Á þröskuldi hörmunga „sem ekki er hægt að ímynda sér“

„Þetta er for­dæma­laust. Þetta fólk hefur ekk­ert gert til að stuðla að lofts­lags­breyt­ingum en samt bitna þær helst á því.“ Hung­ursneyð er hafin á Madaga­skar.

Mara litla í lækisskoðun. Hún var orðin vannærð en er nú hægt og bítandi að ná vopnum sínum með aðstoð lækna og hjúkrunarfræðinga.
Mara litla í lækis­skoðun. Hún var orðin vannærð en er nú hægt og bít­andi að ná vopnum sínum með aðstoð lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga. Mynd: UNICEF

Það rigndi síð­ast í maí. Og þá aðeins í tvær klukku­stundir. Reyndar hafa þurrkar geisað síð­ustu fjögur ár svo akrar líkj­ast nú helst sand­gryfjum. Eyði­mörkum. Þetta ástand er ekki bundið við bæinn Ifotaka, þar sem von­brigðin með hina tak­mörk­uðu úrkomu í maí voru gríð­ar­leg, heldur alla sunn­an­verða Madaga­skar, fjórðu stærstu eyju í heimi.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar segja að eyja­skeggjar séu að upp­lifa fyrstu hung­ursneyð­ina sem lofts­lags­ham­farir munu valda. Það vildi eng­inn verða fyrstur en eins og spáð hafði verið bitna breyt­ingar á lofts­lagi af manna­völdum á þeim sem enga ábyrgð bera á þeim: Fólki sem ástundar að mestu sjálfs­þurft­ar­bú­skap. Fólki sem nú býr við sult vegna upp­skeru­brests og hefur sumt hvert neyðst til að leggja sér engi­sprettur og lauf­blöð til munns. Þúsundir búa nú þegar við hung­ursneyð og sama bíður um milljón manna til við­bótar.

[adspot]

Á þeim svæðum þar sem þurrk­ur­inn er hvað mestur eru sum þorpin þegar mann­laus. Þar er ekki hægt að búa. Þar er ekk­ert að borða. Því það er engu að sá. Hungrið hefur líka tekið sinn toll af styrk fólks­ins. Það er orðið kraft­laust. Hreyfir sig hægt. Heldur helst kyrru fyrir.

„Mér líður illa og svo hef ég áhyggjur,“ segir sex barna móðir í þorp­inu Atoby. „Á hverjum degi velti ég því fyrir mér hvað við getum borðað.“

Hún vill flytja á frjósam­ari stað. En hún hefur ein­fald­lega ekki efni á því.

Karl­maður á fimm­tugs­aldri, sem hafði áður lifi­brauð sitt af því að rækta kassava, safnar nú eldi­viði. Fyrir hann fær hann viku­lega jafn­virði einnar skálar af hrís­grjónum.

Oft eru það ömm­urnar sem sjá um börnin þessa dag­ana. For­eldr­arnir eru farnir að leita að vinnu ann­ars staðar. Zemele fór með barna­barnið á heilsu­gæslu­stöð­ina til að fá hnetu­mauk. Það er aðeins skamm­tíma­lausn. Og ekk­ert til að lifa á til fram­búðar. En það hefur lítið sem ekk­ert rignt á land­skika fjöl­skyld­unnar í að verða þrjú ár. Það er ekki nóg með að það rigni ekki heldur er meiri vindur. Hann feykir sandi yfir þurra akrana. Jarð­veg­ur­inn er orð­inn nær­ing­ar­snauður. „Þetta hefur verið slæmt áður en ekki svona slæmt,“ segir Zemele sem man tím­ana tvenna í sínum heima­högum.

Vannær­ing er ekki nýtt vanda­mál í suð­ur­hluta Madaga­skar. Hún lætur á sér kræla reglu­lega. En þurrk­arnir nú eru þeir verstu í fjóra ára­tugi að mati Sam­ein­uðu þjóð­anna. Stjórn­völd á eyj­unni hafa litla burði til að veita þjóð­inni aðstoð. Hún kemur líka sjaldan og óreglu­lega. Hún er of lítil til að allir geti notið hennar.

Mann­úð­ar­sam­tökin Læknar án landamæra fara um svæðið á bíl, inn­rétt­uðum sem heilsu­gæslu­stöð. Þaðan er hnetu­m­auki dreift til barna sem þurfa mest á því að halda. Börn þyrp­ast að bílnum, sum í fylgd ætt­ingja sinna, þegar hann stöðvast í þorp­unum. Læknar og hjúkr­un­ar­fræð­ingar sam­tak­anna þurfa að vera fljót að koma auga á þau börn sem eru hvað vannærð­ust. Þau sem þurfa bráða­að­stoð. Þau eru tekin afsíðis. Vigtuð. Málband hringað um granna hand­legg­ina. Það þarf að for­gangs­raða. Níu ára gam­all drengur er einn þeirra sem kemst fram fyrir röð­ina í þorp­inu Befeno. Hann er um tutt­ugu kíló á þyngd. Hann er daufur til augn­anna. Allt bendir til nær­ing­ar­skorts. Honum eru gefin lyf og fæðu­bót­ar­efni.

[adspot]

Alþjóða­stofn­anir skil­greina hung­ursneyð í fimm stigum. Um 30 þús­und manns á sunn­an­verðri Madaga­skar eru á stigi fimm. Yfir milljón manns búa við alvar­legan mat­ar­skort og þurfa neyð­ar­að­stoð. Óttast er að sú tala muni hækka umtals­vert á næst­unni. Það líður senn að byrjun októ­ber. Mán­uð­inum sem sáð er í akrana. Ef ekk­ert breyt­ist og það fljótt verður ekk­ert af því.

„Þetta er fólk sem hefur lifað af land­inu en hefur þurft að flýja vegna þurrka,“ segir Shelley Thakral, tals­kona mat­væla­að­stoðar Sam­ein­uðu þjóð­anna (WFP). „Þau hafa misst lifi­brauð sitt og þau hafa þurft að selja allar eignir sínar.“

Fólk á þessum slóðum hefur getað leitað annað að tíma­bund­inni vinnu á milli upp­skera. En heims­far­aldur kór­ónu­veirunnar hefur þurrkað að mestu út slík tæki­færi sem flest eru bundin við ferða­þjón­ustu. Þannig hefur það verið í eitt og hálft ár. Engir túristar. „Þetta eru mjög háska­legir tímar fyrir íbúa í suðr­inu.“

Madaga­skar ber ábyrgð á 0,01 pró­sent af kolefn­islosun heims­ins á ári en er á sama tíma þjóðin sem fær að finna harð­ast fyrir áhrif­unum af los­un­inni.

Í augum margra Vest­ur­landa­búa er Madaga­skar sann­kölluð ævin­týra­eyja. Hún birt­ist okkur í nátt­úru­lífs­myndum – og teikni­myndum – sem frjósöm og iðandi af dýra­lífi sem hvergi ann­ars staðar er að finna í víðri ver­öld.

Hung­ursneyðin nú er alvar­leg en hún átti sér þó ákveð­inn aðdrag­anda síð­ustu ár og jafn­vel ára­tugi. Tekjur á hvern íbúa hafa farið lækk­andi og fátækt verið að aukast. Ólga hefur einnig verið á hinu póli­tíska sviði og aðgangur fólks að grunn­þjón­ustu á öllum sviðum verið skertur.

Allt hefur þetta svo haft í för með sér að þegar neyð­ar­á­stand skap­ast, eins og tíðir upp­skeru­brestir nú, eru allir vara­sjóðir fólks tómir. Og litla aðstoð að hafa frá stjórn­völdum.

Madaga­skar er meðal fátæk­ustu ríkja heims og vannær­ing barna er stærsta ein­staka heil­brigð­is­vanda­málið sem blasir við.

Hinir óvenju­legu og miklu þurrkar síð­ustu miss­eri hafa bein­línis lagt land­búnað á stórum svæðum á suð­ur­hluta eyj­unnar í rúst. Þar er ekki stund­aður stór­tækur land­bún­aður með nútíma tækjum og tólum. Ræktun hvers og eins er smá í sniðum, allt að því sjálfs­þurft­ar­bú­skapur, þar sem fólk ræktar mat­væli á litlum land­skikum.

Mat­væla­að­stoð Sam­ein­uðu þjóð­anna segir Madaga­skar meðal þeirra tíu landa heims sem við­kvæmust eru fyrir ham­förum. Nátt­úru­ham­farir á borð við felli­bylji, flóð og þurrka eru þar ofar­lega á blaði. Lofts­lags­breyt­ingar ýkja alla þessa þætti með enn alvar­legri afleið­ingum fyrir við­kvæm vist­kerfi.

„Þetta er for­dæma­laust. Þeir sem búa á Suður-Madaga­skar eiga engan þátt í lofts­lags­vánni en samt bitnar hún helst á þeim,“ segir Thakral. „Þeir keyra ekki bíla og þeir fljúga ekki með flug­vélum.“

Eyjan þeirra er að hitna og þorna. Og þeir standa á þrös­k­uldi „hörm­unga sem ekki er hægt að ímynda sér,“ segir Jean Pletinck sem starfað hefur með Læknum án landamæra í tæpa þrjá ára­tugi. „Það er erfitt að finna orð til að lýsa því sem ég hef orðið vitni að hérna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár