Fimm hættu við og sex ákváðu að fara ekki

Fimm for­seta­fram­bjóð­endur drógu fram­boð sitt til baka eftir að Ólafur Ragnar Grímsson ákvað að gefa kost á sér til end­ur­kjörs. Sex aðrir komu undan feldi á sama og ákváðu að gefa ekki kost á sér. Framboð Ólafs Ragnars stóð yfir í nákvæm­lega þrjár vikur.

Ólafur Ragnar Grímsson tilkynnti fyrir þremur vikum síðan að hann hafði skipt um skoðun og ætli að gefa kost á sér til endurkjörs. Hann hefur nú hætt við að skipa um skoðun, en fjöldi frambjóðenda hefur dregið sig í hlé í millitíðinni í ljósi framboðsins.
Ólafur Ragnar Grímsson til­kynnti fyrir þremur vikum síðan að hann hafði skipt um skoðun og ætli að gefa kost á sér til end­ur­kjörs. Hann hefur nú hætt við að skipa um skoðun, en fjöldi fram­bjóð­enda hefur dregið sig í hlé í milli­tíð­inni í ljósi fram­boðs­ins. Mynd: Birgir Þór

Á því þriggja vikna tíma­bili sem fram­boð Ólafs Ragnars Gríms­sonar varði drógu fimm ein­stak­lingar fram­boð sitt til baka og sex til­kynntu að þeir ætl­uðu ekki að gefa kost á sér eftir tölu­verða yfir­legu. Ástæðan: Ákvörðun sitj­andi for­seta að gefa kost á sér til end­ur­kjörs. Á sama tíma komu fram fjórir nýir fram­bjóð­endur. Atburð­ar­rás síð­ustu vikna hefur verið lyg­inni lík­ust. 

18. apríl

  • Ólafur Ragnar Grímsson boðar til blaða­manna­fundar á Bessa­stöðum þar sem hann til­kynnir ákvörðun sína um að gefa kost á sér til end­ur­kjörs í emb­ætti for­seta Íslands. Hann hafði til­kynnt í nýársávarpi sínu 1. jan­úar 2016 að hann ætl­aði að hætta.
  • Guð­mundur Franklín Jónsson dregur fram­boð sitt til baka og lýsir yfir stuðn­ingi við fram­boð Ólafs Ragnars.
  • Vigfús Bjarni Alberts­son dregur fram­boð sitt til baka og gagn­rýnir fram­boð Ólafs.
  • Linda Pét­urs­dóttir til­kynnir að hún ætli ekki að gefa kost á sér.
  • Benedikt Kristján Mewes býður sig fram til for­seta.
  • Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra seg­ist ánægður með fram­boð Ólafs Ragnars. Það sama sagði þing­flokks­for­maður Fram­sókn­ar­flokks, Ásmundur Einar Daðason.

20. apríl

Heimir Örn Hólmars­son dregur fram­boð sitt til baka í ljósi fram­boðs sitj­andi for­seta.

22. apríl

Ólafur Ragnar full­yrðir í við­tali við CNN að ekker eigi eftir að koma í ljós um aflands­fé­lög tengdum honum eða fjöl­skyldu hans: „No, no, no, no, no. That’s not going to be the case,” svar­aði for­set­inn þegar hann var spurður.

24. apríl

Bæring Ólafsson dregur fram­boð sitt til baka í ljósi fram­boðs Ólafs Ragnars og gagn­rýnir for­seta.

25. apríl

Eiríkur Björn Björg­vins­son ákveður að gefa ekki kost á sér og gagn­rýnir fram­boð Ólafs Ragnars.

27. apríl

  • Hrannar Pét­urs­son dregur fram­boð sitt til baka í ljósi fram­boðs Ólafs Ragnars.
  • Ólafur Ragnar mælist með lang­mesta fylgið í skoð­ana­könnun MMR, eða um 53 pró­sent. Andri Snær Magnason mælist með tæp 30 pró­sent.

29. apríl

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir til­kynnir að hún ætli ekki að gefa kost á sér í fram­boð.

1. maí

Guðrún Nordal til­kynnir að hún ætli ekki að gefa kost á sér í fram­boð.

2. maí

  • Baldur Ágústs­son býður sig fram til for­seta. Hann fékk um 10 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2004 á móti Ólafi Ragnari.
  • Enginn mark­tækur munur mælist á fylgi Ólafs Ragnars og Guðna Th. Jóhann­es­sonar sagn­fræð­ings sam­kvæmt könnun Frjálsrar versl­unar. Guðni mælist með rúm 51 pró­sent og Ólafur með tæp 49 pró­sent.
  • Ellen Calmon til­kynnir að hún ætli ekki að gefa kost á sér.

3. maí

Greint er frá tengslum Dorritar Moussaieff, eig­in­konu Ólafs Ragnars, við aflands­fé­lög. Fram kemur að Dorrit sé skráð utan lög­heim­ilis í Bret­landi vegna skatta­hag­ræðis.

4. maí

Berglind Ásgeirs­dóttir ákveður að bjóða sig ekki fram.

5. maí

  • Guðni Th. til­kynnir form­lega fram­boð sitt til for­seta.
  • Dorrit sendir frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hún seg­ist aldrei hafa rætt fjár­mál sín við eig­in­mann sinn.

7. maí

Ólafur Ragnar seg­ist hafa mis­skilið spurn­ingu frétta­kon­unnar á CNN um aflands­fé­lög.

8. maí

9. maí

  • Ólafur Ragnar dregur fram­boð sitt til baka.
  • Guðni Th. mælist með yfir­burð­ar­fylgi í könnun MMR, tæp 60 pró­sent. Fylgi Ólafs Ragnar hrynur úr tæpu 53 pró­sentum niður í rúm 25 pró­sent.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár