Bæjarstjóri Akureyrar ætlar ekki í framboð - Bæring dregur sitt til baka

Eiríkur Björn Björg­vins­son, bæj­ar­stjóri á Akureyri, ætlar ekki í for­seta­fram­boð. Bæring Ólafsson fram­bjóð­andi hefur dregið sitt fram­boð til baka. Ástæðan er fram­boð Ólafs Ragnars Gríms­sonar.

Eiríkur Björn Björg­vins­son, bæj­ar­stjóri á Akureyri, ætlar ekki í for­seta­fram­boð. Þetta til­kynnti hann í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér í morgun.

Hann seg­ist hafa haft áhuga á því að takast á við umræðu um stöðu for­seta­emb­ætt­is­ins eftir brott­hvarf Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta Íslands, en ekki að etja kappi við hann um emb­ættið. Ólafur Ragnar hafi mikið for­skot á aðra fram­bjóð­endur og það sé afar óheppi­legt að hann sýni öðrum fram­bjóð­endum ekki þá virð­ingu að gefa út skýra yfir­lýs­ingu tím­an­lega og standa við orð sín.

„Sem sitj­andi for­seti til 20 ára hefur Ólafur Ragnar mikið for­skot á aðra fram­bjóð­endur. Því breytir þátt­taka hans í kosn­inga­bar­átt­unni vænt­an­lega umræð­unni sem fer fram um emb­ættið með sama hætti og gerð­ist árið 2012. Búast má við að meira verði rætt um per­sónu hans en emb­ættið sjálft og þau mál­efni sem for­seti getur beitt sér fyrir.“

Bæring hættir við

Bæring Ólafsson til­kynnti í gær­kvöld að hann dragi fram­boð sitt til baka. Það gerir hann í ljósi lið­inna daga og til­kynn­ingu Ólafs Ragnars um að bjóða sig fram til end­ur­kjörs.

„Þetta er í sam­ræmi við það sem ég hef áður sagt, að ég myndi ekki bjóða mig fram gegn sitj­andi for­seta," segir Bæring. „Ég óska hátt­virtum for­seta góðs gengis í end­ur­kjör­inu, öðrum fram­bjóð­endum allra heilla og óska þjóð­inni alls hins besta í fram­tíð­inni."

Bæring er fjórði fram­bjóð­and­inn sem hefur dregið sig í hlé síðan Ólafur Ragnar skipti um skoðun. Hinir eru Guð­mundur Franklín Jónsson, Heimir Örn Hólmars­son og Vigfús Bjarni Alberts­son.

Skorað á Eirík fyrir fjórum árum

Eiríkur Björn seg­ist hafa fengið áskor­anir fyrir fjórum árum til að gefa kost á sér til emb­ættis for­seta. Hann hafi þó lítið gert með það á þeim tíma.

„Fræi hafði engu að síður verið sáð og eftir því sem tím­inn leið velti ég þessum mögu­leika fyrir mér og gerð­ist áhuga­sam­ari um að vinna hug­myndum mínum um emb­ættið fylgi," segir hann í til­kynn­ing­unni. Hana má lesa í heild hér fyrir neðan:

Mínar helstu áherslur eru að eyða óvissu um stjórn­skipun lands­ins og stjórn­ar­skrána, þ.á.m. stöðu for­seta­emb­ætt­is­ins, tala fyrir auk­inni sið­væð­ingu og virð­ingu í sam­fé­lag­inu og mik­il­vægi mann­rétt­inda. Síðast en ekki síst þá vil ég miðla málum meðal ólíkra hópa og stuðla að sáttum en þar er sann­ar­lega verk að vinna. Þegar sitj­andi for­seti til­kynnti að hann myndi ekki sækj­ast eftir end­ur­kjöri höfðu fjöl­margir sam­band við mig og hvöttu mig til að fara fram með þessar áherslur og jafn­framt að nýta reynslu mína sem bæj­ar­stjóri af stjórn­sýslu ríkis og sveit­ar­fé­laga.

Eftir að Ólafur Ragnar breytti afstöðu sinni og til­kynnti óvænt að hann hygð­ist bjóða sig fram í sjötta sinn kall­aði það á end­ur­mat af minni hálfu. Ég hafði áhuga á að takast á við umræðu um stöðu for­seta­emb­ætt­is­ins eftir brott­hvarf Ólafs Ragnars en ekki að etja kappi við hann um emb­ættið.

Sem sitj­andi for­seti til 20 ára hefur Ólafur Ragnar mikið for­skot á aðra fram­bjóð­endur. Því breytir þátt­taka hans í kosn­inga­bar­átt­unni vænt­an­lega umræð­unni sem fer fram um emb­ættið með sama hætti og gerð­ist árið 2012. Búast má við að meira verði rætt um per­sónu hans en emb­ættið sjálft og þau mál­efni sem for­seti getur beitt sér fyrir.

Ólafur Ragnar hefur að mörgu leyti verið far­sæll í emb­ætti. Það er hins vegar afar óheppi­legt að hann sýni öðrum fram­bjóð­endum ekki þá virð­ingu að gefa út skýra yfir­lýs­ingu tím­an­lega og standa við orð sín.

Í sam­fé­lagi okkar eru fjöl­margir sem geta gegnt emb­ætti for­seta Íslands með miklum sóma óháð því hvaða ástand ríkir og lýð­ræð­is­legar kosn­ingar eru einmitt besta leiðin til far­sællar end­ur­nýj­unar.

Ég þakka öllum sem hafa hvatt mig og stutt í und­ir­bún­ingi þess að bjóða fram krafta mína, en að þessu sinni hyggst ég ekki sækj­ast eftir því að gegna emb­ætti for­seta Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár