Bandaríkjamenn fordæma Sýrlandsher

Sýr­lands­her nýtur stuðn­ings Rússa og Írans. Banda­rísk stjórn­völd form­lega for­dæmdu hern­að­ar­að­gerðir stjórn­ar­hers Sýrlands. Mörg hund­ruð almennir borg­arar hafa látið lífið að und­an­förnu.

Þrátt fyrir að allar fimmtán þjóð­irnar í Örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna hafi sam­þykkt vopna­hlé á átaka­svæðum í Sýrlandi, þá hefur það enga þýð­ingu haft á víg­völl­unum í land­inu.

Assad Sýr­lands­for­seti segir vopna­hlé ekki koma til greina, á meðan skæru­liðar séu með vopn, ekki síst í Austur Ghouta, þar sem almennir borg­arar hafa verið strá­felldir á und­an­förnum vikum.

Sýr­lands­her nýtur stuðn­ings Rússa og Írans, og fær óáreittur að stunda loft­árásir og land­hernað á svæðum þar sem þús­undir almennra borg­ara eru í mik­illi hættu.

Örygg­is­ráðið sam­þykkti 30 daga vopna­hlé, en það hefur ekki enn orðið.

Banda­ríkja­stjórn hefur form­lega for­dæmt árásir Sýr­lands­hers og einnig gagn­rýnt Rússa fyrir að grípa ekki inn í aðstæður, og virða vopna­hléð.

Sýr­lands­her hefur náð um fjórð­ungi Austur Ghouta hér­aðs­ins á sitt vald og er sótt að bænum Douma. Þaðan eru nú langar raðir flótta­fólks, en á síð­ustu tveimur vikum er að talið að um 600 almennir borg­arar hafi látið lífið í árásum Sýr­lands­hers. Að stórum hluta fjöl­skyldu­fólk með börn.

Óhætt er að segja að margra ára borg­ar­styrj­öld í Sýrlandi hafi farið illa með landið, inn­viði þess og mann­líf. Talið er að tæp­lega 20 millj­ónir manna séu í land­inu, og þar af séu meira en helm­ingur á flótta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár