Hundrað milljóna króna aukafjárveiting til Vinnumálastofnunar

Fjár­veit­ingin verður nýtt til að ráða 35 ein­stak­linga til starfa, tíma­bundið til sex mán­aða, en mikil þörf er fyrir auk­inn mann­afla hjá stofn­un­inni, sam­kvæmt félags­mála­ráðu­neyt­inu.

Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason Mynd: Bára Huld Beck

Vinnu­mál­stofnun fær allt að 100 millj­óna króna við­bót­ar­fjár­magn til rekst­urs stofn­un­ar­innar vegna auk­inna verk­efna í tengslum við COVID-19. Þetta kynnti Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, í rík­is­stjórn í dag sem hluta af aðgerð­ar­pakka stjórn­valda vegna COVID-19.

Frá þessu er greint á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Fram kemur í til­kynn­ing­unni að fjár­veit­ingin verði nýtt til að ráða 35 ein­stak­linga til starfa, tíma­bundið til sex mán­aða, en mikil þörf sé fyrir auk­inn mann­afla hjá stofn­un­inni. Þá verði ýmis stoð­þjón­usta efld, svo sem tölvu­þjón­usta og upp­lýs­inga­gjöf um ýmsa töl­fræði, auk þess sem mik­il­vægt sé að vinna spár um ástand og horfur á vinnu­mark­aði til fram­tíðar litið. Vinnu­mála­stofnun muni leggja upp með að ráða sem flesta til þess­ara starfa úr hópi skráðra atvinnu­leit­enda hjá stofn­un­inni.

50.000 einstaklingar fá greiddar atvinnuleysisbætur í lok apríl

Vinnu­mála­stofnun hafa borist sam­tals um 33.800 umsóknir um atvinnu­leys­is­bætur sam­hliða minnk­uðu starfs­hlut­falli síðan opnað var fyrir umsóknir um úrræðið þann 25. mars síð­ast­lið­inn, að því er fram kemur í til­kynn­ingu félags­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Það sem af er apríl hafi stofn­un­inni jafn­framt borist um 2.200 umsóknir frá ein­stak­lingum sem eru að fullu skráðir án atvinnu sem sé við­bót við þá 14.200 ein­stak­linga sem þegar hafi að fullu verið skráðir án atvinnu í lok mars 2020. Miðað við núver­endi for­sendur muni því um 50.000 ein­stak­lingar fá greiddar atvinnu­leys­is­bætur að fullu eða að hluta á móti skertu starfs­hlut­falli í lok apríl.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barna­mála­ráð­herra, segir við til­efnið að COVID-19 far­ald­ur­inn hafi haft mjög mikil áhrif á vinnu­mark­að­inn. „Heilu atvinnu­grein­arnar eru lamaðar og ljóst er að sá fjöldi fólks sem mun þurfa að nýta sér þjón­ustu Vinnu­mála­stofn­unar er án for­dæma. Þetta hefur haft í för með sér gríð­ar­legt álag á stofn­un­ina og þvi nauð­syn­legt að styrkja frekar þjón­ustu hennar. Í öllum okkar aðgerðum er það fyrst og fremst skylda okkar að tryggja stöðu heim­il­anna og fram­færslu fjöl­skyldna í land­inu og það ætlum við að gera.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár