Ólafur Ragnar segist hafa misskilið spurningu á CNN

Forseti Íslands seg­ist hafa litið svo á að hann hafi verið spurður um sína eigin fjöl­skyldu og Dorrit konu sína í við­tali á CNN, þar sem hann full­yrti engin tengsl við aflands­fé­lög.

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, seg­ist hafa mis­skilið spurn­ingu frétta­manns á CNN um það hvort upp­lýs­ingar ættu eftir að koma fram sem tengdu hann, eig­in­konu eða fjöl­skyldu við aflands­fé­lög. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi sem for­set­inn hélt á Bessa­stöðum í dag.

„Þegar ég er spurður um mína fjöl­skyldu þá skil ég spurn­ing­una; fjöl­skylda mín á Íslandi og Dorrit. Þannig að ég var engan hátt að svara fyrir for­eldra Dorritar eða aðra ætt­menn hennar,“ sagði Ólafur Ragnar, að því er kemur fram á RÚV.

Ólafur Ragnar sagði á fund­inum að hann teldi ekki að frétta­flutn­ingur af honum og Dorrit Moussaieff, konu hans, og fjöl­skyldu hennar, hafi skaðað orð­spor hans. Engin ástæða sé til að draga fram­boð hans til for­seta til baka vegna þess­arar umræðu, vegna þess að hann telji efn­is­at­riði máls­ins alveg skýr.

Fjöl­miðlar eins og Guardian, Le Monde og Süddeutsche Zeitung hafa greint frá tengslum Dorritar við aflands­fé­lög og banka­reikn­inga hjá HSBC í Sviss.

Í fréttum miðl­anna segir m.a. að Moussai­eff-­fjöl­skyld­an, þar á meðal systur Dor­rit­ar, þæ Tamara og Shar­on, hafi átt reikn­inga með allt að 80 milljón dala inn­stæðum í HSBC bank­anum í Sviss á árunum 2006 og 2007. Þar kemur þó sér­stak­lega fram að Dor­rit virð­ist ekki sjálf koma að flestum reikn­ing­un­um. Auk þess sýni upp­lýs­ing­arnar að Dor­rit hafi átt hlut á móti fjöl­skyldu sinni í Jaywick Properties Inc, sem skráð er til heim­ilis á Bresku Jóm­frú­areyj­unum og félag­inu Moussai­eff Sharon Trust. Sér­stak­lega er tekið fram að gögnin sýni ekki fram á að for­seta­frúin hafi gert neitt ólög­leg­t.

Kjarn­inn greindi einnig frá því fyrir skömmu að félag í eigu fjöl­­skyldu Dor­­rit­ar átti félag ­skráð á Bresku Jóm­frú­­areyj­unum frá árinu 1999 til árs­ins 2005. Félag­ið, sem heitir Lasca Fin­ance Limited, er að finna í gögnum frá­ panamísku lög­­fræð­i­­stof­unni Mossack Fon­­seca. Árið 2005 seld­i ­fjöl­­skyld­u­­fyr­ir­tækið Moussa­i­eff Jewell­ers Ltd. tíu pró­­senta hlut sinn í Lasca F­in­ance til hinna tveggja eig­enda þess. Þeir voru S. Moussa­i­eff og „Mr­s." Moussa­i­eff. Þetta sýndu gögn sem Kjarn­inn og Reykja­vík Grapevine eru með undir hönd­um.

Ólafur Ragnar segir hins vegar, líkt og Dorrit gerði í yfir­lýs­ingu í vik­unni, að hún hafi aldrei átt reikn­inga hjá HSBC. „Þó að for­eldrar hennar hafi gert það enda hafa for­eldrar hennar stundað við­skipti og versl­un­ar­rekstur í Sviss í ára­tugi. Þannig að hún hefur aldrei tengst þessum sviss­neska banka, gagn­stætt því sem menn hafa verið að full­yrða í þessum miðlum hér.“

Hann segir Dorrit ekki hafa neina teng­ingu við fyr­ir­tækið Jaywick og ekk­ert vitað um það, heldur hafi það verið „alfarið mál­efni for­eldra hennar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár