Sigurður Ingi og Ásmundur Einar fagna ákvörðun Ólafs Ragnars

Bæði for­sæt­is­ráð­herra og for­maður þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins lýsa yfir ánægju með ákvörðun Ólafs Ragnars Gríms­sonar um að gefa kost á sér til for­seta á ný.

Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Ásmundur Einar Daðason, þing­flokks­for­maður flokks­ins, lýsa báðir yfir ánægju með ákvörðun Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta Íslands, um að gefa áfram kost á sér í emb­ættið.

„Ég fagna yfir­lýs­ingu Ólafs Ragnar, hann hefur reynst þjóð­inni öfl­ugur þjónn á síð­ustu árum og þjóðin treystir því að hann geri slíkt áfram. Vænt­an­lega er hann að bregð­ast við ákalli þjóð­ar­innar, alla­vega fjöl­margra sem hafa haft sam­band við hann,“ sagði Sigurður Ingi við Stöð 2 eftir blaða­manna­fund Ólafs Ragnars. Hann sagði að í ljósi þess sem á undan er gengið komi ákvörðun hans „þannig á óvart“ en auð­vitað hafi aldrei verið á vísan að róa með málið.

Sigurður Ingi var spurður hvort hann styddi Ólaf Ragnar og svar­aði því að Ólafur Ragnar hafi „reynst þjóð­inni vel á síð­ustu árum og sam­starf okkar hefur verið fínt, svo ég gleðst yfir því ef það verður nið­ur­staðan, en það eru auð­vitað kosn­ingar framundan.“ 

Ásmundur Einar sagði við RÚV eftir blaða­manna­fund­inn að honum lít­ist vel á ákvörðun Ólafs Ragnars, sem hann hafi tekið vegna fjölda áskor­ana. „Per­sónu­lega hef ég stutt Ólaf Ragnar og geri það áfram. Hann hefur staðið lýð­ræð­is­vakt­ina, gerði það í Icesave og fáum treysti ég betur til að standa með þjóð sinni þegar og ef að því kemur að hann verður kjör­inn aftur.“

Aðrir stjórn­mála­menn hafa ýmist lítið viljað tjá sig eða lýst yfir óánægju með ákvörðun Ólafs Ragnars. Birgitta Jóns­dóttir, þing­maður Pírata, sagði við RÚV að henni væri mis­boðið og Katrín Júl­í­us­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir að sama hversu ágætur for­seti sé, þyki henni „alger­lega off“ að for­seti í lýð­ræð­is­ríki sitji í 24 ár. Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði ákvörð­un­ina ekki koma sér á óvart í ljósi óróa og óstöð­ug­leika í stjórn­málum á Íslandi, en við­ur­kennir að hún hafi verið farin að gæla við Ólafs­lausa Bessa­staði.

Flestir aðrir for­seta­fram­bjóð­endur segj­ast enn sem komið er ætla að halda áfram, en Guð­mundur Franklín Jónsson dró fram­boð sitt til baka og lýsti yfir stuðn­ingi við Ólaf Ragnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár