­ast við víxl­verkun ákvæðis í lögum um veiði­gjöld ann­ars vegar og lögum um tekju­skatt hins vegar sem heim­ilar útgerðum að fyrna meðal ann­ars skip og skips­búnað um 50 pró­sent á ári vegna fjár­fest­inga á árunum 2021 og 2022. Ef lög­unum verður ekki breytt mun þessi víxl­verkun leiða til þess að minna sam­ræmi yrði á milli raun­veru­legrar afkomu sjáv­ar­út­vegs og inn­heimtra veiði­gjalda. Með frum­varp­inu verður Skatt­inum falið að dreifa fyrn­ingum skipa umfram til­tekna upp­hæð á fimm ár. Það er gert með því að setja þak á fyrn­ingar skipa og skips­bún­aðar sem geta komið til frá­dráttar við útreikn­ing á reikni­stofni veiði­gjalds. Lagt er til í frum­varp­inu að séu skatta­legar fyrn­ingar sam­tals hærri en 20 pró­sent af fyrn­ing­ar­grunni að við­bættum 200 millj­ónum króna skuli Skatt­ur­inn dreifa því sem umfram er á næstu fimm ár.

Veiðigjöld verða 9,5 milljarðar í stað sjö milljarða

Um mikla hags­muni er að ræða fyrir rík­is­sjóð, að minnsta kosti á næsta ári. Verði frum­varp Svan­dísar sam­þykkt munu veiði­gjöld sem útgerðir greiða í rík­is­sjóð hækka um 2,5 millj­arða króna á næsta ári og verða 9,5 millj­arðar króna alls. Verði ekk­ert að gert munu veiði­gjöldin verða sjö millj­arðar króna, sem er langt undir for­sendum fjár­laga­frum­varps­ins, þar sem reiknað er með 8,3 millj­örðum króna í veiði­gjöld á árinu 2023.

Á móti munu veiði­gjöld verða lægri árin þar á eftir, verði engar frek­ari breyt­ingar gerðar á lögum um veiði­gjald, þar sem fyrn­ingar sem að óbreyttu kæmu að fullu til frá­dráttar rekstr­ar­kostn­aði ein­stakra fyr­ir­tækja næstu eitt til tvö árin dreifast yfir á fleiri ár og verða í gangi í allt að fimm ár.

Svandís skip­aði stóra sam­ráðs­nefnd um sjáv­ar­út­vegs­stefnu í maí á þessu ári. Undir henni starfa svo fjórir starfs­hóp­ar auk þess sem sér­stök verk­efna­stjórn er að störfum. Þessi hópur, sem telur um 50 manns, á að starfa út næsta ár og skila meðal ann­ars af sér nýjum heild­ar­lögum um stjórn fisk­veiða eða nýjum lög um auð­lindir hafs­ins, verk­efnum á sviði orku­skipta, nýsköp­un­ar, haf­rann­sókna og gagn­sæi og kort­lagn­ing eigna­tengsla í sjáv­ar­út­veg­i. Einn starfs­hóp­ur­inn á að fjalla um ágrein­ing um stjórn fisk­veiða og mögu­leika til sam­fé­lags­legrar sátt­ar, sam­þjöppun veiði­heim­ilda, veiði­gjöld og skatt­spor.

Því er mögu­legt að lögum um veiði­gjöld verði breytt áður en veiði­gjöld fara að skerð­ast vegna frum­varps­ins sem nú hefur verið lagt fram.

Frumvarp Bjarna lækkaði veiðigjöld um milljarða árið 2023

Í grein­ar­gerð sem fylgir frum­varp­inu kemur fram að það hafi átt sér stuttan aðdrag­anda og ekki hafi gef­ist mik­ill tími til sam­ráðs. Í sept­em­ber hafi mat­væla­ráðu­neytið óskað eftir upp­lýs­ingum frá Skatt­inum um áætlað veiði­gjald á árinu 2023, og einkum hvort bráða­birgða­á­kvæði tekju­skatts­laga um heim­ildir til flýti­fyrn­inga til að hvetja til fjár­fest­inga á tímum Covid-19 hefðu veru­leg áhrif á veiði­gjald til lækk­unar. Umrætt bráða­birgða­á­kvæði varð að lögum í apríl í fyrra þegar frum­varp sem Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram var sam­þykkt. Til­gangur þess frum­varps var sagður vera að mæta nei­kvæðum efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins með því að hvetja til fjár­fest­inga einka­að­ila í atvinnu­rekstr­ar­eignum með sér­staka áherslu á eignir sem telj­ast umhverf­is­vænar og stuðla að sjálf­bærni í umhverf­is­málum.

Í grein­ar­gerð með frum­varpi Svan­dísar sem dreift var á þingi í morgun segir að komið hafi í ljósi að „auka­fyrn­ingar, bæði vegna bráða­birgða­á­kvæð­is­ins og fyrn­ing­ar­heim­ildar vegna sölu­hagn­aðar eigna, lækk­uðu veiði­gjald, að öðru óbreyttu, um 2,5–3 millj­arða kr. á næsta ári og yrði til að mynda veiði­gjald á upp­sjáv­ar­teg­und­irnar loðnu, síld, mak­ríl og kolmunna afar lágt. Lækkunin yrði þó ekki var­an­leg, heldur til­færsla í tíma.“

Við gerð frum­varps­ins var haft sam­ráð við fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið, Skattinn, Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) og Lands­sam­band smá­báta­eig­enda (LS). Í grein­ar­gerð­inni segir að aðilar hafi verið sam­mála um að skatta­legar auka­fyrn­ingar hafi skapað meiri sveiflur í reikni­stofni veiði­gjalds á milli ára og að slíkar sveiflur, sem rekja má til fyrn­inga fárra skipa, séu óheppi­legar.

Sjávarútvegur hagnaðist um 65 milljarða króna í fyrra

Met­hagn­aður var í sjáv­ar­út­vegi í fyrra, þegar geir­inn hagn­að­ist um 65 millj­örðum króna eftir skatta og gjöld. Alls jókst hagn­að­ur­inn um 124 pró­sent milli ára.

Á sama tíma greiddu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin 22,3 millj­arða króna í öll opin­ber gjöld. Veiði­gjöld, tekju­skatt og trygg­inga­gjöld. Það þýðir að rúm­lega fjórð­ungur af hagn­aði fyrir greiðslu opin­berra gjalda fór til hins opin­bera en tæp­lega 75 pró­sent varð eftir hjá útgerð­ar­fyr­ir­tækjum.

Hagn­aður geirans áður en hann greiddi veiði­gjöld, tekju­skatt og trygg­inga­gjald í rík­is­sjóð var sam­tals 752,3 millj­arðar króna frá 2009 og út síð­asta ár. Af þessum hagn­aði sat tæp­lega 71 pró­sent eftir hjá útgerðum lands­ins en rétt um 29 pró­sent fór í opin­ber gjöld.

Frá árinu 2010 hafa þau greitt 143,2 millj­­­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðsl­­­ur. Hagur sjá­v­­­­ar­út­­­­­vegs­­­fyr­ir­tækj­anna hefur því vænkast um 575,2 millj­­­arða króna frá hruni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár