Baldur ætlar aftur í forsetann

Baldur Ágústs­son hyggst bjóða sig fram til for­seta Íslands. Hann hlaut 12,5 pró­sent atkvæða á móti Ólafi Ragnari Gríms­syni í kosn­ing­unum 2004. Guðni Th. Jóhann­es­son til­kynnir um mögu­legt fram­boð sitt á fimmtu­dag. Guðrún Nordal ætlar ekki fram.

Baldur Ágústsson ætlar taka slaginn um Bessastaði í annað sinn.
Baldur Ágústs­son ætlar taka slag­inn um Bessa­staði í annað sinn. Mynd: Landsmenn.is

Baldur Ágústs­son, fast­eigna­sali og athafna­maður, ætlar að bjóða sig fram til emb­ættis for­seta Íslands. Hann til­kynnir þetta á heima­síð­unni sinni. Baldur er nú tólfti fram­bjóð­and­inn.

Baldur bauð sig fram til for­seta á móti Ólafi Ragnari Gríms­syni árið 2004 og hlaut þá 12,5 pró­senta fylgi með 13.250 atkvæði.

Á heima­síðu sinni segir Baldur að mark­mið fram­boðs síns sé meðal ann­ars að end­ur­vekja virð­ing­una fyrir emb­ætti for­seta Íslands, að vekja athygli á skulda­söfnun ungs fólks, beita sér fyrir bættri þjón­ustu við sjúka, aldr­aða og öryrkja og styðja við bar­átt­una gegn fíkni­efnum og glæpum.

Guðni og Berglind eiga eftir að tilkynna

Guðni Th. Jóhann­es­son ætlar að til­kynna ákvörðun sína á fimmtu­dag, upp­stign­ing­ar­dag, og hefur boðað til fundar að því til­efni í Salnum í Kópavogi. Guðni mæld­ist með jafn mikið fylgi og Ólafur Ragnar ef valið stæði á milli þeirra, í nýrri könnun Frjálsrar versl­unar. Svar­endur könn­un­ar­innar máttu nefna hvern sem er sem þeir vildu sjá í emb­ætti for­seta.

Berglind Ásgeirs­dóttir, sendi­herra Íslands í Frakk­landi, kom til lands­ins fyrir helgi til að ræða bak­land sitt fyrir mögu­legt fram­boð. Hún var nefnd á nafn í könn­un­inni og hlaut tvö pró­sent atkvæða. Hún á eftir að til­kynna ákvörðun sína.

Guðrún, Ellen og Þorgerður ætla ekki í framboð

Guðrún Nordal, for­stöðu­maður Árna­stofn­unar, til­kynnti um helg­ina að hún ætl­aði ekki að bjóða sig fram. Það sama gerði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, fram­kvæmda­stjóri hjá Samtökum atvinnu­lífs­ins og fyrr­ver­andi mennta­mála­ráð­herra. Ellen Calmon, for­maður Öryrkja­banda­lags­ins, til­kynnti í dag að hún ætli ekki að gefa kost á sér, en hún hefur legið undir feldi í nokkurn tíma.

Eins og áður segir eru nú tólf manns í fram­boði til emb­ættis for­seta. Þó má gera ráð fyrir að ekki nái allir að safna til­skyldum fjölda und­ir­skrifta, en fram­boðs­frestur rennur út á mið­nætti 20. maí. Utan­kjör­fund­ar­at­kvæða­greiðsla hófst um helg­ina en almenn kosn­ing verður 25. júní.

Fréttin var upp­færð klukkan 13:00 þegar Ellen Calmon til­kynnti að hún ætli ekki að gefa kost á sér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár