27 manna samráðsnefnd og fjórir starfshópar eiga að leggja til breytingar á sjávarútvegskerfinu

Mat­væla­ráð­herra segir að í sjáv­ar­út­vegi ríki djúp­stæð til­finn­ing meðal almenn­ings um órétt­læti sem stafi af sam­þjöppun veiði­heim­ilda og að ágóð­anum af sam­eig­in­legri auð­lind sé ekki skipt á rétt­látan hátt.

Svandís Svav­ars­dóttir mat­væla­ráð­herra hefur skipað 27 manns í sam­ráðs­nefnd um sjáv­ar­út­vegs­stefnu. Hún verður sjálf for­maður nefnd­ar­innar og allir aðrir flokkar á þingi eiga í henni full­trúa. Það eiga líka full­trúar flestrar hag­að­ila, svo sem Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og þeirra sem gæta hags­muna ann­arra í grein­inni. Sömu sögu er að segja um full­trúa umhverfis- og nátt­úru­vernd­ar­sam­taka.

Undir sam­ráðs­nefnd­inni starfa fjórir starfs­hópar. Þeir kall­ast Samfélag, Aðgengi, Umgengni og Tækifæri.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að fyr­ir­hug­aðar loka­af­urðir þessa starfs séu meðal ann­ars ný heild­ar­lög um stjórn fisk­veiða eða ný lög um auð­lindir hafs­ins og aðrar laga­breyt­ingar, verk­efni á sviði orku­skipta, nýsköp­unar, haf­rann­sókna og gagn­sæi og kort­lagn­ing eigna­tengsla í sjáv­ar­út­vegi.

Gert er ráð fyrir því að sam­ráðs­nefndin starfi til loka árs 2023. Því er að minnsta kosti rúmt eitt og hálft ár þangað til að umræddar loka­af­urðir eiga að liggja fyrir. Næstu kosn­ingar eru fyr­ir­hug­aðar 2025. Því verður komið inn á síð­asta heila starfsár sitj­andi rík­is­stjórnar þegar nið­ur­staðan úr starf­inu á að liggja fyrir.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Svandísi að í sjáv­ar­út­vegi ríki djúp­stæð til­finn­ing meðal almenn­ings um órétt­læti. „Sú til­finn­ing tel ég að stafi aðal­lega af tvennu; sam­þjöppun veiði­heim­ilda og þeirri til­finn­ingu að ágóð­anum af sam­eig­in­legri auð­lind lands­manna sé ekki skipt á rétt­látan hátt. Mark­miðið með þess­ari vinnu er því hag­kvæm og sjálf­bær nýt­ing sjáv­ar­auð­linda í sátt við umhverfi og sam­fé­lag.“

Ekki önnur pólitísk nefnd

Fjallað var um skipun nefndar til að kort­leggja áskor­anir og tæki­færi í sjáv­ar­út­vegi og tengdum greinum og meta þjóð­hags­legan ávinn­ing fisk­veiði­stjórn­unar kerf­is­ins í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar eftir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Vinstri græn end­ur­nýj­uðu sam­starf sitt seint á síð­asta ári undir for­sæti Katrínar Jak­obs­dóttur.

Í til­kynn­ing­unni á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að í ljósi reynslu af vinnu við end­ur­skoðun á fisk­veiði­lög­gjöf­inni á und­an­förnum árum og ára­tugum varð nið­ur­staða mat­væla­ráð­herra sú að beita þyrfti nýrri nálgun við þær fjöl­mörgu áskor­anir og tæki­færi sem eru í sjáv­ar­út­vegi og snerta sam­fé­lagið allt með beinum og óbeinum hætti. „Í stað einnar stórrar póli­tískrar nefndar er nú komið á lagg­irnar opnu, þver­fag­legu og gagn­sæju verk­efni fjöl­margra aðila sem unnið verður með skipu­legum hætti á kjör­tíma­bil­inu.“

Starfs­hóp­ur­inn „Samfélag“ fær það hlut­verk að fjalla um ágrein­ing um stjórn fisk­veiða og mögu­leika til sam­fé­lags­legrar sáttar, sam­þjöppun veiði­heim­ilda, veiði­gjöld og skatt­spor.

Formaður þeirrar nefndar er Gunnar Har­alds­son, fram­kvæmda­stjóri ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­is­ins Intellecon. Hann var um tíma efna­hags­ráð­gjafi for­sæt­is­ráð­herra þegar Davíð Oddsson sat á þeim stóli, for­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands og hag­fræð­ingur hjá OECD í París. Þá var hann stjórn­ar­for­maður Fjár­mála­eft­ir­lits­ins 2009 til 2010.

Aðrir í hópnum eru Catherine Chambers, rann­sókna­stjóri, Háskóla­setur Vest­fjarða, Hreiðar Þór Val­týs­son, dós­ent við Háskól­ann á Akureyri, Katrín Júl­í­us­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fjár­mála­fyr­ir­tækja og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og Val­gerður Sólnes, dós­ent við Háskóla Íslands.

Sá starfs­hópur sem kall­ast „Aðgengi“ fær meðal ann­ars það verk­efni að fjalla um eigna­tengsl í sjáv­ar­út­vegi og óskyldum greinum og aukið gagn­sæi í rekstri sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja. Formaður þess hóps er Eggert Benedikt Guð­munds­son, verk­fræð­ingur og fyrr­ver­andi for­stjóri HB Granda, sem nú heitir Brim, og N1. Aðrir í þeim hópi eru Alda B. Möller mat­væla­fræð­ingur Arnór Snæ­björns­son, sér­fræð­ingur í mat­væla­ráðu­neyt­inu, Friðrik Árni Frið­riks­son Hirst, fram­kvæmda­stjóri Laga­stofn­unar Háskóla Íslands, og Ing­veldur Ásta Björns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri North 65.

Hópurinn sem kall­ast „Umgengni“ mun meðal ann­ars fjalla um umgengni við sjáv­ar­auð­lind­ina, orku­skipti, vigtun, brott­kast, eft­ir­lit og við­ur­lög. Formaður þess hóps er Gréta María Grét­ars­dóttir, for­stjóri Arctic Adventures, en aðrir með­limir eru Freydís Vig­fús­dóttir, sér­fræð­ingur í mat­væla­ráðu­neyt­inu, Halla Jóns­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Optitog, Jónas Rúnar Við­ars­son, sviðs­stjóri hjá Matís, og Sigurður Ingi Frið­leifs­son, fram­kvæmda­stjóri Orku­stofn­unar.

Síðasti hóp­ur­inn kall­ast „Tækifæri“ og á meðal ann­ars að skoða staf­ræna umbreyt­ingu, alþjóða­sam­skipti og orð­spor Íslands. Formaður hans er Ingunn Agnes Kro, fram­kvæmda­stjóri Jarð­varma, en aðrir í hópnum eru Ari Kristinn Jónsson, fram­kvæmda­stjóri AwareGO, Hildur Ingv­ars­dóttir, skóla­meist­ari Tækni­skóla Íslands, Hilmar Bragi Janusson, fram­kvæmda­stjóri hjá Kviku banka og Óskar Veigu Ósk­ars­son, sölu­stjóri hjá Marel.

Samráðsnefndin sem Svandís skipaði er þannig skipuð:


1. Svandís Svav­ars­dóttir, mat­væla­ráð­herra, for­maður
2. Ásmundur Frið­riks­son, til­nefndur af Sjálf­stæð­is­flokki
3. Stefán Vagn Stef­áns­son, til­nefndur af Fram­sókn­ar­flokki
4. Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, til­nefnd af Vinstri­hreyf­ing­unni- grænt fram­boð
5. Oddný Harð­ar­dóttir, til­nefnd af Sam­fylk­ing­unni
6. Mörður Áslaug­ar­son, til­nefndur af Pírötum
7. Hanna Katrín Frið­riks­son, til­nefnd af Viðreisn
8. Eyjólfur Ármanns­son, til­nefndur af Flokki fólks­ins
9. Sigurður Páll Jónsson, til­nefndur af Mið­flokknum
10. Rebekka Hilm­ars­dóttir, til­nefnd af Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga
11. Vífill Karlsson, til­nefndur af Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga
12. Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, til­nefnd af Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi
13. Ólafur Mart­eins­son, til­nefndur af Samtökum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi
14. Arthur Bogason, til­nefndur af Lands­sam­bandi smá­báta­sjó­manna
15. Arnar Atlason, til­nefndur af Samtökum fisk­fram­leið­enda og útflytj­enda
16. Örvar Mart­eins­son, til­nefndur af Samtökum smærri útgerða
17. Páll Rúnar M. Krist­jáns­son, til­nefndur af Félagi atvinnu­rek­enda
18. Val­mundur Val­munds­son, til­nefndur af Sjó­manna­sam­bandi Íslands
19. Árni Bjarna­son, til­nefndur af Félagi skip­stjórn­ar­manna
20. J. Snæ­fríður Ein­ars­dóttir, til­nefnd af Félagi vél­stjóra og málm­tækni­manna
21. Sig­ur­björg Árna­dóttir, til­nefnd af Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökum Íslands
22. Auður Önnu Magn­ús­dóttir, til­nefnd af Land­vernd
23. Sigrún Perla Gísla­dóttir, til­nefnd af Ungum umhverf­issinnum
24. Gunnar Har­alds­son, for­maður starfs­hóps­ins Samfélag
25. Gréta María Grét­ars­dóttir, for­maður starfs­hóps­ins Umgengni
26. Eggert Benedikt Guð­munds­son, for­maður starfs­hóps­ins Aðgengi
27. Ingunn Agnes Kro, for­maður starfs­hóps­ins Tækifæri

Tveir af hverjum þremur telja kvótakerfið ógna lýðræðinu

Í ​​ aðdrag­anda kosn­ing­anna í fyrra­haust voru gerðar ýmsar kann­anir á skoðun almenn­ings á þeim kerfum sem Ísland hefur komið sér upp í sjáv­ar­út­vegi. Á meðal þeirra var könnun sem Gallup gerði fyrir þrýst­i­hóp­inn Þjóð­­ar­­eign. Í henni var fólk spurt hvort það styddi að mark­aðs­­gjald væri greitt fyrir afnot af fiski­miðum þjóð­­ar­inn­­ar. Nið­­ur­­staðan var sú að 77 pró­­sent aðspurðra var fylgj­andi því og ein­ungis 7,1 pró­­sent var and­vígt slíkri kerf­is­breyt­ingu. Afger­andi meiri­hluti kjós­­enda allra flokka var fylgj­andi breyt­ing­unni þótt stuðn­­ing­­ur­inn væri minni hjá kjós­­endum Fram­­sókn­­ar­­flokks, Sjálf­­stæð­is­­flokks og Mið­­flokks en þeim sem ætla að kjósa aðra flokka.

Í annarri könn­un, sem MMR gerði fyrir Öldu – félags um sjálf­­bærni og lýð­ræði, og var birt í ágúst 2021, sögð­ust 66 pró­­sent lands­­manna, tveir af hverjum þrem­­ur, vera óánægðir með núver­andi útfærslu á kvóta­­kerfi í sjá­v­­­ar­út­­­vegi. Þar af sögð­ust 38 pró­­sent vera mjög óánægð með hana. Tæpur fimmt­ung­­ur, 19 pró­­sent aðspurðra, sagð­ist ekki hafa sterka skoðun á útfærsl­unni en ein­ungis 14 pró­­sent voru ánægð með hana. Kjós­­endur Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins reynd­ust þeir einu sem eru ánægð­­ari með útfærslu kvóta­­kerf­is­ins en óánægð­­ari. Alls sögð­ust 42 pró­­sent þeirra vera ánægðir með hana en 25 pró­­sent eru óánægð.

Brim, Ísfélag Vestmannaeyja, Samherji og Síldarvinnslan eru þau fjögur sjávarútvegsfyrirtæki sem halda á mestum kvóta. Guðmundur Kristjánsson, Guðbjörg Matthíasdóttir, Þorsteinn Már Baldvinsson og Gunnþór Ingvason stýra eða eiga þau fyrirtæki.
Brim, Ísfélag Vest­manna­eyja, Samherji og Síld­ar­vinnslan eru þau fjögur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem halda á mestum kvóta. Guð­mundur Krist­jáns­son, Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, Þor­steinn Már Bald­vins­son og Gunnþór Ingvason stýra eða eiga þau fyr­ir­tæki.

Í sömu könnun sögðu 64 pró­­sent lands­­manna, næstum tveir af hverjum þrem­­ur, að núver­andi útfærsla á kvóta­­kerf­inu ógni lýð­ræð­inu.

Borga meira í arð en til ríkisins

Það er ekki að ástæðu­lausu að almenn­ingur upp­lifir stöð­una svona. Kjarn­inn greindi frá því í fyrra­haust að á árinu 2020 greiddu útgerðir lands­ins eig­endum sínum alls arð upp á 21,5 millj­arða króna á sama tíma og þau greiddu sam­tals 17,4 millj­arða króna í öll opin­ber gjöld: tekju­skatt, trygg­inga­gjald og veiði­gjald. Það var hæsta arð­greiðsla sem greinin hefur greitt eig­endum sínum frá upp­hafi innan eins árs á sama tíma og greiðslan til hins opin­bera var sú næst lægsta frá árinu 2011. Þetta var auk þess í fyrsta sinn frá banka­hruni sem umfang greiddra opin­berra gjalda var minna en arð­greiðsla sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja til eig­enda sinna innan árs.

Þá á eftir að taka til­lit til þess að rík­is­sjóður hefur umtals­verðan kostnað af eft­ir­liti og rann­sókna vegna fisk­veiða og -vinnslu. Í fyrra voru heild­ar­út­gjöld hans vegna eft­ir­lits og rann­­sókna vegna fisk­veiða og -vinnslu um sjö millj­­arðar króna í ár. Árin 2015-2020 voru álögð veiði­gjöld að með­al­tali 7,4 millj­arðar á verð­lagi árs­ins 2020. Því fara veiði­gjöld að uppi­stöðu í að greiða kostnað rík­is­sjóðs af eft­ir­liti og rann­sókn­um, sem nýt­ast sjáv­ar­út­veg­in­um.

Sam­tals hagn­að­ist sjá­v­­­ar­út­­­veg­­ur­inn um 468 millj­­arða króna frá byrjun árs 2009 og til loka árs 2020. Frá árinu 2009 hafa sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki greitt 126,3 millj­­arðar króna í arð til eig­enda sinna. Auk þess sátu eftir 325 millj­­arðar króna í eigið fé í útgerð­­ar­­fyr­ir­tækj­unum um síð­­­ustu ára­­mót. Það jókst um 28 millj­­arða króna árið 2020 þrátt fyrir metarð­greiðsl­­ur. Hagur sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja í heild vænk­að­ist því um næstum 50 millj­­arða króna á árinu 2020.

Eigið fé geirans er stór­­lega van­­metið þar sem virði kvóta, sem útgerðir eign­­færa, er bók­­fært á miklu lægra verði en feng­ist fyrir hann á mark­aði.

Frá 2009 hefur sjá­v­­­ar­út­­­veg­­ur­inn greitt alls 196,7 millj­­arða króna í opin­ber gjöld, þar af 78 millj­­arða króna í veið­i­­­gjöld. Sú tala dregst frá áður en hagn­aður sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja er reikn­að­­ur.

Heild­ar­hagn­að­ur­inn á árinu 2020, fyrir skatta og gjöld, var því um 665 millj­­arðar króna. Af þeirri upp­­hæð fór undir 30 pró­­sent til íslenskra rík­­is­ins, eig­anda auð­lind­­ar­inn­­ar, í formi tekju­skatts, trygg­inga­gjalds og veið­i­­gjalda, en rúm­­lega 70 pró­­sent sat eftir hjá eig­endum fyr­ir­tækj­anna.

Ofan­greindar tölur komu fram í árlegum sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­gagna­grunni Deloitte sem kynntur er á Sjá­v­­­ar­út­­­vegs­deg­inum og fyr­ir­tækið heldur í sam­­starfi við Sam­tök fyr­ir­tækja í sjá­v­­­ar­út­­­vegi og Sam­tök atvinn­u­lífs­ins.

Stór­aukin sam­þjöppun

Sam­kvæmt lögum má engin ein blokk í sjáv­ar­út­vegi halda á meira en tólf pró­sent af úthlut­uðum heild­ar­kvóta á hverjum tíma. Þegar Fiski­stofa, sem hefur eft­ir­lit með því að yfir­­ráð ein­stakra aðila yfir afla­hlut­­deildum fari ekki umfram lög­­bundin mörk, birti nýja sam­an­­tekt á sam­­þjöppun afla­hlut­­deildar í nóv­em­ber í fyrra kom í ljós að Brim, eitt stærsta sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins, var komið yfir það mark. Það var leyst með því að Brim seldi annarri útgerð, Útgerð­ar­fé­lagi Reykja­vík­ur, hluta af úthlut­uðum veiði­heim­ildum sín­um. Útgerð­ar­fé­lags Reykja­vík­ur, sem er að uppi­stöðu í eigu Guð­mundar Krist­jáns­sonar for­stjóra Brim, er stærsti eig­andi Brim.

Í tölum Fiski­stofu kom líka fram að heild­ar­verð­mæti úthlut­aðs kvóta sem tíu stærstu útgerðir lands­ins halda á hafði farið úr því að vera 53 pró­sent í að vera rúm­lega 67 pró­sent. Auknar heim­ildir til að veiða loðnu skiptu þar umtals­verðu máli.

Sam­an­lagt halda fjórar blokkir: Þær sem kenndar eru við Sam­herja, Brim, Kaup­­fé­lag Skag­­firð­inga og Ísfé­lagið á rúm­­lega 60 pró­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta á Íslandi.

Þessi mikla sam­þjöppun hefur leitt til þess að eig­endur örfárra sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja hafa efn­­ast veru­­lega. Ítök þeirra í ótengdum geirum hér­­­lendis hafa sam­hliða vaxið hratt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið undanfarið ár