Ólafur Ragnar hugsar um að hætta við að hætta við að hætta

Framboð Guðna Th. Jóhann­es­sonar og Davíðs Odds­sonar hefur breytt afstöðu Ólafs Ragnars Gríms­sonar gagn­vart því að bjóða sig fram á ný. Hann vill þó ekki segja af eða á um áfram­hald­andi fram­boð enn.

Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, er að hugsa um að hætta við fram­boð til emb­ætt­is­ins. Hann lýsti því yfir 18. apríl síð­ast­lið­inn að hann væri hættur við að hætta við fram­boð og ætl­aði að sækj­ast eftir að sitja sitt sjötta kjör­tíma­bil. Ólafur Ragnar vildi ekki svara því með já-i eða nei-i hvort hann yrði á kjör­seðl­inum í sumar. Hann sé ekki búinn að lenda þeirri hugsun. Ástæða þess að hann er nú að hugsa sinn gang er sú að Guðni Th. Jóhann­es­son og Davíð Oddsson hafa boðið sig fram til emb­ætt­is­ins. „Auðvitað blasir það við með þessum tveimur fram­boðum[...]er auð­vitað staðan orðin breytt að því leyti að þjóðin á nú kost á því [...) að kjósa ein­stak­linga sem hafa þessa reynslu og þekk­ingu á emb­ætt­inu." Þetta kom fram í þætt­inum Eyjunni á Stöð 2 í dag.

Ólafur Ragnar sagði að fram­boð Davíðs Odds­sonar, sem til­kynnt var um í morgun, hefði breytt miklu varð­andi for­seta­fram­boðs­mál, líkt og fram­boð Guðna Th., sem væri tví­mæ­laust sá Íslend­ingur sem mest hefur rann­sakað og skrifað um for­seta­emb­ættið. Davíð væri sá maður utan hans sjálfs sem lengst Íslend­inga hefur setið í rík­is­ráði. Ólafur Ragnar bar fyrir sig óviss­una í sam­fé­lag­inu þegar hann til­kynnti um áfram­hald­andi fram­boð, en sagði í dag að sú óvissa væri ekki alveg jafn mikið til staðar í dag og þegar hann til­kynnti um fram­boð sitt 18. apríl.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár