Jeremy Corbyn, nýr leiðtogi Verkamannaflokksins

Fyrir rúmum tveimur mán­uðum tók Jeremy Corbyn við sem leið­togi Verka­manna­flokks­ins. Örfáum mán­uðum fyrr vissu fáir hver hann var og engan grun­aði, ef til vill síst hann sjálfan, að hann myndi sigra í leið­toga­kjöri með ríku­legra umboð flokks­systk­ina sinna en sjálfur Tony Blair á sínum tíma.

Leið­toga­kjörið kom í kjöl­far þing­kosn­inga síð­ast­liðið vor þar sem Verka­manna­flokk­ur­inn galt afhroð og tap­aði 26 sætum á breska þing­inu. Í kjör­inu voru fjórir fram­bjóð­endur Liz Kendall, Andy Burnham, Yvette Cooper og Jeremy Corbyn. Í byrjun kosn­inga­bar­átt­unnar var Burnham orð­aður við sigur en stuðn­ingur við and­stöðu Corbyn við nið­ur­skurð­ar­stefnu núver­andi rík­is­stjórnar vann fljót­lega á. Aðsókn á kosn­inga­við­burði hans um allt land var gíf­ur­leg, sér­stak­lega á meðal ungs fólks. Fólk flykt­ist að til þess að skrá sig í flokk­inn og meira en 400,000 manns tóku þátt í leið­toga­kjör­inu sem end­aði með afdrátt­ar­lausum sigri Corbyn með 60% atkvæða.

Þrátt fyrir þetta mikla umboð kom brátt í ljós að Corbyn myndi eiga erfitt með að hafa stjórn á eigin þing­flokki. Í kosn­inga­bar­átt­unni urðu átök milli hægri og vinstra vængs flokks­ins áber­andi. Á meðan á leið­toga­kjör­inu stóð hafðí fyrrum leið­togi flokks­ins,

Tony Blair

, birt greinar í

the Guardian

og varað við sigri Corbyns, sem myndi færa

flokk­inn of langt til vinstri. Enda er hægri vængur flokks­ins mjög efins um Corbyn, sér­stak­lega stefnu hans í efna­hags­málum og hern­að­ar­málum. Þessi átök hafa orðið meira áber­andi eftir að þingið kom saman í haust og hefur Corbyn þurft að þola ófáar póli­tískar árásir frá eigin félögum. Þetta vekur spurn­ingar um raun­veru­lega stöðu hans.

Fjárfestum í fólki en ekki bönkum

Helsta kosn­inga­mál Corbyn var and­staða hans við nið­ur­skurð­ar­stefnu núver­andi rík­is­stjórnar. Að hans mati er það hlut­verk rík­is­stjórn­ar­innar í kreppu að auka útgjöld til þess að ýta undir hag­vöxt. Þegar hag­vöxtur fer vax­andi fær ríkið meiri tekjur í gegnum skatta sem hægt er að nota til þess að greiða niður halla á fjár­lögum. Þetta er í and­stöðu við stefnu rík­is­stjórnar Cameron sem hefur skorið harka­lega niður útgjöld síðan þau komu til valda árið 2010. Nið­ur­skurð­ar­stefnan hefur haft víð­feðm áhrif á líf fólks, bitnað sér­stak­lega á þeim sem minna mega sín og vakið mikla reiði í sam­fé­lag­inu. Hér var Corbyn að boða tölu­vert mikla breyt­ingu frá stefnu for­vera síns Ed Milli­band sem ekki var á móti nið­ur­skurði þótt hann teldi að ekki ætti að fara jafn harka­lega í slíkar aðgerðir og rík­is­stjórn Cameron.

Það vakti mikla athygli í leið­toga­kjör­inu þegar Corbyn lagði til nýja efna­hags­á­ætlun sem hann nefndi „People’s Quantitative Easing”. Þar vitn­aði hann í aðgerðir seðla­banka Evrópu og ann­arra þjóða í þágu fyr­ir­tækja í nýaf­stað­inni fjár­málakreppu en boð­aði í stað­inn aðgerðir í þágu fólks­ins. Hefð­bundin efna­hags­stjórnun seðla­banka þegar hægir á efna­hag­inum snýst um að lækka stýri­vexti til þess að örva hag­vöxt. Þegar stýri­vextir fara niður í 0% eins og í krepp­unni 2008 þá verða seðla­bankar að grípa til ann­arra aðgerða líkt og að prenta pen­inga. Í Banda­ríkj­unum, Bret­landi og Evrópu hefur þessum nýju pen­ingum verið dælt í fjár­mála­heim­inn með því að fjár­festa til dæmis í vog­un­ar­sjóðum, hluta­bréfum, verð­bréfum og gulli. Með þessum aðgerðum skap­ast meira fram­boð af pen­ingum sem er hægt að nota til þess að fjár­festa í atvinnu­líf­inu en það skilar sér í auknum hag­vexti. Í stað­inn fyrir að fjár­festa í fjár­mála­heim­inum vildi Corbyn nota prent­uðu pen­ing­ana beint til þess að að fjár­festa í upp­bygg­ingu á innviðum sam­fé­lags­ins, en það myndi hafa sömu áhrif, þ.e. örva eft­ir­spurn. Hann lagði til fjár­fest­ingar í grænni orku, nýju íbúð­ar­hús­næði, betra sam­göngu­kerfi og upp­bygg­ingu í nýsköpun. Slag­orðið var að fjár­festa í fólki en ekki bönkum.

Verka­manna­flokk­ur­inn er í stjórn­ar­and­stöðu og því hefur Corbyn ekki fengið tæki­færi til þess að sann­reyna þessar hug­myndir. Hug­myndin mætti líka mik­illi and­stöðu innan flokks­ins. Yvette Cooper tal­aði fyrir hönd margra með­lima þing­flokks­ins þegar hún sagði að slíkar aðgerðir myndu veikja pundið og leiða til verð­bólgu.

Árangursríkt aðhald

Engu að síður hefur Corbyn veitt rík­is­stjórn­inni árang­urs­ríkt aðhald í nýj­ustu nið­ur­skurð­ar­til­lögum sínum. George Osborne, fjár­mála­ráð­herra, kynnti í sumar til­lögur um að skera niður fjóra millj­arða punda af bótum til lág­tekju­fólks. „Tax credits” e.o. þær heita eru félags­legar bætur til barna­fjöl­skyldna og fólks í lág­launa­störfum sem eiga erfitt með að ná endum saman. Fjórar millj­ónir Bretar reiða sig á bæt­urnar og því myndi kjör stórs hóps skerð­ast veru­lega ef að til­lög­urnar hefðu verið sam­þykktar. Corbyn gagn­rýndi rík­is­stjórn­ina fyrir þessar aðgerðir í þing­sal og lagði margar spurn­ingar fyrir for­sæt­is­ráð­herr­ann um málið. Svo gerð­ist sá fáheyrði atu­burður að Íhalds­menn töp­uðu kosn­ingu um frum­varpið í Lávarða­deild­inni þar sem aðgerð­irnar þóttu of harka­legar. Þetta var mik­ill ósigur fyrir rík­is­stjórn­ina en gaf stefnu Corbyn byr undir báða vængi. Á mið­viku­dag­inn síð­ast­lið­inn til­kynnti George Osborne þing­inu að rík­is­stjórnin hefði horfið frá áformum sínum um að fella niður þennan skatta­af­slátt. Þetta var mik­ill sigur fyrir stjórn­ar­and­stöð­una, og hefði átt að styrkja stöðu Corbyns.

En skjótt skip­ast veður í lofti því John McDonnell, fjár­mála­ráð­herra­efni flokks­ins og náinn sam­verka­maður Corbyns, varð illa á í mess­unni þegar hann svar­aði þess­ari yfir­lýs­ingu Osborne. Í ræðu sinni var hann að gagn­rýna áform Osborne um að selja hlut rík­is­ins í járn­brauta­kerfi Breta til Kínverja. McDonnell vill sjálfur koma járna­braut­unum aftur í rík­is­eign en Íhalds­menn eru fylgj­andi því að einka­væða þjón­ustu sem þessa. Það er því nokkuð þver­sagna­kennt að þeir skulu vilja selja hana til Kín­verska rík­is­ins.

Mistök McDonnells voru að draga upp rauða kver Maó í ræðu­stólnum og vitna í það í þeim til­gangi að hæð­ast að Osborne fyrir að vera í raun komm­ún­isti. En ein­hvern veg­inn sner­ist þetta í hönd­unum á McDonnell. Brand­ar­anum var snúið gegn McDonnell en Íhalds­menn hafa reynt að draga úr efna­hags­legum trú­verð­ug­leika skuggas­ráðu­neyt­is­ins með því að segja að þeir séu allir gamlir komm­ún­istar. Til­vís­unin í Mao for­mann þótti einnig óvið­eg­andi sér­stak­lega í ljósi þess að hann mun hafa borið ábyrgð á hung­ursneyð sem kost­aði 45 millj­ónum lífið. Athygli fjöl­miðla beind­ist að brand­ara McDonnell sem gerði það að verkum að sigur stjórn­ar­and­stöð­unnar bóta­mál­inu fékk minni athygli. And­stæð­ingar Corbyn innan Verka­manna­flokks­ins munu reyna að sýna fram á að dóm­greind­ar­leysi af því tagi sem helsti vinur hans og fjár­mála­ráð­herra­efni sýndi geri Corbyn að óhæfum leið­toga.

Stefnan í utanríkis- og hernaðarmálum

Corbyn er yfir­lýstur frið­ar­sinni og hefur alla tíð verið á móti kjarn­orku­vopna­eign Breta. Eitt helsta kosn­inga­mál hans var að binda endi á hana og hann hefur sagt að hann myndi aldrei ‘ýta á takk­ann’ ef hann yrði for­sæt­is­ráð­herra. Fljót­lega eftir leið­toga­kjörið var haldin fyrsti lands­fundur Verka­manna­flokks­ins þar sem Corbyn hvatti til að kjarn­orku­stefna flokks­ins væri rædd og sagð­ist von­ast til þess að geta sann­fært flokks­menn um að tak­mörkun kjarn­orku­vopna væri af hinu góða. Hann vildi að kosið yrði um stefnu flokks­ins í þessu máli en fékk því ekki fram­gengt. Í fjöl­miðlum þótti það sýna veika leið­toga­hæfi­leika Corbyn að geta ekki sett jafn mik­il­vægt mál­efni á dag­skrá lands­fundar .

Ekki bætti úr skák þegar hers­höfð­ing­inn Sir Nicholas Houghton kom fram í við­tali og gaf í skyn að hann teldi Corbyn ekki vera efni í for­sæt­is­ráð­herra vegna stefnu sinnar í kjarn­orku­málum. Corbyn svar­aði skjótt og minnti hers­höfð­ingj­ann eðli­lega á að það væri ekki í sam­ræmi við stjórn­ar­skrána að menn í hans stöðu tæku þátt í póli­tískum deilum heldur ætti her­inn ávallt að gæta hlut­leysis. En þá bar svo við að Marie Eagle, varn­ar­mála­ráð­herra­efni Verka­manna­flokks­ins kom fram í fjöl­miðlum og tók undir með hers­höfð­ingj­anum. Það að með­limur skugga­ráðu­neytis Corbyn skuli ljá máls á því að Corbyn sé ekki for­sæt­is­ráð­herra­efni segir mikið um hversu erfitt hann á að ná trausti eigin þing­flokks.

Sýrland

Árás­irnar í París hafa gjör­breytt póli­tísku lands­lagi í utan­ríkis- og hern­að­ar­málum Breta. Rík­is­stjórn Cameron kynnti til­lögur um hern­að­ar­að­gerðir í Sýrlandi á fimmtu­dag­inn síð­ast­lið­inn þar sem lagt var til að Bretar myndi hefja loft­árasir á Íslamska ríkið. Í umræðum um málið á þing­inu lagði Corbyn spurn­ingar fyrir Cameron um fyr­ir­hug­aðar loft­árásir, til­gang þeirra fyrir öryggi Breta og víð­ari stefnu í málum Mið-Aust­ur­landa. Til marks um stefnu Corbyn í þessu máli þá kom McDonnell fram í við­tali sl. sunnu­dag og sagð­ist mót­fall­inn því að Bretar sendu inn her­lið þar sem það myndi ein­ungis hjálpa hinu svo­kall­aða Íslamska ríki að vaxa ef Vest­ur­lönd héldu áfram inn­gripum sínum í átök í Mið-Aust­ur­löndum. Það myndi renna frek­ari stoðum undir öfga­menn­ina með því að auka enn frekar á reiði og þar með styrkja þá heild­ar­frá­sögn Íslamska rík­is­ins að Vest­ur­lönd væru í „kross­ferð“ gegn múslímum. McDonnell sagði að styrkja þurfti öfl frá Mið-Aust­ur­löndum til þess að vinna sigur á Íslamska rík­inu á svip­aðan hátt og þegar Sunni-ætt­bálk­ur­inn fékk stuðn­ing til að vinna sigur á Al- Qaeda í Írak.

Eftir umræð­urnar á þing­inu á fimmtu­dag var það ljóst að margir þing­menn Verk­manna­flokks­ins vildu styðja áætlun Cameron í Sýrlandi. Hillary Benn, utan­rík­is­ráð­herra­efni flokks­ins, er einn af þeim sem hefur lýst því yfir að hann sé fylg­andi loft­árás­unum. Á fimmtu­dags­kvöld, eftir „líf­legar” umræður um málið í skugga­ráðu­neyt­inu, sendi Corbyn bréf til þing­manna Verka­manna­flokks­ins þar sem hann sagð­ist ekki geta stutt aðgerðir Cameron. Að hans mati hafði for­sæt­is­ráð­herran ekki getað fært nógu sann­fær­andi rök fyrir því hvernig aðgerð­irnar myndi tryggja öryggi Breta eða sýnt fram á heil­steypta áætlun sem myndi koma Íslamska rík­inu frá. Þingmenn flokks­ins hafa verið hvattir til þess að íhuga málið yfir helg­ina en enn er óvíst hvort að Corbyn leyfi þing­mönnum sínum að kjósa eftir eigin sam­visku í mál­inu eða hvort hann herði á flokksag­anum. Í kjöl­fari bréf­is­ins komu nokkrir þing­menn flokks­ins fram, sögð­ust óánægðir með fram­göngu Corbyn í mál­inu. Einn þeirra, John Spellar, gekk svo langt að hvetja til afsagnar.

Ljóst er að Corbyn vann leið­toga­kosn­ing­arnar með gíf­ur­legu umboði. Hluti af vin­sældum hans var vegna þess að hann var einn af fáum þing­mönnum Verka­manna­flokks­ins sem kaus á móti Íraks stríð­inu á sínum tíma. Diane Abbott, þing­maður og stuðn­ings­maður Corbyn, sagði í við­tali við Channel 4 að 70% af með­limum Verka­manna­flokks­ins væri á móti loft­árásum á Sýrland. Momentum, gras­róta­hreyf­ing sem var stofnuð af stuðn­ings­mönnum Corbyn, hefur flykkt sér í kring um leið­tog­ann og hvatt með­limi til þess að hafa sam­band við þing­menn um helg­ina og biðja þá um kjósa gegn loft­árásum. Hvort að Corbyn nær að sam­eina eigin þing­flokk um afstöðu sína mun skýr­ast í næstu viku og vera mik­il­vægur próf­steinn á leið­toga­hæfi­leika Corbyn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár