Óttast ögranir og hernaðarbrölt Rússa

Claus Hjort Frederik­sen varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur segir að Danir verði að stór­auka fram­lög til varn­ar­mála á næstu árum. Vaxandi hern­að­ar­um­svif Rússa séu veru­leg ógnun og ástandið nú lík­ist æ meira kalda­stríðs­ár­unum, að mati ráð­herr­ans.

Claus Hjort Frederik­sen varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur segir að Danir verði að stór­auka fram­lög til varn­ar­mála á næstu árum. Vaxandi hern­að­ar­um­svif Rússa séu veru­leg ógnun og ástandið nú lík­ist æ meira kalda­stríðs­ár­unum, að mati ráð­herr­ans.

Claus Hjort Frederik­sen tók við emb­ætti varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur fyrir einum og hálfum mán­uði. Þá gerði Lars Løkke Rasmus­sen miklar breyt­ingar á stjórn sinni í kjöl­far þess að Frjáls­ræð­is­banda­lagið (Liberal Alliance) og Íhalds­flokk­ur­inn (Det Konservative Fol­ke­parti) gengu til liðs við stjórn Venstre. Claus Hjort var áður fjár­mála­ráð­herra og einn reynd­asti núver­andi þing­maður Dana, hann er einn nán­asti sam­starfs­maður Lars Løkke Rasmus­sen for­sæt­is­ráð­herra. Þunga­vikt­ar­maður semsé og þegar hann talar leggur fólk við hlustir. Sem fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra þekkir hann vel til mál­efna hers­ins en fjár­veit­ingar til her­mála eru á könnu þings­ins, Fol­ket­inget.

Margra alda saga

Form­legur stofn­dagur danska hers­ins er 17. nóv­em­ber 1614, en saga hers­ins er langtum eldri. Á tíma ein­veld­is­ins frá 1660 – 1849 voru allir valdataumar í hendi kon­ungs og Danmörk var lengst af ein­veld­is­tím­anum stórt og víð­femt ríki (Noregur, Grænland, Ísland, Færeyjar, Slésvík – Holt­seta­land ásamt nýlendum í Afríku, Asíu og Karí­ba­haf­inu) og því í æði­mörg horn að líta. Nákvæmar upp­lýs­ingar um mann­afla hers­ins á þessum tíma eru mjög á reiki en ljóst að rekstur hers­ins, með öllu til­heyr­andi, útheimti mikla fjár­muni. Svo mikla að fjár­hagur danska rík­is­ins var á tíðum mjög bág­bor­inn.

Eftir einveldið

Danska ein­veld­inu lauk 1849 og síðan þá hafa allar ákvarð­anir varð­andi fjár­veit­ingar og grund­vall­ar­starf­semi hers­ins verið í höndum þings­ins. Í upp­hafi var helsta verk­efni hers­ins að verja yfir­ráðin yfir Slésvík (þriggja ára stríðið 1848-51) og í kjöl­farið fylgdi svo stríðið 1864 þar sem Danir misstu bæði Slésvík og Holt­seta­land. Að mati sagn- og hern­að­ar­fræð­inga síð­ari tíma var stríðið 1864 fyr­ir­fram tapað, danski her­inn átti ein­fald­lega við ofurefli að etja.

Harðar deilur og heimsstyrjöldin síðari

Eftir nið­ur­lagið 1864 urðu harðar deilur í danska þing­inu. Hluti þing­manna vildi að Danmörk legði niður her­inn og landið yrði hlut­laust. Aðrir vildu að hlut­verk hers­ins yrði að verja hlut­leysi Dan­merkur, varnir lands­ins skyldu fyrst og fremst mið­ast við Sjáland. Ekkert varð úr þeirri hug­mynd að leggja niður her­inn og á næstu ára­tugum, fram yfir fyrri heims­styrj­öld efldist her­inn mjög. Á milli­stríðs­ár­unum dróg­ust fjár­veit­ingar til hers­ins saman. Þegar Þjóð­verjar réð­ust inn í Danmörku 1940 og hertóku landið var fátt um varnir, her­inn fámennur miðað við þýska her­afl­ann og auk þess illa vopnum búinn. Uppgjöf var því eina leiðin og þótt margir Danir væru ósáttir við þá ákvörðun á sínum tíma var, og er, flestum ljóst að miðað við aðstæður héldu danskir stjórn­mála­menn, ásamt kóng­inum, skyn­sam­lega á spil­unum.

Eftirstríðsárin og kalda stríðið

Eftir lok síð­ari heims­styrj­aldar 1945 varð grund­vall­ar­breyt­ing á afstöðu danskra stjórn­mála­manna. Allar hug­myndir um hlut­leysi voru lagðar á hill­una. Danmörk tók þátt í stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna 24. októ­ber 1945 og fjórum árum síðar, 1949, þegar Atl­ants­hafs­banda­lagið varð til var Danmörk meðal aðild­ar­ríkj­anna. Til­gang­ur­inn með stofnun NATO var að verj­ast, og mynda mót­vægi gegn, Sov­ét­ríkj­unum og banda­mönnum þeirra. Á árum Kalda stríðs­ins, eins og tíma­bilið 1947 -1991 er nefnt, átti sér stað mikil hern­að­ar­upp­bygg­ing, bæði meðal NATO ríkj­anna og aust­ur­blokk­ar­innar svo­nefndu, með Sov­ét­ríkin í far­ar­broddi. Danski her­inn fékk mikla aðstoð frá Banda­ríkja­mönnum, bæði fjár­hags­lega og í formi vopna og her­bún­aðar hvers konar. Fjár­veit­ingar til hers­ins juk­ust og danskir her­menn tóku meðal ann­ars þátt í marg­hátt­uðum aðgerðum á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Hrun Sovétríkjanna

Endalok Sov­ét­ríkj­anna í upp­hafi tíunda ára­tugar síð­ustu aldar höfðu miklar og marg­hátt­aðar breyt­ingar í för með sér. Ógnin sem hafði verið talin stafa af Sov­ét­ríkj­unum og banda­mönnum þeirra var ekki lengur til staðar. Hlutverk herja NATO breytt­ist mikið og frið­ar­gæsla og margs konar eft­ir­lit varð fyr­ir­ferð­ar­meira en það hafði áður verið. Margar spurn­ingar um hlut­verk fjöl­mennra herja, þar á meðal Dan­merkur, vökn­uðu og mörgum þótti bein­línis ónauð­syn­legt að verja jafn miklum fjár­munum til her­mála og áður hafði þótt sjálf­sagt. Til þess að gera langa sögu stutta hafa fjár­veit­ingar til danska hers­ins dreg­ist jafnt og þétt saman á und­an­förnum árum. Herinn sem skipt­ist í land­her, sjó­her og flug­her telur nú um það bil fimmtán þús­und manns og her­menn eru umtals­vert færri en fyrir ára­tug síðan. Nið­ur­skurð­ur­inn hefur haft í för með sér að tækja­kostur hers­ins hefur ekki verið end­ur­nýj­aður og við­hald setið á hak­anum. Yfir­stjórn hers­ins hefur talað fyrir daufum eyrum ráða­manna, þar á meðal fjár­mála­ráð­herr­ans fyrr­ver­andi sem nú er sestur í stól varn­ar­mála­ráð­herr­ans.

Lafhræddur við bröltið í Rússum

Fyrir nokkrum dögum birti dag­blaðið Berl­ingske langt við­tal við Claus Hjort Frederik­sen varn­ar­mála­ráð­herra. Það er fyrsta við­tal sem ráð­herr­ann hefur veitt eftir að hann flutt­ist úr fjár­mála­ráðu­neyt­inu í núver­andi emb­ætti. Claus Hjort er vanur að tala tæpitungu­laust og það á sann­ar­lega við um áður­nefnt við­tal í Berl­ingske. Ráð­herr­ann seg­ist ein­fald­lega vera laf­hræddur við bröltið í Rússum, eng­inn viti hug Pútíns í neinum málum. ,,Maður hélt í ein­feldni sinni að heim­ur­inn væri miklu örugg­ari en áður var og ekki þyrfti að hafa áhyggjur af Rússum. Nú sér maður að þetta er ekki svona, Pútín er ekki nein frið­ar­dúfa” sagði Claus Hjort. Hann sagði að sú stað­reynd að Rússar væru að koma fyrir eld­flauga­bún­aði í Kal­in­ingrad væri ógn­vekj­andi. Þetta og margt margt fleira sagði ráð­herr­ann sýna fram á nauð­syn þess að stór­efla danska her­inn. Hann nefndi líka stór­karla­legar yfir­lýs­ingar Donalds Trump, sem tekur við emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna eftir nokkra daga. Trump hefur sett spurn­ing­ar­merki um skyldur Banda­ríkj­anna við þau NATO ríki sem ekki upp­fylli lof­orð og sam­komu­lag um fjár­veit­ingar til varn­ar­mála, Danmörk er í þeim hópi.

Verða að gefa í

Danski varn­ar­mála­ráð­herr­ann sagð­ist, í við­tal­inu við Berl­ingske, yfir­leitt ekki vera tals­maður auk­inna útgjalda rík­is­ins. ,,En hér verðum við að gefa dug­lega í” sagði ráð­herr­ann. Þegar blaða­maður spurði hvort þetta væri ekki bara venju­legur ,,lobbý­ismi” hjá ráð­herra sem vildi meiri pen­inga til síns ráðu­neytis harð­neit­aði Claus Hjort því og sagði að hann væri ein­fald­lega að lýsa ástand­inu. ,,Bröltið í Rússum vekur ugg og við getum ekki snúið blinda aug­anu að, við verðum að bregð­ast við og það strax.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár