Ísland eitt Norðurlanda krefst notkunar gríma

Útlend­ingar sem heim­sækja höf­uð­borgir Norð­ur­land­anna furða sig á því að þar skíni í tennur veg­far­enda – mjög fáir bera grímur á almanna­færi. Íslensk yfir­völd krefj­ast notk­unar þeirra við ákveðnar aðstæður frá og með hádegi á morgun.

Allir sem fara í strætó frá og með hádegi á morgun þurfa að nota grímur. Líka þeir sem fara í nudd og á hágreiðslustofur svo dæmi séu tekin.
Allir sem fara í strætó frá og með hádegi á morgun þurfa að nota grímur. Líka þeir sem fara í nudd og á hágreiðslu­stofur svo dæmi séu tekin. Mynd: EPA

Víða um heim er notkun and­lits­gríma á almanna­færi orðin útbreidd enda ýmist mælt með henni eða hún bók­staf­lega skylda. Samkvæmt hertum aðgerðum sem taka gildi hér á landi á morgun er þess kraf­ist að fólk noti and­lits­grímur þar sem ekki er hægt að við­hafa tveggja metra reglu milli ótengdra aðila. Þar með er Ísland fyrst Norð­ur­land­anna til að setja á kröfur um notkun and­lits­gríma en slíkt hefur þó verið til umræðu í Danmörku.

Norð­ur­löndin hafa til þessa verið nokkuð sér á báti þegar kemur að notkun gríma á almanna­færi. Allt frá því heims­far­aldur kór­ónu­veirunnar braust út hefur hvert landið á fætur öðru ýmist mælt með notkun gríma á til­teknum stöðum eða hrein­lega kraf­ist slíkrar notk­unar.

Í Reykja­vík hefur það verið algjör und­an­tekn­ing að sjá fólk með and­lits­grímur t.d. í versl­unum og stræt­is­vögnum og sömu sögu er að segja frá höf­uð­borgum hinna Norð­ur­land­anna. Það eru einna helst erlendir ferða­menn, sem eru orðnir vanir notkun þeirra í sínum heima­löndum, sem ganga um með grím­urnar fyrir nefi og munni.

[adspot]

Í nýlegri könnun YouGov sögð­ust aðeins 5-10 pró­sent svar­enda frá Norð­ur­löndum bera grímur á almanna­færi og þannig hefur hlut­fallið verið allt frá því að könnun á þessu var fyrst gerð í mars, segir í frétt AFP. Könnun YouGov er gerð í yfir tutt­ugu löndum og utan Norð­ur­land­anna blasir allt annar veru­leiki við. Um 70-80 pró­sent svar­enda könn­un­ar­innar í þeim löndum segj­ast nú hafa grímur fyrir vitum á almanna­færi. Það á m.a. við þátt­tak­endur sem búsettir eru í Banda­ríkj­unum og á Indlandi.

[links]Útlend­ingar sem heim­sótt hafa Norð­ur­löndin eru sagðir hissa á því hversu fáir séu með grímur. Í frétt AFP er haft eftir franskri konu að sér hafi brugðið er hún kom til Stokk­hólms af þessum sökum. „Ég held að ef rík­is­stjórnir mæli ekki ein­dregið með notkun gríma þá noti þær eng­inn.“

Aldraður Svíi sem einnig er rætt við í frétt­inni seg­ist vilja að stjórn­völd þar í landi biðji fólk að bera grímur, að minnsta kosti í almenn­ings­sam­göngum. „Ef eng­inn er með grímu ætla ég ekki heldur að gera það.“

Sömu svör gefur fimm­tugur karl­maður sem rætt er við. „Ef þeir segja að við þurfum ekki grímur þá erum við ekki að fara vera með þær.“

Sótt­varna­læknir Sví­þjóðar, Anders Tegnell, var í gær spurður hvort að til greina kæmi að hvetja til grímunotk­unar og sagð­ist hann enn vera bíða eftir „ein­hvers konar sönnun fyrir því að þær virki“.

Far­ald­ur­inn hefur verið skæð­ari í Svíþjóð en ann­ars staðar á Norð­ur­lönd­unum þar sem til­felli af COVID-19 hafa verið til­tölu­lega fá miðað við víð­ast ann­ars staðar. „Þannig að ég skil vel að þeir [mæli ekki með grímum] svo lengi sem fjar­lægð­ar­reglur og smitrakn­ing er tekin alvar­lega,“ hefur AFP eftir KK Cheng, far­alds­fræð­ingi við háskól­ann í Birming­ham.

Eftir að Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­unin breytti leið­bein­ingum sínum um grímunotkun í júní ákváðu dönsk yfir­völd að hvetja fólk til að vera með grímur ef það væri að fara á sjúkra­hús í sýna­töku eða þegar það væri að koma aftur til lands­ins eftir að hafa dvalið á áhættu­svæði.

Mögulega breyting í framtíðinni

Yfir­læknir Dan­merkur sagði við danska rík­is­út­varpið í fyrra­dag að á meðan til­fellin væru fá væri til­gangs­lítið að mæla með því að fólk hyldi vit sín með grímu. Hins vegar gæti vel verið að það myndi breyt­ast og minnt­ist hann í því sam­hengi á að mögu­lega þyrfti að bera grímur í almenn­ings­sam­göngum í fram­tíð­inni.

Sömu sögu er að segja frá Noregi og Finn­landi. Mögulega verður mælst til grímunotk­unar í fram­tíð­inni, jafn­vel þeirri nán­ustu.

Í til­kynn­ingu á vef heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins um hertar aðgerðir sem taka gildi á hádegi á morgun ,föstu­dag, segir orð­rétt um grímunotkun: „Þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra fjar­lægð milli ótengdra ein­stak­linga er kraf­ist notk­unar and­lits­grímu sem hylur nef og munn. Þetta á t.d. við um almenn­ings­sam­göngur, þ.m.t. inn­an­lands­flug og far­þega­ferjur, og starf­semi s.s. hár­greiðslu­stofur og nudd­stofur. And­lits­grímur sem not­aðar eru utan heil­brigð­is­þjón­ustu ættu að upp­fylla kröfur sem settar eru fram í leið­bein­ingum sótt­varna­læknis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár